

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Pantaði mat á veitingastað og gat ekki borgað
Karlmaður pantaði mat á veitingastað í miðborg Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan 23 í gærkvöldi en þegar rukka átti manninn gat hann ekki borgað fyrir veitingarnar. Lögregla var kölluð á staðinn og leysti úr málinu.

Þykir leitt að saklaus drengur hafi dregist inn í aðgerðir lögreglu
Embætti ríkislögreglustjóra þykir leitt að drengur, sem hafði ekkert unnið sér til sakar, hafi dregist inn í aðgerðir lögreglu í tengslum við leitina að Gabríel Douane Boama.

Burðardýr hætt komið og gekkst undir aðgerð
Karlmaður um þrítugt var hætt kominn um páskana eftir að hafa reynt að flytja þrjátíu pakkningar af kókaíni til landsins innvortis. Framkvæma þurfti á honum aðgerð á Landspítalanum til bjarga lífi hans.

Leitin að Gabríel stendur enn yfir: „Við erum búin að fara út um allan bæ“
Lögregla leitar enn að hinum tvítuga Gabríel Douane Boama, sem slapp úr haldi lögreglu í gær. Verið er að kanna allar ábendingar um hvar hann gæti verið. Sérsveitarmenn fóru meðal annars inn í strætisvagn við leitina en Gabríel reyndist ekki þar.

Kristján Einar sá sem handtekinn var á Spáni
Íslenski karlmaðurinn sem er í haldi lögreglunnar á Spáni eftir að hafa verið handtekinn þar í mars er Kristján Einar Sigurbjörnsson, áhrifavaldur og sjómaður. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Átta ára fangelsi fyrir skotárás á Egilsstöðum
Árnmar Jóhannes Guðmundsson hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi, meðal annars fyrir tilraun til manndráps, eftir skotárás á Egilsstöðum í ágúst í fyrra. Hann var skotinn af lögregluþjóni eftir að hafa farið vopnaður skammbyssu og haglabyssu að húsi barnsföður kærustu sinnar, þar sem hann beindi byssu að tveimur sonum hans.

Páll skorar á strokufangann að gefa sig fram
Páll Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar og sálfræðingar stofnunar hafa þungar áhyggjur af því hverjar afleiðingar stroks ungs fanga geti orðið og biðla til hans að gefa sig fram.

Leit að Gabríel tekin alvarlega og helst leitað í heimahúsum
Lögregla leitar enn að fanganum sem slapp úr haldi við Héraðsdóm Reykjavíkur í gær þar sem mál hans var til meðferðar. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir mikla áherslu lagða á að finna manninn.

Stefnt að því að hífa TF-ABB af botni Þingvallavatns á föstudaginn
Stefnt er að því að hífa flugvélina TF-ABB af botni Ölfusvatnsvíkur í Þingvallavatni næstkomandi föstudag. Fjórir karlmenn létust eftir slysið varð þann 3. febrúar síðastliðinn.

Strokufanginn ófundinn: Ákærður fyrir rán við Kjarvalsstaði
Gabríel Douane Boama, sá sem slapp úr haldi lögreglu við Héraðsdóm Reykjavíkur í gær, er ófundinn. Hann er ákærður fyrir rán við Kjarvalsstaði síðastliðið sumar. Aðalmeðferð málsins fór fram í gær.

Hefur kært styttustuldinn til lögreglu
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, hefur kært stuldinn á bronsstyttunni af Guðríði Þorbjarnardóttur á Laugarbrekku á Snæfellsnesi til lögreglu.

Hópur drengja réðst á annan dreng
Hópur fimmtán ára drengja réðst á dreng á sama aldursári í Grafarvogi í Reykjavík í gær.

Vaknaði við sprengingar í bílskúr
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað til í nótt vegna elds sem kom upp í bílskúr í Stóragerði í Reykjavík í nótt.

Vertíð hjá dekkjaverkstæðum sem ná illa utan um aðsóknina
80 þúsund krónu sekt fyrir þá sem slugsa við að skipta út nagladekkjunum. Þeir eru margir í ár og komast varla að á dekkjaverkstæðum á næstu dögum. Lögregla sýnir málinu skilning og bíður með sektirnar í bili.

Lögreglan lýsir eftir manninum sem strauk úr héraðsdómi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Gabríel Douane Boama, tuttugu ára gömlum karlmanni, sem strauk úr haldi lögreglu við Héraðsdóm Reykjavíkur í dag. Mál hans var til meðferðar þegar hann flúði en hann er hvattur til að gefa sig strax fram.

