Spánverjar jöfnuðu heimsmet og geta slegið það í úrslitaleiknum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. júlí 2026 11:31 Pedro Porro, sem skoraði seinna mark Spánar gegn Frakklandi, fagnar með hinum bakverði spænska liðsins, Marc Cucurella. getty/Kyle Rivas Með sigrinum á Frakklandi í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í gær jafnaði Spánn heimsmet. Spánverjar geta svo slegið það í úrslitaleik HM á sunnudaginn kemur.
Spánn tryggði sér sigur í úrslitaleik HM með 0-2 sigri á Frakklandi í Dallas í gær. Mikel Oyarzabal (víti) og Pedro Porro skoruðu mörk Spánverja sem mæta annað hvort Englendingum eða Argentínumönnum í úrslitaleiknum í New Jersey á sunnudaginn. Leikurinn í gær var 37. leikur spænska liðsins án þess að tapa. Með sigrinum á Frakklandi jafnaði Spánn heimsmetið yfir flesta landsleiki í röð án ósigurs. Ítalía átti metið en liðið tapaði ekki í 37 leikjum frá 2018 til 2021. Síðasta tap Spánverja í venjulegum leiktíma var í vináttulandsleik gegn Kólumbíumönnum, 1-0, 22. mars 2024. Spánn tapaði vissulega fyrir Portúgal í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar fyrir ári en það var í vítaspyrnukeppni. Spánn hefur unnið 27 af síðustu 37 leikjum sínum og gert sjö jafntefli. Spánn gerði markalaust jafntefli við Grænhöfðaeyjar í fyrsta leik sínum á HM en hefur unnið síðustu sex leiki sína á mótinu og er aðeins einum sigri í viðbót frá því að verða heimsmeistari í annað sinn. Ítalía lék einnig 37 leiki í röð án þess að tapa frá 10. október 2018 til 6. október 2021. Spánn stöðvaði Ítalíu með 1-2 sigri í Þjóðadeildinni. Spánn átti einu sinni heimsmetið yfir flesta landsleiki í röð án taps. Frá 7. febrúar 2007 til 24. júní 2009 léku Spánverjar 35 leiki án þess að tapa. Undir stjórn Luis de la Fuente, sem tók við spænska liðinu eftir HM 2022, hefur Spánn leikið 48 leiki, unnið 36, gert tíu jafntefli og aðeins tapað tveimur leikjum. Markatalan er 125-35. Spánn varð Evrópumeistari sumarið 2024 og getur á sunnudaginn bætt heimsmeistaratitlinum í safnið.
HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir „Minn stærsti draumur“ Pedro Porro skoraði seinna mark Spánverja í sigrinum á Frökkum í undanúrslitaleik HM í kvöld og hann var í skýjunum eftir leikinn. 14. júlí 2026 21:36 Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira
„Minn stærsti draumur“ Pedro Porro skoraði seinna mark Spánverja í sigrinum á Frökkum í undanúrslitaleik HM í kvöld og hann var í skýjunum eftir leikinn. 14. júlí 2026 21:36