Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir og Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifa 18. ágúst 2026 07:33 Áform ríkisstjórnarinnar um að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11% í 24% munu koma sérstaklega illa niður á landsbyggðinni. Í Múlaþingi blasir við hvernig þessi skattahækkun mun veikja rekstrargrundvöll Vök Baths, vinna gegn uppbyggingu ferðaþjónustu á Austurlandi og skerða þjónustu sem heimafólk nýtir allt árið. Þessi hækkun er enn einn landsbyggðarskatturinn, því nánast öll baðlón landsins eru staðsett utan höfuðborgarsvæðisins. Þau skapa störf hvert á sínu svæði, auka dreifingu ferðamanna á svæði fjarri höfuðborginni og styðja við uppbyggingu gistingar, veitingastaða, verslunar og afþreyingar. Bæði baðlónin sjálf, og sú starfsemi sem þau styðja við, eru mikilvæg þjónusta sem auka lífsgæði íbúa samfélagsins hér á Austurlandi. Vök skiptir máli allt árið Vök Baths við Urriðavatn eru orðin mikilvægur hluti af samfélaginu í Múlaþingi. Þar hefur verið byggður upp öflugur ferðamannasegull sem hefur lagt áherslu á að þjóna einnig heimafólki. Um 40% gesta Vök eru Íslendingar, heimafólk og innlendir ferðamenn, og um 750 árskort eru seld á ári til íbúa á Austurlandi. Ríkisstjórnin virðist halda að hækkunin lendi bara á erlendum ferðamönnum, en virðisaukaskattur er neytendaskattur sem fer líka beint út í verðið á árskortum heimafólks. Þess vegna lendir hækkun virðisaukaskattsins ekki síst á heimilum á svæðinu. Stærra áhyggjuefnið eru þó neikvæðu áhrifin á rekstur Vök yfir veturinn. Árið 2025 var tap á starfsemi Vök í fimm mánuði ársins. Sú staðreynd segir meira um stöðu heilsársferðaþjónustu á Austurlandi en skattadálkarnir í töflureikni fjármálaráðuneytisins. Sumarið ber reksturinn uppi en veturinn ræður því hvort hægt er að halda fólki í vinnu allt árið, byggja upp þekkingu og skapa stöðug störf fyrir heimafólk. Hækkun á virðisaukaskatti úr 11% í 24% þrengir þetta svigrúm verulega og ef reksturinn yfir veikustu mánuðina stendur ekki undir sér þarf að bregðast við með því að stytta opnunartíma og draga saman í starfseminni. Í versta falli gæti skattahækkunin orðið til þess að loka verði Vök Baths í nokkra mánuði yfir vetrartímann. Það þýðir að afleiðingarnar af þessum landsbyggðarskatti ná langt út fyrir rekstrarreikning Vök. Starfsfólk missir vinnuna eða verður að minnka starfshlutfall. Íbúar missa þjónustu og lífsgæði á svæðinu minnka. Ferðamenn hafa færri ástæður til að dvelja á svæðinu utan háannar á svæði sem nú þegar glímir við miklu meiri árstíðasveiflu en svæði nær höfuðborginni. Og önnur fyrirtæki sem byggst hafa upp á svæðinu missa viðskipti. Allt eru þetta augljósar og fyrirsjáanlegar afleiðingar. En sú afleiðing sem er líklega alvarlegust fyrir landsvæði eins og Austurland er ekki alltaf svona augljós. Aukin skattheimta leiðir fyrst til þess að geta VÖK Baths, sem hefur burði til að verða burðarás í margvíslegri tengdri uppbyggingu á svæðinu, skerðist stórlega. Það felur í sér gríðarlega neikvæð samfélagsleg áhrif. VÖK Baths hefur þegar gert áætlanir um mikla uppbyggingu í sínu næsta nágrenni á næstu árum. Það er augljóst, að það fjármagn sem fer til greiðslu hærri skatta leiðir fyrst til þess að slíkar hugmyndir eru slegnar af borðinu, áður en farið er í uppsagnir og lokanir. Þannig verður skattabreyting í Reykjavík að alvarlegu höggi á alla virðiskeðju feðraþjónustunnar hér á Austurlandi og er þess vegna mjög raunverulegt byggðamál. Ferðaþjónustan hefur á undanförnum árum aukið fjölbreytni atvinnulífs í Múlaþingi og á Austurlandi í heild. Hún hefur skapað störf fyrir heimafólk, laðað nýja íbúa að