Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Freyja Þórisdóttir skrifar 4. október 2026 07:56 Bermúda-þríhyrningurinn svokallaði er svæði sem liggur á milli Púertó Ríkó, Miami og Bermúda-eyja þar sem fjöldi flugvéla og skipa hefur horfið sporlaust í gegnum tíðina en það er þó ekki álitið hættulegra en önnur svæði. Getty Leitarhópar hafa fundið brak úr sjúkraflugvél sem týndist á flugi milli Bermúda og Boston í gær, laugardaginn 3. október, en sex voru um borð í flugvélinni, að sögn yfirvalda. Enn er leitað að eftirlifendum á svæðinu þar sem brakið fannst en það er undan strönd Nantucket, eyju í Massachusetts-fylki í Bandaríkjunum.
Kemur þetta fram í yfirlýsingu sem bandaríska strandgæslan sendi frá sér en þar kemur einnig fram að skip, þyrlur og flugvélar tækju þátt í leitinni, er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Yfirvöld hafi tilkynnt nánustu aðstandendum þeirra sem voru í fluginu, fjórum kanadískum ríkisborgurum og tveimur bermúdískum ríkisborgurum, um fundinn. Týnda vélin er á vegum kanadíska sjúkraflugfélagsins Latitude Air Ambulance. Vélin tók á loft frá flugvellinum á Bermuda um klukkan 2:41 aðfararnótt laugardags að íslenskum tíma samkvæmt flugkorti. Svo virðist sem vélin hafi flogið í 24 þúsund feta hæð áður en flugið lækkaði um nokkur þúsund fet um klukkan 4:05 að íslenskum tíma. Flugvélin fór í loftið frá L.F. Wade-alþjóðaflugvellinum á Bermúda klukkan 23:40 að staðartíma, samkvæmt fluggögnum frá FlightAware, og átti að lenda á Logan-alþjóðaflugvellinum í Boston klukkan 01:30 EDT (05:30 GMT). Í frétt BBC kemur einnig fram að meðal þeirra sem hafi verið um borð hafi verið tveir flugmenn og tveir sjúkraflutningamenn, allir kanadískir. Áhöfnin hafi verið á leið til Bermúda til að sækja sjúkling og ættingja hans, sem séu ekki kanadískir. Þá er vitnað í samskipti sem hægt er að greina á upptöku úr vélinni en þar heyrist flugumferðarstjórinn spyrja: „Þú kemur inn blint? Var það það sem þú sagðir?“ og því næst „Ertu að lýsa yfir neyðarástandi, eða ekki?“ Svar flugmannsins hafi svo verið ógreinilegt á upptökunni. „Það er ekki nógu sterkt sambandið svo ég heyrði ekki hverju þú svaraðir, hvort þú værir að lýsa yfir neyðarástandi eða ekki,“ hafi flugumferðarstjórinn ítrekað. Flugumferðarstjórinn staðfesti síðar að flugmaðurinn hefði lýst yfir neyðarástandi.
Bandaríkin Flug Bermúdaeyjar Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fleiri fréttir Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Sjá meira