
Kennarar vísa viðræðum til ríkissáttasemjara: „Öllu hefur verið hafnað sem við höfum lagt fram“
Slitnað hefur upp úr kjaraviðræðum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara. Kjarasamningar grunnskólakennara renna út um áramótin.
Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.
Slitnað hefur upp úr kjaraviðræðum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara. Kjarasamningar grunnskólakennara renna út um áramótin.
Hverfismiðstöð með nýrri sundlaug, þeirri fyrstu í Reykjavík í 23 ár, og nýju bókasafni var opnuð í Úlfarsárdal í morgun. Heildarfjárfesting verkefnisins er upp á 14 milljarða króna og framkvæmdin er ein sú stærsta sem Reykjavíkurborg hefur ráðist í. Borgarstjóri segir daginn tímamót í sögu borgarinnar.
Umboðsmaður Alþingis skrifar í bréfi sem sent var á mennta- og barnamálaráðherra á miðvikudag að notkun svokallaðra gulra herbergja í grunnskólum sé í yfirgnæfandi fjölda tilvika bundin við börn með sérþarfir. Almennir grunnskólar telji sig þá standa frammi fyrir óleysanlegum vanda gagnvart nemendum með sérþarfir og alvarlegan hegðunarvanda.
Eitt af því sem mér finnst mikilvægt að beita mér fyrir sem leiðtogi kennara á Íslandi, hljóti ég brautargengi sem varaformaður Kennarasambands Íslands, er að efla valdeflingu kennarastéttarinnar hér á landi.
Mikil umræða á sér nú stað meðal foreldra um stöðu barna þeirra í skólakerfinu og réttindi þeirra. Rætt hefur verið um svokölluð gul herbergi og hvernig við meðhöndlum nemendur sem falla utan við hin hefðbundnu viðmið.
Þeim sem smitaðir eru af COVID-19 á Austurlandi hefur fjölgað síðustu daga. Síðustu tvo sólarhringa hafa tæp þrjátíu ný smit greinst, flest þeirra í Fjarðabyggð. Leikskólinn Lyngholt og grunnskólinn á Reyðarfirði og grunnskólinn á Eskifirði verða lokaðir út vikuna vegna þessa.
Mistök geta verið allskonar; alvarleg, kaldhæðnisleg, grátleg og jafnvel fyndin! En það góða við mistök er að allir lenda í þeim einhvern tíma á lífsleiðinni.
Forstjóri Brims segir fyrirtæki landsins ekki gera nóg til að efla íslenskukunnáttu starfsfólks síns. Hann er uggandi um stöðu tungumálsins og var að enda við að gefa eina stærstu bókagjöf á Íslandi um langt skeið.
Íslensk stjórnvöld hófu þróunarsamvinnu við Namayingo hérað í Úganda í sumar.
Sem varaformaður Kennarasambands Íslands myndi ég vilja beita mér fyrir því að bæta vinnuumhverfi kennara og gera þannig starfið eftirsóknarverðara. Starfið þarf að vera sýnilegra og við þurfum að hafa rödd okkar alls staðar þar sem er verið að móta stefnur og strauma um allt sem kemur að menntamálum.
Það getur margt jákvætt áunnist með auknum fjölbreytileika og fjölmenningu á vinnustöðum.
Forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir að endurskoða þurfi fyrirkomulag staðprófa í háskólanum á tímum heimsfaraldurs eftir að upp kom smit í prófi við HÍ.
Ákveðið hefur verið að fella niður skólahald í Eskifjarðarskóla í dag eftir að starfsmaður skólans greindist með COVID-19 í gær.
Eftir hafa barist fyrir því að nemendur við Háskóla Íslands (HÍ) fengju að taka heimapróf af sóttvarnaástæðum var Söndru Ósk Jóhannsdóttur tjáð að hún hafi deilt prófstofu með Covid-sýktum samnemenda.
Það er mjög dýrmætt að vakna á morgnana og hlakka til að mæta í vinnuna. Að vera kennari er það besta sem ég veit. Að hitta samstarfsfólkið sitt og nemendurna sem kenna manni eitthvað nýtt á hverjum degi. Að sjá nemendur sína ná árangri er tilfinning sem ekki verður metin til fjár. Í starfsumhverfi kennara eru mikið um álitamál og að mörgu er að hyggja.
