Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 11. október 2026 20:55 S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn. Suðurnesjabær Samfylkingin og Framsókn hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sprakk á sunnudaginn síðastliðinn eftir fjögurra mánaða samstarf.
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samstarfið hafi verið undirritað í kvöld og byggi á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrga fjármálastjórn, öfluga þjónustu við íbúa, uppbyggingu innviða og áframhaldandi framfarir í sveitarfélaginu. Svavar Grétarsson, oddviti S-lista Samfylkingar og óháðra, verði áfram formaður bæjarráðs og Anton Kristinn Guðmundsson, oddviti B-lista Framsóknar og óháðra, verði forseti bæjarstjórnar. Alexandra Jóhannsdóttir muni áfram gegna embætti bæjarstjóra Suðurnesjabæjar en hún var ráðin af fyrri meirihluta sem ópólitískur bæjarstjóri. Málefnasamningur flokkanna verði kynntur á bæjarstjórnarfundi á þriðjudaginn næstkomandi. Trúnaðarbrestur og vallarmál sprengdu fyrri meirihluta Meirihluti Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sprakk fyrir viku síðan, meðal annars vegna ágreinings um staðsetningu íþróttavalla í sveitarfélaginu, sem samanstendur af tveimur bæjum, Garði og Sandgerði. „Undanfarnir dagar hafa einkennst af pólitískri óvissu í Suðurnesjabæ. Með myndun nýs meirihluta vilja flokkarnir tryggja stöðugleika í stjórn sveitarfélagsins og skapa traustan grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu,“ segir í tilkynningu nýs meirihluta. Meðal þess sem lögð verði áhersla á sé ábyrgur rekstur, uppbygging íþróttamannvirkja, skóla- og leikskólamál og bættar samgöngur. Anton Kristinn Guðmundson, oddviti B-lista Framsóknar og óháðra, og Svavar Grétarsson, oddviti S-lista Samfylkingar og óháðra.Suðurnesjabær Samstarfið byggi á trausti, virðingu og sameiginlegri sýn á að hagsmunir íbúa Suðurnesjabæjar séu í fyrirrúmi. Flokkarnir vilji leggja áherslu á gott samstarf allra kjörinna fulltrúa óháð pólitískum skoðunum og að ágreiningur um einstök málefni megi ekki standa í vegi fyrir framgangi mikilvægra verkefna. Fréttin hefur verið uppfærð.
Suðurnesjabær Sveitarstjórnarmál Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Sjá meira