Tékknesk herþota hluti af árlegri flugsýningu Margt var um manninn á Reykjavíkurflugvelli í dag þegar haldin var árleg flugsýning Flugmálafélags Íslands. Blíðskaparveður var á vellinum en ekki voru allir jafn ánægðir með herlegheitin. Innlent 1.6.2025 00:02
Kolmónoxíðeitrun talin vera orsök veikinda í flugvél Talið er að kolmónoxíðeitrun hafi valdið veikindum í flugvél United Airlines sem lenda þurfti á Keflavíkurflugvelli. Þrír einstaklingar úr vélinni leituðu aðstoð sjúkraliða á vettvangi en enginn þurfti að leita á sjúkrahús. Innlent 31.5.2025 18:49
Sigríður svarar gagnrýni á störf lögreglunnar á Suðurnesjum Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri svaraði gagnrýni Úlfars Lúðvíkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra, í tölvupósti til starfsmanna embættisins á þriðjudag. Þar sagði hún Úlfar ekki hafa sinnt sameiginlegu verkefni lögreglunnar og tollsins um farþegaeftirlit og því hafi samstarfinu verið rift. Innlent 31.5.2025 15:02
Lýstu yfir óvissustigi vegna sömu flugvélar Flugvélin sem lent var á Suðurlandsvegi í gærkvöldi er sú sama og samband rofnaði við þegar verið var að fljúga henni frá Grænlandi í gær. Landhelgisgæslan lýsti yfir óvissustigi vegna flugvélarinnar eftir að flugmaður hennar hafði ekki samband við flugumferðarstjórn á tilteknum tíma, svaraði ekki kalli og flugvélin sást ekki á ratsjám. Innlent 27. maí 2025 12:19
Telja vanrækslu hafa valdið mannskæðu þyrluslysi í Finnlandi Finnska rannsóknarlögreglan rannsakar nú mannskætt þyrluslys sem varð fyrr í þessum mánuði sem manndráp af gáleysi. Fimm mannst fórust þegar tvær þyrlur rákust saman. Erlent 27. maí 2025 11:22
Play tekur flugið til Agadir Flugfélagið Play hefur hafið sölu á áætlunarferðum til marokkósku borgarinnar Agadir. Fyrsta flugið verður 19. desember næstkomandi en flogið verður einu sinni í viku á föstudögum þangað til um miðjan apríl 2026. Viðskipti innlent 27. maí 2025 10:16
Nauðlending á þjóðveginum Flugmaður eins hreyfils flugvélar framkvæmdi nauðlendingu á þjóðveginum vegna bilunar sem kom upp í vélinni. Hann var ómeiddur þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn. Innlent 27. maí 2025 00:16
Sendir í leyfi fyrir að vinna ekki nógu mikið Fimm flugumferðarstjórar hafa verið sendir í leyfi frá störfum vegna gruns um að þeir hefðu ekki unnið tilskilinn fjölda vinnustunda til að halda réttindum sínum. Samgöngustofa rannsakar mál þeirra. Innlent 26. maí 2025 18:18
Óvissustig vegna ferjuflugvélar frá Grænlandi Óvissustigi var lýst yfir af stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á þriðja tímanum þegar ekki náðist samband við flugmann eins hreyfils ferjuflugvélar sem verið var að fljúga frá Narsarsuaq á Grænlandi til Keflavíkur. Engan sakaði. Innlent 26. maí 2025 16:36
Loksins fær þyrlan heimili fyrir norðan Því ber að fagna að ríkisstjórn Íslands hafi borið gæfa til að setja fjármuni í fasta starfsstöð Landhelgisgæslunnar á Akureyri, eitthvað sem ég hef barist fyrir sem þingmaður Norðausturkjördæmis undanfarin ár. Nú síðast lagði ég fram þingsályktunartillögu þess efnis í mars sl. Skoðun 23. maí 2025 08:32
Eyðilegging í íbúðahverfi í San Diego eftir að lítil flugvél hrapaði Lítil flugvél brotlenti í íbúðahverfi í San Diego í Kaliforníu í Bandaríkjunum með þeim afleiðingum að eldur kviknaði í á öðrum tug húsa. Ekki er ljóst enn hvort einhver hafi farist. Erlent 22. maí 2025 14:37
Íbúar Austur-Grænlands mótmæltu einangrun og pólitísku afskiptaleysi Íbúar í bænum Tasiilaq, stærsta bæ Austur-Grænlands, stóðu fyrir fjölmennri kröfugöngu síðastliðinn sunnudag þar sem mótmælt var einangrun og pólitísku afskiptaleysi gagnvart íbúum byggða á austurströnd landsins, þeirra sem næst eru Íslandi. Samtímis var efnt til samstöðugöngu í höfuðstaðnum Nuuk á vesturströndinni. Erlent 21. maí 2025 23:44
Brá sér í túristalíki og segir leigubílstjóra hafa okrað á sér Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, segist hafa þóst vera erlendur ferðamaður þegar hann tók leigubíl af Keflavíkurflugvelli í gær. Leigubílstjórinn hafi svo rukkað hann miðað við stórhátíðartaxta, um miðjan dag á mánudegi. Innlent 20. maí 2025 17:13
