Meiðandi slúðri um grunnskólabörn dreift á Instagram Dæmi eru um að meiðandi slúðri um þrettán til fjórtán ára gömul grunnskólabörn sé dreift á sérstökum slúðursíðum á Instagram. Fjölmargar slíkar síður eru til, misvirkar, en þó virðast þær ná til flestra landshluta hér á landi. Slúðrið er oftar en ekki af kynferðislegum toga. Innlent 6. desember 2018 21:30
Banna farsíma á skólatíma: Dæmi um að foreldrar hafi samband við börnin í kennslustund Farsímanotkun verður bönnuð í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði frá og með 1. janúar næstkomandi. Valdimar Víðisson, skólastjóri skólans, ræddi málið í Bítinu á Bylgjunni í gær og sagði ástæðuna fyrst og fremst þá að farsímar hafi ekker kennslufræðilegt gildi. Innlent 6. desember 2018 08:32
Ný menntastefna í Reykjavík Borgarstjórn hefur samþykkt nýja menntastefnu Reykjavíkur til 2030. Skoðun 6. desember 2018 07:00
Fallið frá niðurskurði til Rannsóknasjóðs Ríkisstjórnin og meirihluti fjárlaganefndar ákváðu í gær að falla frá 144 milljóna króna niðurskurði á framlögum til Rannsóknasjóðs Vísinda- og tækniráðs. Innlent 6. desember 2018 06:00
Fjárfesting til framtíðar Fyrirhugaður niðurskurður á fjárframlögum til Rannsóknasjóðs Rannís, sem Fréttablaðið greinir frá í dag, er köld kveðja til þeirra vísindamanna sem starfa hér á landi. Skoðun 4. desember 2018 07:00
Forviða á hugmyndum um niðurskurð til Rannsóknasjóðs Forseti Vísindafélags Íslendinga er hissa á fyrirhuguðum niðurskurði á framlögum til Rannsóknasjóðs. Prófessor við læknadeild HÍ og stofnandi lyfjaþróunarfyrirtækis segir að án styrkja hefði ekkert orðið af fyrirtæki sínu. Innlent 4. desember 2018 06:00
Heiðruðu fjölþjóðlegan hóp nýdoktora frá HÍ Háskóli Íslands heiðraði nýdoktora með áttunda árið í röð. Um þessar mundir stunda um 600 manns doktorsnám við skólann og frá upphafi hafa á sjöunda hundrað nemenda lokið doktorsnámi við hann. Stór hluti hópsins er af erlendu ber Innlent 3. desember 2018 06:15
Um kennaramenntun og leyfisbréf Sú sem hér skrifar sér ekki að umræðan um eitt leyfisbréf eigi yfirleitt mikið skylt við kennaramenntunar- eða fagumræðu kennarastarfsins. Skoðun 28. nóvember 2018 08:33
Leikskólastjórar ósáttir: „Borgin er að byggja gæsluvelli, ekki leikskóla“ Samráðsfulltrú leikskólastjóra í Reykjavík segir lítið gagn í því að fjölga leikskólaplássum þegar fagmenntaðir leikskólakennarar fást ekki til starfa en nú er eingöngu 25 prósent starfsfólks á deildum fagmenntað. Innlent 20. nóvember 2018 15:45
Borgin horfir til einkarekinna leikskóla til að brúa bilið Reykjavíkurborg hyggst fjölga leikskólaplássum um 700 til 750 á næstu fimm árum til að hægt verði að bjóða öllum börnum tólf mánaða og eldri pláss á leikskóla fyrir lok árs 2023. Innlent 19. nóvember 2018 11:22
BHM vill afnema ábyrgðir af eldri námslánum Árið 2009 hætti Lánasjóður íslenskra námsmanna, LÍN, að krefja lántakendur um ábyrgðarmenn á lánum þeirra hjá sjóðnum. Hins vegar var einnig ákveðið að aflétta ekki ábyrgðum af eldri lánum. Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður Bandalags háskólamanna segir þetta fela í sér ótæka mismunun. Innlent 16. nóvember 2018 20:30
Hlutfall nemenda í starfsnámi á Íslandi með því lægsta í Evrópu Aðeins 13,5 prósent nýrra framhaldsskólanema völdu einhverskonar starfsnám á síðasta skólaári. Innlent 14. nóvember 2018 11:55
Telur framhaldsskólanema vinna of mikið Formaður Skólameistarafélags Íslands telur að framhaldsskólanemar vinni of mikið með skóla. Álag á ungmenni hafi aukist eftir að framhaldsskólinn var styttur í þrjú ár en hann telur þó ekki ástæðu til að lengja námið aftur í fjögur ár. Innlent 9. nóvember 2018 20:00
„Það erum við sem þurfum að gefa afsláttinn“ Þrátt fyrir að framhaldsskóli hafi verið styttur í þrjú ár gefa margir nemendur sér lengri tíma til að ljúka námi. Nemandi í FG segir hættulega mikið álag vera á nemendur og hefur sent menntamálaráðherra bréf til að lýsa óánægju sinni. Innlent 6. nóvember 2018 20:30
