Orri og Rúnar fylgdust með dramatík af bekknum í risaleik Orri Steinn Óskarsson og Rúnar Alex Rúnarsson urðu að gera sér að góðu að fylgjast með af varamannabekknum í risaleik FC Kaupmannahafnar og Bröndby á Parken í dag – lykilleik í titilbaráttunni í danska fótboltanum. Fótbolti 1. apríl 2024 14:32
Kolbeinn sá strax rautt en Stefan og Túfa fögnuðu í fyrsta leik Boltinn er byrjaður að rúlla í sænska fótboltanum og nokkrir Íslendingar voru á ferðinni í dag, í efstu og næstefstu deild karla. Fótbolti 1. apríl 2024 14:06
Gabriel og Saliba alltaf með Haaland í vasanum Framherjinn Erling Haaland átti ansi erfitt uppdráttar í leik Manchester City og Arsenal í gær en framherjinn öflugi átti ekki eitt skot á rammann og raunar aðeins tvær marktilraunir. Fótbolti 1. apríl 2024 07:00
Rodrygo afgreiddi Athletic Bilbao Real Madrid vann mikilvægan sigur á Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en fátt virðist geta komið í veg fyrir að Real endurheimti titilinn í vor. Fótbolti 31. mars 2024 21:01
Guardiola hellti sér yfir Grealish eftir leik Samskipti Pep Guardiola og Jack Grealish í leikslok eftir jafntefli Manchester City og Arsenal hafa vakið töluverða athygli en Guardiola virtist í fyrstu vera algjörlega brjálaður út í leikmanninn. Fótbolti 31. mars 2024 20:01
Hayes hafði engan áhuga á að taka í höndina á Eidevall og ýtti honum frá sér Arsenal landaði enska deildarbikarmeistaratitli kvenna í dag en úrslitin réðust ekki fyrr en í framlengingu en sænska landsliðskonan Stina Blackstenius var hetja Arsenal. Fótbolti 31. mars 2024 19:00
400 deildarleikir hjá Kane án titils Harry Kane lék sinn 400. deildarleik í gær þegar Bayern Munchen tapaði 0-2 á heimavelli gegn Dortmund. Þrátt fyrir að hafa raðað inn mörkum fyrir Bayern á tímabilinu náði Kane ekki að skora í gær og titillinn virðist vera að renna liðinu úr greipum. Fótbolti 31. mars 2024 18:10
„Við vorum að flýta okkur full mikið stundum“ Lið Brighton hefur haft ákveðið tak á Liverpool síðustu misseri en sigur Liverpool í dag var aðeins annar sigur liðsins í síðustu tíu viðureignum liðanna. Þetta var jafnframt 300. sigur Jurgen Klopp sem stjóri Liverpool. Fótbolti 31. mars 2024 17:20
Glódís og Sveindís mætast í bikarúrslitaleiknum Glódís Perla Viggósdóttir og félagar hennar í Bayern München eru komnar í bikarúrslitaleikinn í Þýskalandi eftir sigur á Eintracht Frankfurt í vítakeppni í undanúrslitaleiknum í dag. Fótbolti 31. mars 2024 16:34
Dramatík í lokin hjá ævintýraliðinu Girona er kannski að gefa aðeins eftir í titilbaráttunni á Spáni en ævintýralið vetrarins bauð hins vegar upp á ævintýraendi í dag þegar liðið tryggði sér 3-2 sigur á Real Betis í uppbótatíma. Fótbolti 31. mars 2024 16:17
Stefán Ingi gerði út um leikinn með tveimur mörkum í lokin Stefán Ingi Sigurðarson innsiglaði sigur Patro Eisden á Lommel í belgísku b-deildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 31. mars 2024 15:51
Alfons aftur í byrjunarliðið Íslenski landsliðsbakvörðurinn Alfons Sampsted lék sinn fyrsta byrjunarliðsleik síðan í janúar þegar Twente vann 1-0 heimasigur á Heracles. Fótbolti 31. mars 2024 14:26
Alíslenskt mark en Íslendingaliðið fékk samt stóran skell Íslendingaliðið Lyngby fékk í dag stóran skell á útivelli á móti Randers í neðri hluta dönsku úrslitakeppninnar í fótbolta. Fótbolti 31. mars 2024 14:00
Kristian Nökkvi með fyrsta markið sitt síðan í janúar Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði langþráð mark í dag þegar Ajax vann 3-1 útisigur á PEC Zwolle í hollensku deildinni. Fótbolti 31. mars 2024 12:12