Skólahald í Hlíðaskóla verður fellt niður á morgun, mánudag, og á þriðjudaginn vegna fjölda þeirra Covid-smita sem hafa komið upp í skólanum.
Ég á mér draum um að kennarastarfið hljóti þá virðingu sem það á skilið. Virðingu frá viðsemjendum okkar sem segja „nei” við fullkomlega réttmætum kröfum okkar um leiðréttingu á launum miðað við viðmiðunarstéttir.
Kæri stéttarfélagi, menntun skiptir máli fyrir okkur öll og mikilvægt er að vanda valið þegar kemur að því að kjósa þá sem gefa kost á sér sem leiðtogar menntamála. Einstaklinga sem brenna fyrir málefnum menntunar, eru fylgnir sér, búa yfir þrautseigju og seiglu, hlusta á raddir kennara og valdefla þá.
Strákurinn og mamma hans á bænum Þambárvöllum við Bitrufjörð gætu verið þau sem búa við lengstan skólaakstur allra á Íslandi um þessar mundir. Þau verja þremur klukkustundum á dag í skólabílnum.
Til greina kemur að rífa hluta af Hagaskóla eftir að svæsin mygla fannst í húsnæðinu. Allt kapp er lagt á að uppræta mygluna svo hægt verði að hefja kennslu þar að nýju, en á meðan fer kennsla að stærstum hluta fram á Hóteli Sögu og Háskólabíói. Nemendur kippa sér hins vegar lítið upp við þetta fyrirkomulag, og raunar líkar það bara ágætlega.
Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, segir foreldra í Fossvoginum eiga að vita betur en að tala um það sem þyngra en tárum taki að börn þeirra missi af skólabúðum. Skólastjórinn í Fossvogsskóla sagði upp störfum nýlega og vísaði til gríðarlegs álags sem fylgt hefði starfinu.
Kæru foreldrar í Fossvogi, við þurfum að tala saman. Við þurfum að ræða um viðbrögð sumra ykkar við því að skólastjórinn ykkar skuli bogna undan því álagi sem fylgir því að reka skólann í langvarandi veiru- og myglufaraldri.
Fráfarandi skólastjóri Fossvogsskóla, Ingibjörg Ýr Pálmadóttir, gleymdi að sækja um dvöl fyrir 7. bekk skólans á Reykjum í Hrútafirði en þegar umsókn barst að lokum var allt orðið fullt.
Úttekt Reykjavíkurborgar á sjálfstætt starfandi leikskólanum Sælukoti stendur enn yfir. Forsvarsmenn leikskólans segja skólann hafa starfað við góðan orðstír undir eftirliti frá árinu 1984. Sælukot hefur tryggt sér þjónustu lögmanns til að gæta hagsmuna leikskólans.
Skólastjóri Fossvogsskóla er hættur störfum. Það kom fram í pósti sem Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, sendi í dag. Starfsemi Fossvogsskóla hefur verið flutt annað vegna myglu- og rakaskemmda.
Skólastjóri Hagaskóla segir stöðuna í skólanum sérstaka um þessar mundir. Aðeins einn árgangur er eftir í húsnæði skólans þar sem mygla hefur fundist í álmum áttunda og níunda bekkjar. Þá er einnig mögulegt að mygla leynist í álmu tíunda bekkjar. Unnið er að endurbótum en ómögulegt er að segja hversu langan tíma það muni taka.
Allt kjörtímabilið höfum við Sjálfstæðismenn verið að reyna að fá svar við spurningunni, hver sé meðalaldur barna við inngöngu í leikskóla Reykjavíkur. Fyrst þegar spurt var þá þótti of kostnaðarsamt að svara okkur, þar sem þessi gögn voru ekki til í gagnagrunnum Reykjavíkurborgar.
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að leikskólamálin í Reykjavík séu í miklum ólestri og að fullreynt sé með núverandi stjórn leikskólamála.
Heimsfaraldur Covid þvingaði fram tímabær risaskref í tæknivæðingu samfélaga. Fjarfundarlausnir á borð við Zoom og Teams urðu skyndilega flestum Íslendingum jafn kunnug og Facebook eða Instagram.
Allir nemendur í 9. bekk í Hagaskóla verða heima í dag vegna þess að mygla hefur fundist í kennslurými hjá árganginum. Eftir að mygla fannst í álmu 8. bekkjar var ákveðið að færa kennslu þess árgangs yfir í tímabundið húsnæði á Hótel Sögu.