
Friederike Mayröcker er látin
Austurríski rithöfundurinn og ljóðskáldið Friederike Mayröcker er látin, 96 ára að aldri.
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.
Austurríski rithöfundurinn og ljóðskáldið Friederike Mayröcker er látin, 96 ára að aldri.
Í kjölfar stórkostlegar velgengni fyrstu útgáfu Global Music Match árið 2020 snýr samstarfsverkefnið aftur frá 7. júní en alls kemur 78 tónlistarfólk frá 17 löndum og fjórum heimsálfum til með að taka þátt.
Almar Blær Sigurjónsson leikari er kominn með samning við Þjóðleikhúsið. Almar er einn þeirra ungu leikara sem útskrifast á þessu vori frá sviðslistabraut Listaháskóla Íslands.
So Long Holly er fyrsta smáskífa af væntanlegri fyrstu breiðskífu Kig & Husk sem er skipuð Frank Hall og Höskuldi Ólafssyni. Frank er þekktur fyrir að hafa verið í hljómsveitinni Ske og Höskuldur var í Quarashi.
Miðstöð íslenskra bókmennta úthlutar fjórum Nýræktarstyrkjum í ár, hver þeirra er 500.000 krónur. Verkin sem hljóta viðurkenninguna nú eru tvær ljóðabækur og tvær skáldsögur.
Myndin Saumaklúbburinn er komin í bíó. Sindri Sindrason hitti aðalleikonur myndarinnar í drykk og ræddi um karakterana og gerð myndarinnar.
Ekkert lát er á vinsældum hljómsveitarinnar Måneskin sem kom, sá og sigraði Eurovision þann 22. maí síðastliðinn. Sigurlagið hefur rokið upp vinsældalista um allan heim.
Tónlistarkonan Greta Salóme gefur í dag út lagið Svartur Hrafn. Myndbandið er frumsýnt hér á Vísi og hægt er að sjá á það í spilaranum hér fyrir neðan. Lagið Svartur hrafn kemur svo formlega út á Spotify á miðnætti.
Dýrið eftir Valdimar Jóhannsson hefur verið valin til þátttöku í Un Certain Regard keppni, sem er hluti af aðaldagskrá alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Cannes, sem fer fram dagana 6. - 17. júlí. Frá þessu er greint á vef Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Bæjarlistamenn Garðabæjar 2021 eru leikarahjónin Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors en þeim vour veitt verðlaunin við hátíðlega athöfn í gær. Styrkupphæð bæjarlistamanns er 1,5 milljón króna.
Söngvarinn Friðrik Dór Jónsson kynnti lagið Hvílíkur dagur í Brennslunni í dag. Lagið var frumflutt í þættinum og kemur á allar streymisveitur á morgun en það er Pálmi Ragnar sem gerði lagið með Frikka.
Söngkonan Billie Eilish gaf í gær út lagið Lost Cause. Í tónlistarmyndbandinu dansar hún í heimahúsi með nokkrum vinkonum.
Nýmóðins og óhefðbundið geimkapphlaup virðist vera hafið milli Rússlands og Bandaríkjanna. Á árum áður kepptu Rússar og Bandaríkjamenn um það að verða fyrstir til að senda gervihnött á braut um jörðu, menn á braut um jörðu og jafnvel menn til tunglsins. Að þessu sinni er hins vegar keppt um að taka upp kvikmynd í geimnum.
Stuðmenn, ásamt Ragnhildi Gísladóttur, munu stíga stokk á Bræðslunni í sumar. Bræðslan féll niður síðasta sumar vegna kórónuveirufaraldursins en hátíðin í sumar verður sú sextánda sem haldin er á Borgarfirði eystra.
Vinirnir Jón Arnór Pétursson og Baldur Björn Arnarsson voru að senda frá sér lagið, Alla leið. Þeir eru 13 og 14 ára gamlir og sömdu lagið og textann sjálfir.
