
Stefna á að geta fargað þremur milljónum tonna af koltvísýringi á ári
Íslenska kolefnisbindifyrirtækið Carbfix hefur fengið sextán milljarða króna styrk úr nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins. Fjármununum verður varið í uppbyggingu stöðvar sem mun taka á móti og farga koltvísýringi frá öðru löndum. Stefnt er að því að stöðin nái fullum afköstum eftir tíu ár.