
Meirihlutinn lost in space
Hvað hét hann aftur upplýsingaráðherra Saddam Hussein sem hélt blaðafundi um að íraski herinn væri að sigra stríðið þótt hægt væri að sjá Bagdad falla í bakgrunni?
Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.
Hvað hét hann aftur upplýsingaráðherra Saddam Hussein sem hélt blaðafundi um að íraski herinn væri að sigra stríðið þótt hægt væri að sjá Bagdad falla í bakgrunni?
Að mörgu er að hyggja þegar velja á skólatösku og miðað við auglýsingar verslana er úrvalið töluvert. Iðjuþjálfar hvetja foreldra til að vanda valið enda hefur góð skólataska mikið forvarnargildi þegar kemur að heilsu og líðan barna.
Tæplega helmingur lækna frá Íslandi útskrifast nú úr grunnámi við erlenda háskóla.
Móðir sautján mánaða gamals barns sem fær ekki leikskólapláss í Reykjavík í haust segir nóg komið af eftiráskýringum borgaryfirvalda um orsakir leikskólavandans og vill að borgin kynni lausnir og grípi til aðgerða.
Nú fer að styttast í það að skólinn hefjist aftur og því mikilvægt að vera með réttu græjurnar þegar skólaátökin hefjast og verkefnavinnan komin á fullt. Þetta er gríðarlega spennandi en að sama skapi krefjandi tími og því er nauðsynlegt að vera með réttu fartölvuna þér við hlið til þess að aðstoða þig í gegnum námið.
Ekki er útlit fyrir að öll tólf mánaða gömul börn í Reykjavík fái leikskólapláss í haust, eins og stefnt var að. Móðir sautján mánaða barns sem fær ekki leikskólapláss í haust líkir leikskólamálum borgarinnar við frumskóg.
Menntamálaráðherra heitir því að stjórnvöld muni gera það sem hægt er til að tryggja að sem flestir fái aðgang að verknámi sem það vilja. Komið hefur fram að mun færri komast að en vilja í slíkt nám, en ráðherra segir hugsanlegt að ekki verði hægt að bregðast við öllum sem vilja komast að.
Ekki er útlit fyrir að öll tólf mánaða gömul börn í Reykjavík fái leikskólapláss í haust, eins og stefnt var að. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs borgarinnar, segir nokkur pláss laus eins og er en ekki endilega í þeim hverfum þar sem eftirspurnin er mest.
Sprenging hefur orðið í umsóknum um verknám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, einkum í húsasmíðum og rafvirkjun. Skólameistarinn segir þróunina hafa verið hraðari en fólk átti von á - þannig að færri komast að en vilja. Þetta er líka staðan um allt land, þar sem 20% umsækjenda um verknám fá höfnun.
Gögn frá Menntamálastofnun sýna að margfalt fleirum er hlutfallslega hafnað um skólavist í starfsnámi í framhaldsskóla en í bóknámi á Íslandi. Um þriðjungur umsækjenda í Tækniskólanum var hafnað í haust. Verzlunarskólinn er vinsælasti bóknámsskólinn, en hann er alveg sprunginn á plássi.
Eldur logaði í rusli á bak við Lækjarskóla í Hafnarfirði í gærkvöldi. Fram kemur í dagbók lögreglu að tilkynnt hafi verið um eld í gámi í hverfinu klukkan 21:57.
Undanfarið hafa átt stað miklar umræður um skólamál innan ákveðinna hópa skólafólks á samfélagsmiðlum og íslenskt skólakerfi hefur ekki farið varhluta af gagnrýni vegna niðurstaðna á PISA sem er umfangsmikil alþjóðleg könnun á hæfni og getu 15 ára nemenda á lesskilningi, læsi á náttúruvísindi og læsi á stærðfræði. Samkvæmt mælanlegum niðurstöðum þá stendur skólakerfið frammi fyrir alvarlegum vanda þar sem ólæsi hefur aukist ásamt brottfalli nemenda úr framhaldsskólum.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir ákvörðun kærunefndar útboðsmála um að stöðva samningagerð milli Garðabæjar og Fortis ehf um byggingu nýs leikskóla í Urriðaholti ekki endanlega. Ákvörðunin var tekin fyrir á fundi bæjarráðs 26. júlí síðastliðinn og málinu vísað til bæjarstjóra.
Kærunefnd úboðsmála hefur stöðvað samningsgerð Garðabæjar við Fortis ehf. vegna bygginar leikskóla í Urriðaholti, þar sem nefndin telur verulegar líkur á því að bæjaryfirvöld hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup.
Fráfarandi rekstaraðilar skólabúðanna að Reykjum í Hrútafirði hafa samið við Dalabyggð um að taka ferðaþjónustuþorpið Laugar í Sælingsdal á kaupleigu. Þar ætla þeir að reka ferðaþjónustu frekar en skólabúðir.