Burðardýr í flugvél Play „fríkaði út“ Lenda þurfti farþegaflugvél Play á leiðinni frá Spáni til Íslands á Írlandi í nótt vegna bráðra veikinda farþega. Samkvæmt heimildum fréttastofu er grunur um að farþeginn hafi verið burðardýr með fíkniefni innvortis. Innlent 20. maí 2025 15:55
Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Þorvaldur Guðmundsson athafnamaður, oftast kenndur við Síld og fisk, reyndist örlagavaldur í rekstri Loftleiða árið 1959. Grétar Br. Kristjánsson, sonur þáverandi stjórnarformanns Loftleiða, Kristjáns Guðlaugssonar, segir að Þorvaldur hafi sem stjórnarformaður Verzlunarsparisjóðsins, síðar Verslunarbankans, tryggt nauðsynleg lán til að Loftleiðir gætu keypt Douglas DC 6B-flugvélarnar sem urðu grunnurinn að velgengni flugfélagsins. Innlent 18. maí 2025 06:48
Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Fimm eru látnir eftir að tvær þyrlur rákust saman og brotlentu skammt frá Eura í suðvesturhluta Finnlands. Þyrlurnar voru báðar á leið til finnska bæjarins Kokemäki til að taka þátt í viðburði flugklúbbs. Erlent 17. maí 2025 18:44
Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Nítján eru í gæsluvarðhaldi hjá Lögreglunni á Suðurnesjum vegna fíkniefnainnflutnings og tólf hafa verið handteknir í tengslum við slík mál frá tíunda apríl. Yfirlögregluþjónn segir að grunur sé um að ákveðinn hópur standi að baki nokkrum málanna. Innlent 16. maí 2025 12:01
„Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Félags- og húsnæðisráðherra og forstjóri Reita hófu framkvæmdir að nýju hjúkrunarheimili í gömlu höfuðstöðvum Icelandair í morgun, með því að brjóta niður vegg sem þurfti að víkja við endurbæturnar. Innlent 16. maí 2025 11:19
Heinemann svarar Sameyki: „Þetta er rangt“ Fyrirtækið Heinemann, sem nýverið tók við rekstri fríhafnarverslana á Keflavíkurflugvelli, segir ekki rétt að fyrirtækið hyggist meina starfsmönnum verslananna að vera félagsmenn í Sameyki eða skikka þá til aðildar að VR. Þá segir fyrirtækið formann Sameykis hafa farið með rangfærslur í bréfi til félagsmanna sinna á dögunum. Hins vegar staðfestir fyrirtækið að frá og með febrúar 2028 muni „aðeins kjarasamningur VR og SA geta gilt“ um starfsfólk fríhafnarinnar. Viðskipti innlent 16. maí 2025 10:37
Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili Reitir hafa gengið til samninga við Ríkiseignir um leigu á Nauthólsvegi 50 í Reykjavík undir rekstur hjúkrunarheimilis til næstu tuttugu ára. Fasteignin hýsti áður höfuðstöðvar Icelandair. Viðskipti innlent 16. maí 2025 10:31
Hækkar verulega verðmat á Icelandair og telur „allar líkur“ á viðsnúningi í rekstri Icelandair hefur sjaldan byrjað fyrstu mánuði nýs árs jafn vel og núna í ár, að sögn hlutabréfagreinanda, sem telur allt útlit fyrir að það verði talsverður viðsnúningur í rekstrinum og hefur hækkar verðmat sitt á flugfélaginu um nærri fjórðung. Hann segir áhyggjuefni hversu veikur hlutabréfamarkaðurinn er hér landi – Icelandair hefur fallið í verði um þrjátíu prósent frá áramótum – með lítilli dýpt, lakri verðmyndun og „hálf munaðarlausum“ félögum. Innherji 15. maí 2025 15:46
Nýtt hitamet slegið á Egilsstöðum Nýtt landshitamet í maímánuði var slegið á Egilsstaðaflugvelli í dag þar sem hiti mældist 25,8°C fyrr í dag. Hitametið var áður 25,6°C og var sett á Vopnafirði þann 26.maí 1992. Veður 15. maí 2025 13:46
Hefja flug til Edinborgar og Malaga Icelandair hefur flug til fjögurra nýrra áfangastaða í haust. Edinborg og Malaga bætast við sem nýir áfangastaðir í september en áður hafði félagið tilkynnt um flug til Istanbul og Miami. Viðskipti innlent 15. maí 2025 12:29
Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Flugleiðir voru á barmi gjaldþrots og höfðu engin tök á að halda þriðjungshlut sínum í Cargolux fyrir fjörutíu árum. Þetta er meginástæða þess að Íslendingar misstu tökin á frakflugfélaginu í Lúxemborg, að mati eins helsta valdamanns Flugleiða á þeim tíma. Innlent 14. maí 2025 22:11