Jóhanna Vigdís Arnardóttir, betur þekkt sem Hansa, var að gefa út lag með hljómlistahópnum Veitunni. Laginu Það sem gera þarf fyrir líka skemmtilegt myndband þar sem koma fyrir mörg kunnuleg andlit.
„Hann mætir og byrjar að taka í höndina á öllum og ég er síðastur í röðinni. Þarna er maður nýbúinn að hlusta á þjóðsönginn og hann kemur til mín, hikar aðeins og segir svo: Good Luck.“ Þetta segir körfuboltamaðurinn Kristófer Acox þegar hann rifjar upp eftirminnilegt atvik með forseta Íslands á undankeppni EM í körfubolta.
„Þetta er ótrúlega súrrealískt allt,“ segir Árný Margrét Sævarsdóttir, ung tónlistarkona frá Ísafirði sem er að fá ótrúleg viðbrögð við tónlistarflutningi sínum og frumsamdri tónlist. Hún er intróvert en segist vera að venjast athyglinni og þessu skemmtilega ævintýri.
Bandaríski rapparinn Deshawn Robertson, betur þekktur undir listamannsnafninu Lil Loaded, er látinn, tvítugur að aldri.
Mótettukórinn og stjórnandi hans kvöddu Hallgrímskirkju á táknrænan hátt eftir 39 ára starf í kvöld. Stjórnandinn, sem verið hefur kantor og organisti í kirkjunni, hætti störfum í dag vegna deilna vil sóknarnefnd kirkjunnar.
Menningarþátturinn Víðsjá hófst á óvenjulegum nótum í dag, á pistli annars umsjónarmanns sem bað rithöfundinn Hallgrím Helgason afsökunar.
Í gær var lokakvöld Stockfish kvikmyndahátíðarinnar í Bíó Paradís og sigurvegari í stuttmyndasamkeppninni Sprettfiskurinn kynntur. Myndin Kitchen By Measure/Eldhús eftir máli var valinn sigurvegari keppninnar.
„Ég er náttúrulega frekar ný í þessum leik þannig margt er að koma á óvart. Það sem kemur alltaf hvað mest á óvart er hvað það leynast margir laumumeistarar út um allt,“ segir Birna Másdóttir um nýjustu þáttaröðina af GYM sem nú eru í sýningu.
Söngkonan Elísabet Ormslev tilkynnti um helgina að hún á von á barni með kærasta sínum Sindra Kárasyni.
Önnur breiðskífa Hipsumhaps er komin út ber heitið Lög síns tíma. Um er að ræða samtímaverk sem að hefur verið í vinnslu frá því að samkomubannið var sett á í mars á síðasta ári
Hljómsveitin Ólafur Kram, sem sigraði Músíktilraunir í gær, leggur mikið upp úr textagerð og hefur gjarnan þann háttinn á lagasmíðinni að semja textann fyrst og síðan hljóðheim í kring um hann. Tveir meðlimir hljómsveitarinnar voru enn að ná sér niður úr sigurvímunni þegar Vísir náði tali af þeim í dag.
Hljómsveitin Ólafur Kram bar sigur úr bítum í Músíktilraunum, sem fór fram í Hörpu í gær. Tólf hljómsveitir tóku þátt í keppninni og eftir æsispennandi úrslitakvöld var niðurstaða dómnefndar og símakosninga kynnt.
Skáldsaga Þóru Hjörleifsdóttur, Kvika, er ein 36 skáldsagna sem þú verður að lesa í sumar að mati bandaríska fjölmiðilsins Time Magazine. Þar fjallar miðillinn um bækur sem koma út í Bandaríkjunum í sumar og er íslenska höfundinum þar gert hátt undir höfði.
Margverðlaunaði tónlistarmaðurinn B.J. Thomas er dáinn, 78 ára að aldri. Thomas lést eftir að hafa glímt við alvarlegt lungnakrabbamein í nokkra mánuði.
Tónlistarmaðurinn Teitur Magnússon gaf á föstudag út myndband við lagið Háfjöllin. Lagið er fjórða lagið sem Teitur gefur út af þriðju breiðskífu sinni, sem væntanleg er í haust.