Leita að gæsluvarðhaldsfanga sem slapp úr haldi lögreglu
Yfirvöld leita nú að Gabríel Douane Boama, tvítugum gæsluvarðhaldsfanga sem slapp úr haldi lögreglu við Héraðsdóm Reykjavíkur um sjö leytið dag. Lögregla hefur lýst eftir honum og segir mikilvægt að hann finnist sem fyrst.

Rannsókn lögreglu á máli hjúkrunarfræðingsins lokið
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti sem varð á geðdeild Landspítalans í ágúst síðastliðnum, þar sem hjúkrunarfræðingur er grunaður um að hafa orðið sjúklingi að bana, er lokið.

Ók á 146 kílómetra hraða í Hafnarfirði
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi ökumann fyrir hraðakstur eftir að hann var mældur á 146 kílómetra hraða í Hafnarfirði, á vegi þar sem hámarkshraði er áttatíu. Ökumaðurinn var sektaður.

Maðurinn fannst og aðgerðir afturkallaðar
Mikill viðbúnaður var við Eiðisgranda vegna tilkynningar um að mann í sjónum á sjötta tímanum í dag. Allt tiltækt lið lögreglu og slökkviliðs var kallað út en þeir afturkallaðir upp úr klukkan sex. Maðurinn hafði þá komið sér upp úr af sjálfsdáðum.

Hljóp frá lögreglunni og út í sjó
Kalrmaður var handtekinn rétt eftir klukkan fjögur í nótt grunaður um líkamsárás. Þegar lögregla kom á staðinn reyndi maðurinn að flýja og hljóp rakleiðis út í sjó.

Sagðist hafa fengið flösku í höfuðið
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði ýmis horn að líta í gærkvöldi og í nótt, þar á meðal vegna slagsmála í miðborginni.

Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna stunguárásarinnar
Einn hefur verið úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald vegna stunguárásar við skemmtistaðinn Prikið í miðbæ Reykjavíkur í gær. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar deildar lögreglu, í samtali við fréttastofu.

Leituðu að tveimur kylfumönnum eftir tilkynningu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði til skamms tíma í nótt að tveimur kylfumönnum eftir að tilkynning barst um að þeir væru á ferðinni í vesturhluta borgarinnar.

Dyraverðir hafi brugðist hárrétt við
Eigandi skemmtistaðarins Priksins, þar sem átök brutust út í nótt sem lauk með lífshættulegri stunguárás, segir dyraverði hafa brugðist hárrétt við. Rekstraraðilar fylgist náið með því hvort ofbeldi á skemmtistöðum færist í aukana en mánuður er nú frá annarri alvarlegri stunguárás í miðbænum.

Karlmaður um tvítugt með lífshættulega áverka eftir stunguárás
Karlmaður um tvítugt særðist lífshættulega í stunguárás í Ingólfsstræti í nótt og gekkst undir aðgerð á Landspítala. Tengsl eru á milli hans og tveggja sakborninga, sem handteknir voru eftir lögregluleit.

Fáklæddur maður hafði í hótunum við ungar stúlkur
Karlmaður á stuttbuxum einum klæða var handtekinn á Seltjarnarnesi á fimmta tímanum síðdegis í gær. Hann hafði haft í hótunum við ungar stúlkur.

Stunguárás í miðbænum í nótt
Tveir karlmenn voru handteknir á fimmta tímanum í nótt eftir að hafa stungið mann með eggvopni fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur í nótt.

„Ekki hægt að kalla neitt annað en einelti“
Varðskipið Þór stöðvaði í morgun skipið Amelía Rose, sem er í eigu Sea Trips Reykjavík, þegar það var að sigla með ferðamenn í hvalaskoðun. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar komu um borð í Amelíu Rose, tóku yfir stjórn skipsins og sigldu henni í land. Þegar þangað kom tóku lögreglumenn á móti farþegum og töldu upp úr skipinu.

Fleiri með réttarstöðu sakbornings
Fleiri en þrír eru með réttarstöðu sakbornings í tengslum við rannsókn héraðssaksóknara á máli tengt Innheimtustofnun sveitarfélaga eru með réttarstöðu sakbornings. Þrír voru handteknir vegna málsins á dögunum.

Mætti í annarlegu ástandi með boga og örvar í verslun
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af manni í annarlegu ástandi sem mætti með boga og örvar í matvöruverslun í hverfi 109 í Reykjavík.