
Hrannar: „Mér er drull, svona er ég“
Stjarnan er úr leik í Powerade bikarnum eftir að hafa tapað gegn Val í undanúrslitum í Laugardalshöll í kvöld. Lokatölur 26-32 í leik þar sem Stjarnan átti á brattann að sækja stærstan hluta leiksins.
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.
Stjarnan er úr leik í Powerade bikarnum eftir að hafa tapað gegn Val í undanúrslitum í Laugardalshöll í kvöld. Lokatölur 26-32 í leik þar sem Stjarnan átti á brattann að sækja stærstan hluta leiksins.
Haukur Þrastarson var í liði Kielce í kvöld þegar pólska liðið gerði jafntefli við Aalborg í Danmörku, 35-35, í lokaumferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í handbolta.
Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV, gat leyft sér að fagna í leikslok eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitum Powerade-bikars karla í handbolta með sex marka sigri gegn Haukum í kvöld, 33-27.
Ásgeir Örn Hallgrímsson, þjálfari Hauka, var eðlilega súr og svekktur eftir að lið hans féll úr leik í undanúrslitum Powerade-bikars karla í handbolta eftir sex marka tap gegn Haukum í kvöld, 33-27.
„Mér fannst við bara drulluflottir,“ sagði Arnór Viðarsson, leikmaður ÍBV, eftir að liðið tryggði sér sæti í bikarúrslitum karla í handbolta með sex marka sigri gegn Haukum í undanúrslitum í kvöld.
Íslandsmeistarar ÍBV tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitum Powerade-bikars karla í handbolta með sex marka sigri gegn Haukum, 33-27.
Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson átti frábæran leik fyrir Kolstad þegar norska liðið kvaddi Meistaradeild Evrópu þetta árið með öruggum sigri á Pelister, 34-27.
Valur mætir Stjörnunni í einum af tveimur undanúrslitaleikjum Powerade bikarsins í handbolta í Laugardalshöll í kvöld. Undanúrslitin leggjast vel í Óskar Bjarna Óskarsson, þjálfara Vals sem segir alltaf jafn mikil forréttindi að taka þátt í bikarhátíðinni. Þá hrósar hann HSÍ fyrir einstaklega góða umgjörð í kringum úrslitaleiki yngri flokka.
Alfreð Gíslason er í heldur sérstakri stöðu vegna klásúlu í nýjum samningi hans við þýska handknattleikssambandið. Hann vonast til að ljúka þessum kafla með liðinu á HM á heimavelli árið 2027.
Kadetten Schaffhausen mátti þola þriggja marka tap gegn Vojvodina í Evrópudeild karla í handbolta. Lokatölur 24-21 en Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði þriðjung marka sinna manna í kvöld.
Orri Freyr Þorkelsson sem spilaði sinn þátt í góðum sigri Sporting þegar liðið tryggði sér sigur í milliriðli sínum í Evrópudeild karla í handbolta. Teitur Örn Einarsson skilaði einnig sínu þegar Flensburg vann stórsigur á Bjerringbro-Silkeborg.
Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson varð að hætta við þátttöku í vináttulandsleikjunum við Grikkland síðar í þessum mánuði, vegna meiðsla í olnboga.
Dagur Sigurðsson hefur nú valið sinn fyrsta landsliðshóp sem þjálfari króatíska landsliðsins í handbolta. Mesta athygli vekur að hann skyldi ekki velja eina stærstu stjörnuna, Luka Cindric, í 21 manns hóp sem á að tryggja Króatíu sæti á Ólympíuleikunum.
Ein af helstu stjörnum norska kvennalandsliðsins í handbolta, Nora Mörk, leyndi því fyrir þjálfaranum Þóri Hergeirssyni hve alvarleg meiðsli hennar væru, á HM í desember. Þau eru sammála um skort á heiðarleika af hennar hálfu.
Hornamaðurinn og fyrrverandi landsliðsmaðurinn Oddur Gretarsson snýr aftur heim til Þórs á Akureyri næsta sumar og mun spila með liðinu á næstu leiktíð.
Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður Nantes í Frakklandi, hefur dregið sig út úr íslenska landsliðshópnum í handbolta vegna meiðsla.
Íslenski landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon fór illa með vítin á EM í Þýskalandi en hann hefur skorað úr flestum vítum allra í þýsku deildinni
Íslenski landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson var besta hægri skyttan í bestu deild í heimi í öðrum mánuði ársins.
Þýska handknattleikssambandið tilkynnti í dag um nýjan samning við Alfreð Gíslason sem verður áfram þjálfari þýska karlalandsliðsins út febrúar 2027.
Japanska handknattleikssambandið virðist hafa fundið þjálfara til að fylla í skarðið sem Dagur Sigurðsson skildi eftir sig þegar hann tók við landsliði Króatíu.
Dagur Sigurðsson segir að forráðamenn japanska handknattleikssambandsins hafi fengið áfall þegar hann tilkynnti þeim að hann ætlaði sér að færa sig um set og taka við króatíska landsliðinu.
Viggó Kristjánsson var frábær þegar Leipzig lagði Melsungen í þýsku úrvalsdeild karla í handbolta í dag. Elvar Örn Jónsson var magnaður í liði Melsungen en það dugði skammt í dag.
Magdeburg vann Gummersbach með átta marka mun í uppgjöri Íslendingaliðanna í þýska handboltanum. Lokatölur kvöldsins 38-30 Magdeburg í vil. Þá var Stiven Tobar Valencia markahæstur í sigri Benfica.
Síðustu tveir leikir 18. umferðar í Olís deild karla fóru fram í dag. FH vann eins marks sigur á Stjörnunni, 32-31, og Víkingur vann Fram 32-29.
Byrjun Íslands var frábær þar sem liðið skoraði fyrstu fjögur mörkin. Svíar létu það ekki slá sig út af laginu og rúlluðu yfir íslenska liðið það sem eftir var leiks. Leikurinn endaði með fjórtán marka tapi 37-23.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir ógnarsterku liði Svíþjóðar á útivelli í undankeppni EM 2024 í dag. Fyrri leik liðanna lauk með þrettán marka sigri Svía, sem hafa yfir að skipa einu besta landsliði í heimi. Þetta eru hins vegar leikirnir sem íslenska liðið vill fá, segir Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari Íslands. Liðið þurfi að ná fram sínum besta leik í dag til þess að hann nýtist okkur í framhaldinu.
Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, útskrifaðist á dögunum úr námi í þroskaþjálfafræði við Háskóla Íslands.
Tveir leikir fóru fram í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Selfoss vann gríðarlega mikilvægan sigur á HK í botnbaráttuslag. Þá vann KA fjögurra marka sigur á Gróttu, lokatölur 32-28.
Viggó Kristjánsson átti stórkostlegan leik þegar Leipzig vann stórsigur á Bergischer, 33-22, í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Andri Már Rúnarsson skoraði samt líklega flottasta mark leiksins.
Ekki eru allir jafnhrifnir af komu Dags Sigurðssonar inn í króatískan handbolta en hann er fyrsti erlendi þjálfarinn til að taka við stjórn króatíska landsliðsins, sem um árabil var eitt það allra besta í heimi.