Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Smári Jökull Jónsson skrifar 16. ágúst 2026 15:36 Sigurgeir hafði synt í rúlmlega hálfan sólarhring þegar hann þurfti að hætta. Píeta Lagarfljótssundi sundkappans Sigurgeirs Svanbergssonar er lokið en Sigurgeir þurfti að hætta vegna meiðsla og var hann fluttur á sjúkrahús í kjölfar þess sem hann kom í land. Sundið er engu að síður Íslandsmet en enginn hefur synt samfellt jafn lengi.
Sigurgeir hafði ætlað sér að synda Lagarfljótið endilangt, alls fjörtíu kílómetra. Var þetta önnur tilraun hans en hann hafði reynt við sundið í júní en þurfti þá að hætta vegna ofkælingar. Sundið í dag gekk vel framan af en þegar hann var kominn framhjá brúnni að milli Egilsstaða og Fellabæjar þurfti hann að hætta vegna meiðsla. „Hann meiddist á hægri hendi síðasta klukkutímann áður en hann kom að brúnni. Það var farið að blæða töluvert úr henni og hann er kominn upp á heilsugæslu til að láta tékka á sér. Hann var fluttur með sjúkrabíl héðan frá Lagarfljótsbrúnni,“ segir Vigdís Diljá Óskarsdóttir sem er hluti af starfsliði Sigurgeirs austur á landi. „Þetta er náttúrulega ótrúleg þrekraun og hann er búinn að bæta Íslandsmetið yfir lengsta samfellda sundið, og allt fyrir Píeta samtökin.“ Á sundi í rúman hálfan sólarhring Hún segir að mikill fjöldi fólks hafi fylgst með þegar Sigurgeir kom að brúnni og honum hafi verið ákaft fagnað þegar hann synti undir brúnna og gekk síðan í land. „Þetta var mjög fallegt,“ segir Vigdís Diljá. Hún segist ekki telja að um alvarleg meiðsli sé að ræða. „Þetta var þannig að hann gat ekki haldið sundinu áfram en ég get ekki fullyrt um hversu alvarleg þau eru, það verður að koma í ljós eftir skoðun fagfólks.“ Sigurgeir var búinn að synda hátt í tuttugu kílómetra þegar hann þurfti að hætta. „Við fórum ofan í korter í tvö í nótt þannig að þetta er rúmur hálfur sólarhringur. Hann kom upp úr núna klukkan korter yfir þrjú.“ Vigdís Diljá vildi ekki tjá sig um hvort hann myndi gera þriðju tilraunina við að synda Lagarfljótið. „Sigurgeir er með ótrúlega skapgerð, hann er mjög jarðbundinn og ótrúlega kappsamur á sama tíma. Hann langaði að klára þetta en hann er líka mjög öryggismiðaður og var ekki tilbúinn að velta fyrir sér því sem honum þótti vera óþarfa áhyggjur. Hann var sjálfur búinn að tala um það að gera þetta ekki á einhverju egói, hann vildi gera þetta fyrir Píeta samtökin og gera þetta á öruggan hátt.“ Fréttin hefur verið uppfærð
Geðheilbrigði Sjósund Múlaþing Fljótsdalshreppur Tengdar fréttir „Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur“ Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi varð að ljúka sundi niður Lagarfljót snemma vegna ofkælingar en fljótið var kaldara en búist var við. Hann hóf sundið niður Lagarfljót um klukkan níu í gærkvöldi, mánudaginn 15. júní, en áætlað hafði verið að það tæki um sólarhring að synda þessa leið sem er um fimmtíu kílómetra löng. Tilgangurinn var að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt. 16. júní 2026 07:57 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
„Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur“ Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi varð að ljúka sundi niður Lagarfljót snemma vegna ofkælingar en fljótið var kaldara en búist var við. Hann hóf sundið niður Lagarfljót um klukkan níu í gærkvöldi, mánudaginn 15. júní, en áætlað hafði verið að það tæki um sólarhring að synda þessa leið sem er um fimmtíu kílómetra löng. Tilgangurinn var að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt. 16. júní 2026 07:57