Handbolti

Sigur hjá Kol­stad í fyrsta leik úr­slitanna

Smári Jökull Jónsson skrifar
Sigvaldi Björn í leik með Kolstad.
Sigvaldi Björn í leik með Kolstad. Vísir/Getty

Íslendingaliðið Kolstad vann í dag sigur á Elverum í fyrsta úrslitaleik liðanna um norska meistaratitilinn í handbolta. Fjórir Íslendingar komu við sögu hjá Kolstad í leiknum.

Kolstad og Elverum hafa verið sterkustu liðin í norsku deildinni síðustu árin og enduðu í tveimur efstu sætunum að lokinni deildakeppni. Fyrsti leikur úrslitanna fór fram á heimavelli Elverum en tvo leiki þarf til að vinna titilinn.

Gestirnir frá Kolstad náðu frumkvæðinu strax í upphafi. Þeir komust í 6-3 og náðu mest fimm marka forskoti í fyrri hálfleiknum í stöðunni 10-5. Heimalið Elverum skoraði þó síðustu tvö mörk fyrri hálfleiks og sá til þess að þremur mörkum munaði í hálfleik, staðan þá 17-14.

Gestirnir fóru hins vegar langt með að tryggja sigurinn strax í upphafi síðari hálfleiks. Þeir hófu hálfleikinn á 6-1 áhlaupi og munurinn skyndilega orðinn átta mörk. Heimaliðið náði lítið sem ekkert að minnka muninn eftir þetta og leiknum lauk með sex marka sigri Kolstad, lokatölur 31-25.

Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði þrjú mörk fyrir Kolstad í leiknum og Sveinn Jóhannsson eitt. Bræðurnir Arnór Snær og Benedikt Gunnar Óskarssynir komu einnig við sögu hjá gestunum en komust ekki á blað.

Liðin mætast næst í Kolstad á miðvikudag og þar getur Kolstad tryggt sér titilinn.

Elliði magnaður í sigri Gummersbach

Elliði Snær Viðarsson skoraði sjö mörk fyrir Gummersbach sem vann 34-30 sigur á Eisenach á útivelli. Elliði var næstmarkahæstur í liði gestanna en Teitur Örn Einarsson átti sömuleiðis fínan leik og bætti fjórum íslenskum mörkum í sarpinn.

Eftir sigurinn er Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, í 9. sæti deildarinnar þegar liðið á fimm leiki eftir óspilaða.

Þá skoraði Viggó Kristjánsson níu mörk og var markahæstur í liði Erlangen sem vann 30-27 sigur á Stuttgart. Með sigrinum jafnaði Erlangen lið Stuttgart að stigum og lyfti sér upp úr fallsæti.

Fyrir neðan Erlangen í töflunni eru lið Bietigheim og Potsdam sem bæði eiga leiki til góða og fallhættan vofir því enn yfir Viggó og félögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×