og bætt þjónustu sem heimafólk nýtur. Heilsársstarfsemi lykilfyrirtækja eins og Vök Baths er grundvöllur að því að sú þróun haldi áfram. Hærra verð þýðir að færri gestir ferðast lengra út á land Baðlón eru sterkir ferðamannaseglar. Þau geta ráðið því hvort gestur velur að koma á svæðið, hversu lengi hann dvelur og hve mikla aðra þjónustu hann kaupir á meðan. Sá sem kemur í Vök þarf oft gistingu, borðar á veitingastað, verslar og nýtir aðra afþreyingu sem þýðir að áhrifin og verðmætin hríslast um allt nærsamfélagið. Austurland glímir þegar við augljóst samkeppnisforskot höfuðborgarsvæðisins og Suðurlands þegar kemur að fjarlægð frá stærstu komugátt landsins. Gesturinn þarf að ferðast lengra og verja meiri tíma og peningum í að komast hingað. Reynsla síðustu ára sýnir að þegar Íslandsferðin verður dýrari hefur það áhrif á hversu langt frá höfuðborgarsvæðinu ferðamenn fara, þeir stytta ferðina, fara síður lengra frá höfuðborginni og minna út af hringveginum. Það er öfug þróun við þá sem stjórnvöld hafa sagst vilja sjá. Við viljum að ferðamenn dreifist um landið. Við viljum lengja ferðamannatímabilið. Við viljum að sterk fyrirtæki geti byggst upp utan höfuðborgarsvæðisins til að fleiri geti fengið heilsársstörf í heimabyggð. Það er lykillinn að því að byggja upp fjölbreytt atvinnulíf hér á svæðinu. En ef þetta á að geta gerst þarf rekstrarumhverfi fyrirtækjanna að styðja við þá þróun. Austurland skapar miklar útflutningstekjur fyrir þjóðarbúið en hefur lengi kallað eftir meiri fjárfestingu í samgöngum, fjarskiptum og annarri grunnþjónustu. Því miður höfum við nýlega séð í samgönguáætlun að áhersla stjórnvalda er alls ekki með okkur í liði þar. Ofan á þá stöðu bætist nú tillaga um skattahækkun sem leggst sérstaklega þungt á starfsemi hér á Austurlandi. Það er röng forgangsröðun. Vök Baths og önnur ferðaþjónustufyrirtæki á Austurlandi þurfa stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi til að geta fjárfest, ráðið fólk og byggt upp heilsársstarfsemi. Sveitarfélagið þarf öflug fyrirtæki sem skapa störf og þjónustu, fyrirtækin þurfa stöðugt rekstrarumhverfi sem hvetur til uppbyggingar og fjárfestinga, og íbúarnir þurfa samfélag þar sem heilsársstörf og uppbygging fjölbreyttar þjónustu skapa þeim aukin lífsgæði. Hækkun virðisaukaskatts á baðlón vinnur gegn þessu öllu. Höfundar eru sveitarstjóri Múlaþings og framkvæmdastjóri Vök Baths. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Múlaþing Mest lesið Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson Skoðun Heita stríðið Halldór Jörgen Olesen Skoðun Álagsstýring: Burðarþol er meira en tala Guðmundur Björnsson Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson Skoðun Skoppandi skrítlandi gervigreindartraust Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Skoppandi skrítlandi gervigreindartraust Kristján Logason skrifar Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson skrifar Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Álagsstýring: Burðarþol er meira en tala Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Heita stríðið Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Réttið upp hönd sem eruð á móti Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ríkið hefur gert sig að ritstjóra Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir skrifar Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar Skoðun Í hverju felst virðing fyrir lífinu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar Skoðun Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar
Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar
Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar