Innlent

Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil

Kjartan Kjartansson skrifar
Stuðlagil er vinsæll áfangastaður ferðamanna.
Stuðlagil er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Vísir

Allt tiltækt lið björgunarsveita á Austurlandi hefur verið kallað út vegna tilkynningar um að maður hafi fallið út í Jöklu í Stuðlagili. Þyrla Landhelgisgæslunnar á leið austur með straumvatnsbjörgunarmenn frá höfuðborgarsvæðinu.

Tilkynning um slysið barst um klukkan eitt, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúar Landsbjargar. Hann hafði ekki frekari upplýsingar um þann sem féll í ána aðrar en að hann væri fullorðinn einstaklingur.

Fyrstu björgunarsveitarmennirnir eru mættir á staðinn en fleiri eru á leiðinni af Austurlandi. Þyrla Landhelgisgæslunnar lagði af stað með straumvatnsbjörgunarmenn frá sveitum á höfuðborgarsvæðinu nú eftir klukkan tvö.

Stuðlagil hefur verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna á Austurlandi undanfarin ár. Erlend ferðakona á fertugsaldri lést þegar hún féll í ána í október árið 2024. Þremur og hálfu ári áður tókst nærstöddum að komu konu sem féll í klettum við gilið til bjargar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×