Lilja D. Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra, segir að fréttir um þjónustuleysi við heyrnarlaus börn komi við sig og segir jafnframt að gera þurfi betur þegar kemur að þjónustu við heyrnarlausa. Hún segir að stjórnvöld muni í samstarfi við sveitarfélögin einhenda sér í að framkvæma aðgerðaráætlun með það að markmiði að gera betur í málaflokknum.
Flugakademía Íslands heiðraði í dag Ernu Hjaltalín, sem var fyrsta konan til að taka einkaflugmannspróf og atvinnuflugmannspróf hér á landi. Afkomendur hennar segja það mikinn heiður að ein kennsluvéla akademíunnar sé nú nefnd eftir Ernu.
Að minnsta kosti þrjár fjölskyldur heyrnarlausra barna hafa flúið land vegna skorts á þjónustu við börnin hér á landi. Formaður Félags heyrnarlausra segir að lögum um íslenskt táknmál sé ekki nægilega framfylgt og ábyrgð yfir málaflokknum allt of dreifða.
Bæjarstjóri Garðabæjar undirritaði á þriðjudag samninga við fyrirtækin Matartíma og Skólamat um framleiðslu og framreiðslu á mat fyrir alla grunnskóla Garðabæjar og hluta af leikskólum bæjarins næstu þrjú árin.
Hlutfall nemenda sem eru útskrifaðir úr námi fjórum árum eftir innritun í framhaldsskóla fer síhækkandi. Á sama tíma hefur brotthvarf af framhaldsskólastigi aldrei mælst minna.
Móðir heyrnarlauss drengs treystir sér oft ekki til að senda son sinn á leikskólann þótt skólinn sérhæfi sig í að mæta þörfum heyrnarlausra barna. Stundum hafi drengurinn engan til að eiga samskipti við þar sem oft vanti táknmálstalandi starfsmann á vakt. Hún hefur kært skólann til menntamálaráðuneytisins og óttast að þurfa að flytja út fyrir landsteinana í leit að þjónustu fyrir börnin.
Samfélagið okkar hefur breyst mikið á síðustu áratugum. Það fjölþjóðlega samfélag sem við þekkjum í dag, varð ekki til á einni nóttu heldur hægt og bítandi samhliða aukinni alþjóðavæðingu og hagsæld. Við erum að vaxa, þroskast og fjölbreytileikinn auðgar mannlífið.
Ferðaskrifstofunni Tripical Travel var óheimilt að hækka verð pakkaferða útskriftarnema til Krítar með vísan til breytinga á eldsneytisverði. Þetta er niðurstaða Neytendastofu sem hefur borist fjöldi kvartana vegna ferðarinnar.
Alls voru tæplega 47 þúsund nemendur í grunnskólum landsins haustið 2021 og hafa þeir aldrei verið svo margir áður. Grunnskólanemum fjölgaði um 171 á milli ára en samkvæmt Hagstofu er skýringin aðallega sú að nemendum fjölgar sem flytja hingað til lands erlendis frá.
Skólastarf leikskólans Öskju og Barnaskólans í Reykjavík flyst tímabundið í Skógarhlíð og mun skólastarf þar hefjast að loknum sumarleyfum. Foreldrar barna í Öskju fá undanþágu á uppsagnarfresti á samningi við aðra leikskóla borgarinnar kjósi þeir að börnin haldi áfram dvöl þar.
Fræðslufyrirtækið Akademias hefur fest kaup á Tækninámi, sem sérhæfir sig í fjarnámi í tækninám.
Mötuneyti, íþróttahús og kaffistofa kennara Fossvogsskóla eru í Meginlandi, álmu skólans sem opnar ekki í haust. Álman er sú verst farna af myglu og hafa foreldrar óskað eftir því að hún verði rifin.
Nemendur og kennarar snúa aftur í Fossvoggskóla í haust eftir að hafa verið „á hrakhólum í fjögur ár.“
Straumhvörf urðu í vor þegar fyrsti hópur þroskaþjálfa útskrifaðist frá Háskóla Íslands að loknu fjögurra ára háskólanámi. Af því tilefni stóðu Menntavísindasvið og Þroskaþjálfafélag Íslands saman að sérstakri útskriftarathöfn fyrir nemendur og aðstandendur þeirra.
Borgarstjóri segir innritun yngstu barna á leikskóla ekki hafa gengið jafn vel og bundnar voru vonir við. Borgarstjórn hafði gefið það út að öll tólf mánaða börn og eldri fengju innritun næsta haust en það virðist ekki ætla að ganga eftir. Foreldrar eru langþreyttir á ástandinu og gefa lítið fyrir skýringar borgarfulltrúa.