Ronaldo með þrennu á fimmtán árum í röð Cristiano Ronaldo er alls ekki hættur að bæta við glæsilega ferilskrá sína og í gær skoraði hann 64. þrennuna á ferli sínum yfir félagslið eða landslið. Fótbolti 31. mars 2024 10:20
Sevilla fordæmir kynþáttaníð sem þjálfari og leikmaður urðu fyrir Sevilla hafa sent út yfirlýsingu í kjölfar kynþáttaníðs og útlendingahaturs sem leikmaðurinn Marcos Acuna og þjálfarinn Quique Sanchez Flores urðu fyrir í leik gegn Getafe í gær. Fótbolti 31. mars 2024 08:00
Xavi kærir tvo menn fyrir meiðyrði Xavi, fyrrum leikmaður og núverandi þjálfari Barcelona, hefur stefnt tveimur fjölmiðlamönnum fyrir meiðyrði. Fótbolti 31. mars 2024 07:00
Flugeldar fyrir leik sem Willum skoraði í Willum Þór Willumsson var á markaskónum í 3-0 sigri Go Ahead Eagles gegn Excelsior í 27. umferð hollensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Fótbolti 30. mars 2024 21:01
Tveggja marka sigur Dortmund í Der Klassiker Borussia Dortmund vann 2-0 á útivelli gegn Bayern Munchen í 27. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti 30. mars 2024 19:32
Draumurinn algjörlega úti hjá Íslendingaliðinu Fortuna Sittard gerði 2-2 jafntefli við FC Utrecht í hollensku úrvalsdeild kvenna í fótbolta og kvaddi þar með möguleikann á Meistaradeildarsæti. Fótbolti 30. mars 2024 17:31
39 leikir í röð án taps hjá Leverkusen eftir dramatík í lokin Bayern Leverkusen er enn á sigurbraut í þýsku deildinni eftir 2-1 endurkomusigur á Hoffenheim í dag. Fótbolti 30. mars 2024 16:37
Sjáðu Emelíu opna markareikning sinn með frábæru marki Emelía Óskarsdóttir átti eftirminnilega innkomu í leik Köge og Kolding í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Fótbolti 30. mars 2024 16:27
Ísak skoraði en liðið fékk skell: Sjáðu markið Ísak Andri Sigurgeirsson var á skotskónum með Norrköping í sænsku deildinni í dag en liðið fékk hins vegar stóran skell á heimavelli sínum. Fótbolti 30. mars 2024 16:11
Ellefta deildarmark Alberts ekki nóg Albert Guðmundsson var á skotskónum hjá Genoa í ítölsku deildinni í dag en liðið tapaði engu að síður tveimur stigum á heimavelli á móti einu af neðstu liðum deildarinnar. Fótbolti 30. mars 2024 15:57
Sara Björk hafði betur gegn Alexöndru Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir fagnaði sigri í Íslendingaslag í ítölsku deildinni í dag þegar Juventus vann 4-0 stórsigur á Fiorentina. Fótbolti 30. mars 2024 15:54
Hlín tryggði Kristianstad sigur Kristianstad vann 2-1 sigur á Linköping í æfingarleik í dag en það styttist óðum í það að sænska kvennadeildin fari af stað. Fótbolti 30. mars 2024 15:20
Dramatískur og dýrmætur sigur í toppslagnum hjá Kristínu Dís Kristín Dís Árnadóttir og félagar hennar í Bröndby unnu gríðarlega mikilvægan sigur í dag í toppslag dönsku deildarinnar. Fótbolti 30. mars 2024 15:05
Dilja Ýr áfram á skotskónum Íslenska landsliðskonan Diljá Ýr Zomers heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Leuven í belgíska boltanum. Fótbolti 30. mars 2024 14:22
Þórir lagði upp mikilvægt mark í lífsnauðsynlegum sigri Þórir Jóhann Helgason lagði upp fyrsta mark Braunschweig í 5-0 heimasigri á Elversberg í þýsku b-deildinni í dag. Fótbolti 30. mars 2024 13:55
Sveindís sett á bekkinn en Wolfsburg brunaði í bikarúrslitin Wolfsburg átti ekki í miklum vandræðum með að tryggja sér sæti í bikarúrslitaleiknum í þýska kvennaboltanum í dag. Fótbolti 30. mars 2024 13:49