

Fréttir af flugi
Allt það helsta sem viðkemur flugi.

Óttast að Sjálfstæðismenn láti sína villtustu drauma rætast
Formaður Samfylkingarinnar óttast að kreppuástand verði nýtt til sölu ríkiseigna og segir Keflavíkurflugvöll eiga að vera í höndum ríkisins. Viðskiptaráð telur að fara eigi að tillögum OECD og selja völlinn.

Bréf í Icelandair hækkað um rúmlega þriðjung frá útboði
Verð á hlutabréfum í Icelandair hækkuðu í dag, þriðja daginn í röð, og er það nú um 37% hærra en í hlutafjárútboði sem var haldið fyrr í haust. Hækkunin kemur í kjölfar frétta af því að bóluefni gegn nýju afbrigði kórónuveiru sem lyfjarisinn Pfizer er með í þróun virðist ætla að gefa góða raun.

Vegagerðin samdi við Norlandair og Erni um flugleiðir
Flugfélögin Ernir og Norlandair munu sinna áætlunarflugi til Gjögurs, Bíldudals og Hafnar í Hornafirði samkvæmt samningi við Vegagerðina. Útboð á flugleiðunum var kært í tvígang.

Skoða þarf hvort málefnalegar ástæður séu fyrir lögverndun starfsgreina
Íslendingar lögvernda flestar starfsgreinar allra Evrópuríka og ekkert rekstrarfélag flugvalla í álfunni er rekið með óhagstæðari hætti en Isavia, að mati skýrsluhöfunda Efnahags og framfarastofnunar Evrópu. OECD segir þetta koma illa niður á neytendum og gerir yfir fjögur hundruð úrbótatillögur á íslenskum reglum.

OECD gerir hátt í 700 athugasemdir við „flóknar“ íslenskar reglur
Greining OECD á 632 lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem gilda um ferðaþjónustu og byggingariðnað hér á landi leiddi í ljós 676 mögulegar samkeppnishindranir í regluverkinu.

Stjórnvöld skoða að afnema gjaldtöku fyrir skimun á landamærum
Til skoðunar er að afnema gjaldtöku fyrir skimun á landamærunum að sögn forsætisráðherra. Hún segir ríkisstjórnina telja mikilvægt að fólk geti valið á milli sóttkvíar eða skimunar.

Bóluefnisbylgja skekur hlutabréfamarkaði
Markaðir um allan heim hafa tekið kipp í dag eftir að fregnir bárust af „þáttaskilum“ í þróun á kórónuveirubóluefni lyfjafyrirtækjanna Pfizer og BioNTech.

Norwegian fær ekki frekari aðstoð frá norska ríkinu
Norska ríkið hefur hafnað nýjustu umleitunum flugfélagsins um aðstoð.

Leggur það líklega til að tvöföld skimun á landamærum verði skylda
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, mun sennilega leggja það til við Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, að tvöföld skimun á landamærunum fyrir kórónuveirunni verði gerð að skyldu fyrir alla farþega en ekki vali líkt og nú er.

Hver er flugáætlun framtíðarinnar?
Það er átakalegt að fylgjast með hve grátt COVID -19 leikur flugheiminn. Þúsundir flugmanna eru án atvinnu og margir þeirra eru í verulega slæmri stöðu, með miklar skuldir á bakinu og jafnvel litla reynslu. Það er ljóst að einhver bið verður á að allur þessi fjöldi komist aftur í flugstjórnarklefann.

Hundruð hermanna á hótelum í Reykjanesbæ
Umfangsmikilli loftrýmisgæslu bandaríska flughersins er nýlokið en flugsveitin hafði aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Þá fara nú fram áhafnaskipti hjá kafbátaleitarsveit bandaríska sjóhersins.

Mom Air, gjörningur eða nýtt flugfélag?
Fjölmiðlum barst í dag tilkynning um yfirvofandi stofnun nýs íslensks lággjaldaflugfélags sem ber nafnið Mom Air. En er þetta alvara, eða kannski gjörningur?

Katrín segir nýja herstöð ekki koma til greina
Forsætisráðherra segir hugmyndir um varanlega viðveru Bandaríkjahers hér á landi og eða nýja herstöð á Austurlandi ekki hafa verið ámálgaðar við íslensk stjórnvöld. Þær komi heldur ekki til greina að hennar hálfu og þyrfti að ræða fyrir opnum tjöldum á Alþingi kæmu þær formlega fram.

„Vel til fundið“ hjá flughernum að nefna flugvél eftir Reykjavík
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir það „sérlega vel til fundið“ hjá breska flughernum að nefna nýja eftirlitsflugvél sína eftir Reykjavík.

