

Menning
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.

„Þetta voru flottustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi“
„Þetta voru flottustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi“ segir Erpur Eyvindarson um 25 ára afmælistónleika XXX Rottweilerhunda sem haldnir voru í Laugardalshöll á föstudaginn. Uppselt var á tónleikana sem fóru fram úr öllum væntingum, samkvæmt Erpi.

Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi
Það iðar allt af lífi og fjöri á Akranesi þessa dagana þegar diskó er annars vegar því nemendur Brekkubæjarskóla eru að sýna söngleikinn „Diskóeyjan“ í Bíóhöllinni.

Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar
Sviðslistahúsið Afturámóti var stofnað af þremur vinum sem vantaði rými til þess að setja upp sínar eigin sýningar. Úrvalið var ekki ýkja mikið en þá fengu þeir flugu í hausinn.

Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum
Tónlistarmaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, eða Dr. Gunni eins og hann er ávallt kallaður, gaf út nýtt lag á væntanlegri plötu, sem ber nafnið Í bríaríi. Hann lýsir laginu sem gleðilegu sumarrokki en það fjallar um sanna atburði sem gerðust á Norðurlandi.

Heitustu trendin fyrir sumarið 2024
Sundlaugar landsins fyllast, umferðin minnkar og þegar að sólin lætur sjá sig færist bros yfir landsmenn. Sumarið er komið í allri sinni dýrð hérlendis óháð fjölbreyttu veðurfari og mismiklu sumarfríi. Þessi árstíð einkennist gjarnan af tilhlökkun og gleði en samhliða því þróast hin ýmsu sumartrend. Lífið á Vísi ræddi við fjölbreyttan hóp álitsgjafa um heitustu trendin í sumar, hvort sem það er í fjallgöngum, grillmat, hárgreiðslu eða öðru.

Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu
„Ég er sannarlega glaður hér í Þjóðleikhúsinu og nýt mín vel með mínu samstarfsfólki,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri, spurður að því hvort hann hyggist sækjast eftir því að sinna starfinu áfram eftir að skipunartíma hans lýkur í árslok.

Stóðu upp og klöppuðu í fimm mínútur fyrir Ljósbroti
Kvikmyndahúsagestir stóðu upp og klöppuðu í fimm mínútur í gærkvöldi þegar Ljósbrot, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, var frumsýnd á verðlaunahátíðinni í Cannes.

Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum
Leikonan Elín Sif Hall klæddist kjól frá franska hátískuhúsinu Chanel á rauða dreglinum á kvikmyndahátiðinni í Cannes í Frakklandi í gær. Kjóllinn er úr haust- og vetrarlínu Chanel og kostar á aðra milljón króna.

Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks
Iceland Airwaves hefur kynnt 22 nýja tónlistarmenn sem bætast við hóp þeirra flytjenda sem koma fram á tónlistarhátíðinni. Hátíðin fer fram 7.- 9. nóvember 2024 í miðbæ Reykjavíkur í 25. sinn.

Stjörnurnar vilja Spacey úr sjö ára útlegð
Hollywood stjörnur vilja að leikarinn Kevin Spacey fái að snúa aftur í bransann og leika að nýju eftir sjö ára útlegð, eins og því er lýst. Leikarinn hefur ekki leikið síðan árið 2017 þegar ungir menn í Bretlandi og í Bandaríkjunum stigu fram og hann var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þeim á barnsaldri en síðar sýknaður.

„Leikmyndin er auðvitað algjört rusl“
„Upp kom sú hugmynd að búa til viðburð sem væri frekar eins og leikhús heldur en ráðstefna,“ segir Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, listrænn stjórnandi frumkvöðlahátíðarinnar Iceland Innovation Week. Loftlagsleikhúsið Ok, Bye fer fram í dag en viðburðurinn er hluti af hátíðinni sem fer fram í Kolaportinu um þessar mundir.

Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar
Saknaðarilmur í sviðsetningu Þjóðleikhússins hlaut flestar tilnefningar til Grímuverðlauna ársins 2024.

Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi
„Þetta er alveg undarlega ugly,“ segir Arnar Eggert Thoroddsen, aðjúnkt í félagsfræði við Háskóla Íslands, um útistöður tveggja vinsælustu rappara heims Drake og Kendrick Lamar sem hafa verið að orðhöggvast sín á milli undanfarnar vikur.

Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús
Matthías Tryggvi Haraldsson, tónlistarmaður og leikari, hefur sett 328 fermetra einbýlishús við Furugerði 8 í Reykjavík á sölu. Um er að ræða hús á tveimur hæðum, sem skiptist í tvær íbúðir. Ásett verð er 220 milljónir. Matthías Tryggvi á húsið ásamt Ásdísi Olsen tengdamóður sinni og Bergþóru Sigurðardóttur, móðursystur Ásdísar.

