Leita áfram í fyrramálið Björgunaraðgerðir standa enn yfir í Stuðlagili við leit að manni sem féll í Jöklu fyrr í dag. Lögregla segir að dregið verði úr leitinni von bráðar þegar myrkur skellir á en henni fram haldið á morgun. Innlent 24. ágúst 2026 21:08
Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Leit stendur enn yfir að manni sem talið er að hafi fallið út í Jökulsá á Brú við Stuðlagil. Hátt í hundrað manns taka þátt í aðgerðinni frá öllum björgunarsveitum á Austurlandi en tilkynning barst um atvikið rúmlega eitt í dag. Innlent 24. ágúst 2026 18:38
Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Allt tiltækt lið björgunarsveita á Austurlandi hefur verið kallað út vegna tilkynningar um að maður hafi fallið út í Jöklu í Stuðlagili. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið austur með straumvatnsbjörgunarmenn frá höfuðborgarsvæðinu. Innlent 24. ágúst 2026 14:16
Límmiðar lifðu ekki af nóttina „Ég er bara algjörlega miður mín út af þessu. Að þetta fái ekki að vera í friði. Þetta eru líklega einhver skemmd epli,“ segir Frosti Sigurgeirsson, bóndi á Heiðarseli á Hróarstungu í Fljótsdalshéraði, sem setti upp límmiða á heyrúllur í gær, merkta „Já til að sjá“. Miðarnir voru horfnir í morgun. Innlent 22. ágúst 2026 16:04
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Áform ríkisstjórnarinnar um að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11% í 24% munu koma sérstaklega illa niður á landsbyggðinni. Í Múlaþingi blasir við hvernig þessi skattahækkun mun veikja rekstrargrundvöll Vök Baths, vinna gegn uppbyggingu ferðaþjónustu á Austurlandi og skerða þjónustu sem heimafólk nýtir allt árið. Skoðun 18. ágúst 2026 07:33
E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Í síðustu viku mældust E. coli-gerlar í sýni neysluvatns á Borgarfirði eystra og er íbúum er ráðlagt að sjóða vatn fyrir neyslu þess. Innlent 17. ágúst 2026 11:51
Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Innviðaráðuneytið hafnaði kröfu íbúa á Seyðisfirði um að íbúakosningar til heimastjórnar þar yrðu ógiltar. Íbúinn taldi framkvæmd þeirra hafa valdið ruglingi og að skýr vilji íbúa hefði ekki komið fram. Innlent 17. ágúst 2026 11:02
Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Lagarfljótssundi sundkappans Sigurgeirs Svanbergssonar er lokið en Sigurgeir þurfti að hætta vegna meiðsla og var hann fluttur á sjúkrahús í kjölfar þess sem hann kom í land. Sundið er engu að síður Íslandsmet en enginn hefur synt samfellt jafn lengi. Innlent 16. ágúst 2026 15:36
Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjósundkappinn Sigurgeir Svanbergsson gerir aðra atlögu að því að synda Lagarfljót endilangt í kvöld eftir að hafa þurft frá að hörfa vegna ofkælingar í júní. Aðstæðurnar eru mun vænlegri í þetta sinn. Innlent 15. ágúst 2026 12:01
Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Sjósundkappinn Sigurgeir Svanbergsson gerir aðra atlögu að því að synda Lagarfljót endilangt aðfaranótt sunnudagsins sextánda ágúst á miðnætti. Innlent 14. ágúst 2026 23:46
Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Eldur kviknaði í verslun Bónuss á Egilsstöðum um helgina. Framkvæmdastjóri Bónuss segir það lán í óláni að eldurinn hafi ekki dreift sér um alla verslunina. Hann er þakklátur fyrir skjót viðbrögð slökkviliðs og starfsmanna. Innlent 10. ágúst 2026 13:10
Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Náttúruverndarsamtök Austurlands og Landhelgisgæslan heiðruðu Ómar Ragnarsson í dag með dagsferð á Sauðárflugvöll á hálendi Austurlands. Ómar kom flugvellinum á kortið í baráttu sinni fyrir náttúruvernd á Austurlandi og gegn Kárahnjúkavirkjun. Ómar segir brýnt að viðhalda flugbrautum þar og auka vitneskju um völlinn, öryggisins vegna. Innlent 5. ágúst 2026 19:29
„Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Bræðslustjóri segir tónleikahald á Bræðslunni á Borgarfirði eystra hafa gengið vel þrátt fyrir leiðindaveður. Hann þakkar viðbragðsaðilum fyrir vel unnin störf og að það þýði ekkert að velta sér of mikið upp úr veðurspánni. Innlent 26. júlí 2026 19:48
Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Talsverður vindur og úrkoma var í gærkvöldi og nótt á Borgarfirði eystra, þar sem tónlistarhátíðin Bræðslan fer fram um helgina. Veðrið setti strik í reikninginn í gærkvöldi og nótt. Innlent 26. júlí 2026 10:46
Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Lögreglan á Austurlandi segir ágætlega hafa gengið á tónlistarhátíðinni Bræðslunni sem haldin er á Borgarfirði eystra um helgina en veður hafi sett strik í reikninginn. Einhverjir gestir þurftu að leita skjóls í íþróttahúsi í gærnótt vegna hvassviðris og úrkomu og óttast er að komi til svipaðs ástands í nótt. Innlent 25. júlí 2026 21:44
Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Vefsíða austfirska fjölmiðilsins Austurfrétt liggur niðri eftir netárás. Enginn gagnaleki virðist hafa orðið. Innlent 23. júlí 2026 08:50
„Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Tjaldsvæði á Austurlandi eru mörg hver stappfull af sólarþyrstum Íslendingum í sumarfríi en veðrið á suðvesturhorninu hefur leikið íbúa höfuðborgarinnar grátt síðustu daga. Aðsóknin sé álag bæði á starfsfólk og innviði en vinna hafi verið lögð í uppbyggingu tjaldsvæða á Austfjörðum síðustu ár. Innlent 22. júlí 2026 23:47
Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Vegagerðin vinnur að því að útrýma einbreiðum brúm á Íslandi. Framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni segir þónokkur verkefni í bígerð, sem sum stytta hringveginn töluvert. Innlent 18. júlí 2026 16:45
Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Síðustu daga hefur veðrið leikið við fólk á austurhluta landsins en á sama tíma hafa gular viðvaranir ríkt á vestanverðu landinu. Hiti fór víða yfir tuttugu og fimm gráður á Austfjörðum og Egilsstöðum um helgina og tjaldsvæði eru mörg hver að fyllast. Innlent 15. júlí 2026 21:13
Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Það má segja að veðurgæðum sé verulega misskipt eftir landshlutum á þessum hásumarsdegi. Enda tóku gular veðurviðvaranir gildi um norðvestanvert landið í morgun á meðan skærgul sólin leikur við landann á Austurlandi með tilheyrandi blíðu og hita. Innlent 15. júlí 2026 12:33
Bílvelta austan við Hvalnes Bíll með ferðavagn valt út af vegi rétt austan við Hvalnes á Suðausturlandi. Þrír voru um borð í bílnum en ekki er talið að um alvarlegt slys sé að ræða. Innlent 14. júlí 2026 18:08
Mælirinn segir 33 gráður Hitabylgjan á Austurlandi náði hámarki um hádegisbilið þegar hiti mældist 27 gráður á nokkrum stöðum. Áfram verður besta veðrið á Austurlandi næstu daga, þó ekki jafn gott og í dag. Fréttamanni brá þegar hann leit á hitamælinn í bílnum og á honum stóð að úti væru 33 gráður. Innlent 12. júlí 2026 15:44
Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Fjölmargir hafa gert sér leið austur í land til að njóta í veðurblíðunni þar um helgina. Sveitarstjóri Múlaþings segir það frábært fyrir sveitarfélagið að fá svo gott veður. Innlent 11. júlí 2026 13:59
„Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Spáð er allt að tuttugu og sex gráðum og bjartviðri á Austurlandi um helgina og landinn virðist streyma þangað í von um nokkra sólardaga. Fáir flugmiðar eru óseldir frá Reykjavíkurflugvelli til Egilsstaða um helgina og tjaldsvæðin fyrir austan eru að fyllast. Innlent 10. júlí 2026 14:04
Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Bláa lónið hf. hefur samið um aukningu á eignarhlut sínum í Norðurböðum ehf. sem eru hluthafi í Jarðböðunum við Mývatn og Sjóböðunum á Húsavík. Jarðböðin eru jafnframt hluthafi í Vök á Egilsstöðum. Viðskipti innlent 9. júlí 2026 08:37
Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Byggðaráð Múlaþings lýsir þungum áhyggjum af skerðingu fjarskipta í sveitarfélaginu í kjölfar þess að slökkt var á 2G og 3G sendum. Sveitarfélagið er sérlega víðfeðmt og teygir sig frá Borgarfirði eystri suður á Djúpavog. Innlent 8. júlí 2026 07:33
Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Samgöngur eru ein af mikilvægustu undirstöðum samfélagsins. Þær tengja saman byggðir, auðvelda aðgengi að atvinnu, menntun og heilbrigðisþjónustu og skapa forsendur fyrir öflugu atvinnulífi. Skoðun 2. júlí 2026 11:32
Saka ríkisstjórnina um svik Sveitarstjórn Múlaþings sakar ríkisstjórnina um svik með því að samþykkja samgönguáætlun þar sem Fjarðarheiðargöng eru sett aftar í forgangsröðunina. Innlent 2. júlí 2026 09:12
Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Par var handtekið á fimmtudaginn á Seyðisfirði er þau voru á leið úr landi með Norrænu, grunuð um tilraun til smygls á rúmlega hundrað fuglaeggjum. Innlent 18. júní 2026 16:43
„Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur“ Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi varð að ljúka sundi niður Lagarfljót snemma vegna ofkælingar en fljótið var kaldara en búist var við. Hann hóf sundið niður Lagarfljót um klukkan níu í gærkvöldi, mánudaginn 15. júní, en áætlað hafði verið að það tæki um sólarhring að synda þessa leið sem er um fimmtíu kílómetra löng. Tilgangurinn var að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt. Innlent 16. júní 2026 07:57