Bresk eftirlitsflugvél nefnd Andi Reykjavíkur
Ný eftirlitsflugvél konunglega breska flughersins hefur verið nefnd Andi Reykjavíkur, eða Spirit of Reykjavík. Vélin er af gerðinni Poseidon MRA 1.

Stjórnendur Icelandair geti verið í golfi til 2022
Mikil áhætta felst í því að fjárfesta í Icelandair þessi misserin og gera má ráð fyrir að lítið verði að gera í flugrekstri til loka árs 2021, að sögn greinanda hjá Jakobsson Capital.

Sameinast um þróun fjölnota 2ja-hreyfla rafmagnsflugvélar
Ítalski flugvélaframleiðandinn Tecnam og breski hreyflaframleiðandinn Rolls Royce hafa tekið höndum saman um að þróa tveggja hreyfla rafmagnsflugvél. Þau stefna að því að verða fyrst til að koma rafmagnsflugvél af þessari stærð á markað.

Upprisa WOW air
Fjórar bekkjarsystur á níunda ári í Melaskóla í Vesturbæ Reykjavíkur vöktu athygli á flakki sínu um hverfið og víðar í dag. Segja má að búningar þeirra Bergrúnar, Rósu, Sigríðar Íseyjar og Vigdísar hafi slegið í gegn.

Aðmírállinn skoðaði öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli
Hann fékk leiðsögn frá Georg Lárussyni, forstjóra Landhelgisgæslunnar, en Landhelgisgæslan rekur öryggissvæðið.

Aðmíráll viðrar hugmynd um sveit bandarískra kafbátarleitarflugvéla á Íslandi
Bandarískur aðmíráll viðrar möguleika á að staðsetja kafbátaleitarflugsveit á Íslandi til þess að fylgjast með vaxandi umsvifum rússneskra kafbáta í Norður-Atlantshafi og hugsanlega koma að hafnarframkvæmdum fyrir leit og björgun á Austurlandi.

Mistök og hneyksli varpa skugga á opnun nýs alþjóðaflugvallar í Berlín
Þegar hafa verið gerðar sjö misheppnaðar tilraunir til að taka völlinn í notkun en saga flugvallarins þykir einkennast af ítrekuðum mistökum og klúðri og þykir eitt allsherjar hneyksli.

Lenti vél Icelandair án heimildar eftir óhapp á Keflavíkurflugvelli
Rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsakar nú tvö atvik sem komu upp á Keflavíkurflugvelli eftir að sjúkraflugvél rann út af flugbrautarenda sem varð til þess að flugvöllurinn lokaðist.

Dæmi um að fólk fái heimsóknir í sóttkví
Dæmi eru um að fólk virði ekki sóttkví, fái heimsóknir og fari jafnvel út á meðal fólks. Þetta á bæði við um fólk sem er í sóttkví eftir komu til landsins og þá sem útsettir hafa verið fyrir smiti.

Harma að konur hafi sætt ítarlegri læknisskoðun á flugvellinum í Doha
Ríkisstjórnin í Katar harmar að konur hafi verið látnar sæta ítarlegri læknisskoðun á flugvellinum í Doha þann 2. október síðastliðinn.

Heathrow missir fyrsta sætið
Heathrow-flugvöllur í London hefur misst efsta sætið á listanum yfir umferðarþyngstu flugvelli Evrópu.

Heildartekjur Icelandair lækkuðu um 81 prósent
Forstjóri Icelandair Group segir að félagið hafi bæði náð að takmarka útflæði fjármagns og styrkja lausafjárstöðu félagsins til þess að komast í „gegnum tímabil lágmarksframleiðslu allt fram á árið 2022 ef þörf krefur.“

Heræfingar í háloftum Íslands
Nýlega bárust fréttir af því að flugher Bandaríkjanna væri að æfa aðflug á Akureyrarflugvelli með tilheyrandi hávaða. Hávaðinn af orrustuþotum sem þessum stafar af því að þær þurfa að nota afturbrennara til að taka á loft, sem og til þess að brjóta hljóðmúrinn á flugi.

Landsstjórn Færeyja kynnir björgunarpakka fyrir flugið
Jørgen Niclasen, fjármálaráðherra Færeyja, hefur kynnt sértækar aðgerðir landsstjórnarinnar til að bjarga flugstarfsemi eyjanna. Frumvarp um málið verður lagt fyrir Lögþingið á næstu dögum en ráðherrann segist hafa stuðning úr öllum flokkum við björgunarpakkann.

Ekki til umræðu að loka á flug frá tilteknum löndum
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir það ekki hafa komið til umræðu að stoppa flug frá tilteknum löndum.

Á sjötta hundrað hermanna á landinu
Á sjötta hundrað bandarískra og kanadískra hermanna verða staðsettir hér á landi næstu vikurnar. Áhafnaskipti taka lengri tíma en vanalega vegna strangra sóttvarnareglna.