Samstarf við landsbyggðina
Nú er í vinnslu hjá allsherjar- og menntamálanefnd frumvarp um Þjóðaróperu, eða í raun breyting á lögum um sviðslistir sem gerir með breytingunum ráð fyrir Þjóðaróperu.

Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni
Kanadíski hljómsveitarstjórinn og söngkonan Barbara Hannigan hefur verið ráðin aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún mun taka við stöðunni í ágúst 2026 og gegna henni í þrjú starfsár.

Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar
Bergur Þór Ingólfsson er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Hann tekur við af Mörtu Nordal sem hefur gegnt starfinu síðustu í sex árin.

Fundu föt við hæfi á síðustu stundu fyrir Cannes
Leikararnir Mikael Kaaber og Katla Njálsdóttir eru nýlent í Cannes í Frakklandi þar sem frægasta kvikmyndahátíð í heimi hefst í dag. Þau Mikael og Katla fara bæði með hlutverk í kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Ljósbrot sem í dag verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni og er ein af opnunarmyndum hennar.

Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær
Fyrsta opinbera málverkið af Karli III eftir að hann var krýndur konungur var afhjúpað í Buckingham-höll í gær. Verkið er eftir Jonathan Yeo og hlýtur að teljast fremur óhefðbundið, miðað við önnur verk af kóngafólki sem hangir í höllum og söfnum.

Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti
Menningar- og íþróttaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að hafinn verði undirbúningur að endurgerð gamla vatnspóstsins í Aðalstræti með það að markmiði að koma honum í viðunandi horf. Vatnspósturinn hefur drabbast verulega niður síðustu ár.

Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims
Magnús Scheving, höfundur Latabæjar, hefur eignast sjónvarpsþættina heimsfrægu á ný ásamt vörumerki og hugverkaréttindum. Magnús segir þættina tímalausa og enn eiga erindi.

Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin
Kanadíski smásagnahöfundurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin 92 ára að aldri. Rithöfundaferill hennar spannaði meira en sextíu ár.

Fyrsta kitlan úr annarri seríu Rings of Power
Fyrsta kitlan úr annarri seríu úr smiðju Amazon úr Lord of the Rings heiminum, Rings of Power, er kominn á netið. Þættirnir Rings of Power gerast þúsundum ára á undan sögunni um Frodo, Sam, Aragorn og félaga.

Sorgin allsráðandi í fyrstu stiklunni úr Ljósbrot
Fyrsta stiklan úr kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Ljósbrot er komin á netið. Myndin verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi á morgun og er ein af opnunarmyndum hennar.

Biggi Maus breiðir yfir Frikka Dór
Á miðnætti gefur Birgir Örn Steinarsson, sem starfar undir listamannanafninu Biggi Maus, út ábreiðu á lagi Friðriks Dórs 'I don't remember your name'. Lagið er nú kannski ekki á meðal þekktustu slagara Frikka en það kom upphaflega út á annarri breiðskífu hans Vélrænn árið 2012. Friðrik samdi lagið ásamt þeim Ólafi Arnalds og Janusi Rasmussen sem saman mynda raf-dúettinn Kiasmos.

Magnús eignast Latabæ á nýjan leik
Magnús Scheving hefur í gegnum fjárfestingarfélagið, LZT Holding ehf., náð samkomulagi við Warner Bros, Discovery, um kaup á öllum eignum LazyTown, eða Latabæ. Undir kaupin falla allir sjónvarpsþættir, vörumerki og hugverkaréttindi LazyTown, um heim allan.

„Þægileg blanda af von og trega“
„Þetta er svona lag þar sem bassalínan rífur í hálsmálið á þér og spyr spurninga. Þægileg blanda af von og trega,“ segir tónlistarmaðurinn Jónfrí um nýtt lag sem hann og Ólafur Bjarki voru að senda frá sér. Lagið heitir Gott og vel og voru þeir sömuleiðis að senda frá sér tónlistarmyndband sem er frumsýnt í spilaranum hér fyrir neðan.

Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra
Það virðist samhljóma álit söngvara, tónlistarfólks og annarra listamanna að stofnun Þjóðaróperu sé mikið framfaraskref í óperustarfsemi hérlendis.

Falleg tónlist GDRN hljómaði ekki nógu vel
Ég hitti mann nýlega sem kvartaði yfir því hve margar íslenskar söngkonur rauli. „Ekki Björk, sko – hún SYNGUR – en svo margar aðrar syngja bara í hálfum hljóðum. Það er varla að þær séu með raddbönd.“

Statham og Baltasar sameina krafta sína í væntanlegri hasarmynd
Leikarinn Jason Statham mun fara með aðalhlutverk í væntanlegri kvikmynd í leikstjórn Baltasars Kormáks. Myndina á að kynna á Cannes-kvikmyndamarkaðnum sem fer fram í þessari viku.