Bauð miðalausum stuðningsmanni á undanúrslit heimsmeistaramótsins Andri Broddason skrifar 15. júlí 2026 14:15 Kobbie Mainoo bauð stuðningsmanni Englands á undanúrslitaleik heimsmeistaramótsins gegn Argentínu. Europa Press Sports/Getty Images Kobbie Mainoo, leikmaður enska landsliðsins, hefur boðið Tyler Adams, sem greindist með heilabilun, á leik Englands og Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins. Adams eyddi nær öllu sparifénu sínu til þess að komast til Atlanta.
Móðir bræðranna Tyler Adams og Jord Adams greindist með heilabilun sem átti eftir að hrjá líkamlega getu móður þeirra. Drengirnir voru aðeins níu og fimmtán ára þegar móðir þeirra greindist með heilabilun og þurftu þeir að hugsa um hana á meðan ástand hennar versnaði. Eftir að móðir þeirra loks lést fengu báðir bræðurnir fréttir að þeir væru með sömu einkenni heilabilunar og hún. Ekki er hægt að lækna heilabilunina og munu þeir hljóta sömu örlög og móðir þeirra. Eftir að hafa fengið þessar fréttir hafa Adams-bræðurnir ákveðið að gera sem mest út úr lífinu á meðan þeir geta. Bræðurnir hafa hlaupið maraþon til styrktar rannsóknum á heilabilun og styðja við aðstandendur fólks með heilabilun. Þegar England komst í undanúrslit heimsmeistaramótsins í fótbolta var eldri bróðirinn, Tyler Adams, staðráðinn í að fara á leikinn. Það hefur verið draumur hans síðan hann var barn og ætlaði hann að reyna hvað hann gat til að fá miða á leikinn. View this post on Instagram A post shared by Jordan Adams (@theftdbrothers) Tyler Adams keypti sér flug til Atlanta þar sem leikur Englands og Argentínu verður spilaður. Í fluginu tók hann upp myndband þar sem hann biðlaði til fólks að deila myndbandinu til að hjálpa honum að fá miða á leikinn. Þegar hann lenti í Atlanta var enski landsliðsmaðurinn Kobbie Mainoo búinn að kommenta á póstinn og segjast ætla að bjóða honum á leikinn. View this post on Instagram A post shared by Jordan Adams (@theftdbrothers) „Þið gætuð hafa séð á færslunni minni að enginn annar en Kobbie Mainoo hefur boðið mér miða á leikinn gegn Argentínu. Ég er orðlaus yfir því, ég trúi ekki að leikmaður í liði Englands hafi sýnt þessa góðmennsku og gjafmildi. Takk fyrir Kobbie.“ Kobbie Mainoo átti frábært tímabil með Manchester United en hann hefur ekki enn fengið að spila á heimsmeistaramótinu fyrir England. Hann er einn af þrem leikmönnum Englands sem hafa ekkert komið við sögu. Hinir leikmennirnir eru Ivan Toney og Trevoh Chalobah. Eftir að Tyler Adams fékk miða á leikinn ákvað Fifa að taka sig til og bjóða honum að vera sérstakur gestur leiksins og á sama tíma vekja athygli á heilabilun.
HM 2026 í fótbolta England Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira