Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. ágúst 2026 13:10 Stefnt er á opnun á fimmtudag. Bónus Eldur kviknaði í verslun Bónuss á Egilsstöðum um helgina. Framkvæmdastjóri Bónuss segir það lán í óláni að eldurinn hafi ekki dreift sér um alla verslunina. Hann er þakklátur fyrir skjót viðbrögð slökkviliðs og starfsmanna.
Eldur kviknaði í verslun Bónuss á Egilsstöðum á laugardagsmorgun og er verslunin því lokuð vegna þessa. Austurfrétt greindi fyrst frá. Stefnt er á að opna aftur á fimmtudag. Þeir sem sækja búðina megi búast við því að einhverjar framkvæmdir verði enn í gangi. „Á laugardagsmorgun kemur upp eldur í einni kæliviftunni í mjólkurkælinum. Þetta var um klukkan korter yfir sjö um morguninn. Það voru komnir starfsmenn í húsið en það var aðili sem var að dreifa vörum sem tók eftir þessu,“ segir Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónuss. Starfsmennirnir fóru strax í að reyna að slökkva eldinn og höfðu samband við slökkviliðið sem var komið á vettvang á mettíma. „Slökkvilið var með ótrúlega snöggan viðbragðstíma og náði strax tökum,“ segir hann. „Það skiptir sköpum því þetta er fljótt að breiðast.“ Björgvin segist afar þakklátur fyrir skjót viðbrögð slökkviliðsins og starfsfólks verslunarinnar sem vinni nú hörðum höndum að því að þrífa og koma versluninni aftur í stand. „Þetta tekur á en það er mikil ánægja með þau.“
Slökkvilið Múlaþing Matvöruverslun Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Sjá meira