Bein útsending: Framtíð Íslands - Mikilvægi nýsköpunar Guðmundur Hafsteinsson, frumkvöðull og stjórnandi hjá Google, fjallar um framtíð Íslands og mikilvægi nýsköpunar fyrir atvinnulíf og samfélag í Hátíðasal Háskóla Íslands. Innlent 2. nóvember 2018 11:15
Mótmæla seinagangi við byggingu stúdentaíbúða Nemendur við Háskóla Íslands tóku þátt í þöglum setumótmælum sem Stúdentaráð HÍ efndi klukkan eitt í dag. Innlent 1. nóvember 2018 14:02
Gert að mæta í skólasundið skömmu fyrir sundæfingu Umboðsmaður Alþingis hefur úrskurðað að niðurstaða menntamálaráðuneytisins að staðfesta ákvörðun skólastjóra að hafna beiðni um að sex ára stúlka í fyrsta bekk grunnskóla fengi að sleppa skólasundi sem lauk skömmu áður en sundæfing átti að hefjast, hafi ekki verið í samræmi við lög. Innlent 31. október 2018 21:49
Bein útsending: Vísindabragðarefur í Háskólanum í Reykjavík Átta fyrirlesarar úr öllum deildum háskólans halda áhugaverða örfyrirlestra sem snerta á fjölbreyttum og ólíkum málefnum. Innlent 26. október 2018 11:15
Þurfum að senda þau skilaboð að iðnnám loki engum leiðum Níu þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram frumvarp sem myndi jafna stöðu sveinsprófs og stúdentsprófs sem inntökuskilyrðis í háskóla. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins segir að þótt ýmislegt hafi verið gert sé mikilvægt að taka stærri skref til að efla iðnnám. Innlent 25. október 2018 09:00
Biðja foreldra að afsaka tafir Miklar tafir hafa orðið á endurbótum á leikskólanum Kirkjugerði í Vestmannaeyjum. Innlent 24. október 2018 06:30
Rætur menningarinnar Bækur hafa fylgt íslensku þjóðinni alla tíð og hafa að geyma okkar helstu menningarverðmæti. Menningarlegt mikilvægi þeirra er ótvírætt og gildi þeirra fyrir íslenska tungu sömuleiðis. Skoðun 21. október 2018 11:00
Starfsmannasíðu lokað eftir gagnrýni á rektor Tölvupóstur sem rektor sendi starfsmönnum Háskólans á Akureyri eftir fréttaflutning um skólann fékk misjöfn viðbrögð. Starfsmaður gagnrýndi rektor á Facebook-síðu starfsmannafélags háskólans. Síðunni var lokað degi síðar. Innlent 17. október 2018 08:00
Nemendum Áslandsskóla mismunað í matarhléum Umboðsmaður barna skorar á Hafnarfjarðarbæ að bæta úr því. Innlent 15. október 2018 23:09
Aðgerðir vegna samskiptavanda hjá HA Forseti hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri var settur í annað starf og utanaðkomandi ráðgjafarfyrirtæki fengið til að greiða úr samskiptavanda á sviðinu. Erum að reyna að takast á við þetta innan frá, segir rektor. Mar Innlent 15. október 2018 06:00
Lesfimi íslenskra grunnskólabarna eykst Lesfimi íslenskra skólabarna jókst marktækt milli ára samkvæmt lesfimiprófi Menntamálastofnunar sem lagt var fyrir nemendur í öllum bekkjum grunnskóla í síðasta mánuði. Innlent 10. október 2018 12:45
Bein útsending: Hver verða framúrskarandi? Hvað eiga Darwin, H.C. Andersen og Zlatan sameiginlegt? Innlent 10. október 2018 11:45
Margslungið og skapandi hlutverk kennarans Í dag er alþjóðadagur kennara. Mikilvægi kennarastarfsins er óumdeilt og hvert það samfélag sem kappkostar að hlúa vel að kennurum allra skólastiga mun uppskera ríkulega. Skoðun 5. október 2018 14:49
Klæðning Laugalækjarskóla veldur áhyggjum vegna brunans í Grenfell-turninum Sviðsstjóri eldvarnaeftirlitsins segir klæðninguna ekki í samræmi við aðaluppdrátt hússins. Innlent 3. október 2018 11:23
Bein útsending: Er nútímastjórnun aðalástæða kulnunar í starfi? Klukkan níu hefst fyrirlesturinn Lífshættuleg stjórnun: Er nútímastjórnun aðalástæða kulnunar í starfi? í Háskólanum í Reykjavík. Innlent 28. september 2018 08:30
Háskólinn í Reykjavík meðal 350 bestu háskóla heims Á nýjum lista yfir bestu háskóla heims, er Háskólinn í Reykjavík (HR) í þriðja til sjötta sæti hvað varðar áhrif rannsókna. Innlent 27. september 2018 15:24
Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent