Fótbolti

Fótbolti

Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.

Fréttamynd

Skikkaðir í ein­angrun fram að HM

Landsliðsmenn Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó þurfa að einangra sig fram að fyrsta leik liðsins á HM í fótbolta vegna ebólu í ríkinu. Þetta segir Andrew Giuliani, yfirmaður starfshóps Hvíta hússins sem sér um komandi heimsmeistaramót.

Fótbolti
Fréttamynd

Benítez rekinn eftir 40 leiki

Rafael Benítez hefur verið sagt upp störfum sem þjálfari Sverris Inga Ingasonar og félaga í Panathinaikos í Grikklandi. Hann entist aðeins rúmt hálft ár í starfi.

Fótbolti
Fréttamynd

Spilar sinn síðasta leik í dag

Þjóðverjinn Lukas Podolski spilar sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum í dag er lið hans Gornik Zabrze spilar í lokaumferð pólsku úrvalsdeildarinnar. Fertugur Podolski skilur við feikna fínan feril.

Fótbolti
Fréttamynd

„Við réðum ekkert við þá“

„Erfitt að kyngja þessari niðurstöðu, 5-0, en auðvitað eru Víkingarnir með hörku lið,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, eftir stórt tap gegn Íslandsmeisturum Víkings í Víkinni. Lokatölur 5-0 fyrir heimamönnum þar sem gestirnir voru einum færri nánast allan síðari hálfleikinn.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Mér fannst vanta upp á orkustigið“

Jökull I. Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, saknaði þess að sjá orku og ákefð hjá leikmönnum sínum þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Fram í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld.  

Fótbolti
Fréttamynd

Þakkaði ekki Manchester United fyrir að vera í HM-hóp

Marcus Rashford, leikmaður Manchester United sem er á láni hjá Barcelona, segist ekki vera að skjóta á Manchester United á hringrás hjá sér á Instagram. Hann var einungis að þakka þeim sem hjálpuðu honum síðustu átján mánuði til að vera í landsliðshóp Englands á HM í fótbolta.

Fótbolti
Fréttamynd

Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum

Heildsalan Kansler ehf. hagnaðist um sextíu milljónir króna á sölu nikótínpúða í fyrra. Félagið er í eigu fótboltastjarnanna Sölva Geirs Ottesen, þjálfara Víkings, og Ragnars Braga Sveinssonar, fyrirliða Fylkis, auk Sigurþórs Sigurðssonar. Heildsalan selur aðeins eina tegund nikótínpúða, Ice, sem framleiddir eru af félagi í þeirra eigu.

Viðskipti innlent