Beið spenntur eftir því að Amin færi út Valur Páll Eiríksson skrifar 20. júlí 2026 10:17 Galdur Guðmundsson var öflugur í 5-0 sigri KR á Stjörnunni í gær. Vísir/Anton Brink Galdur Guðmundsson hefur smellpassað eins og flís við rass í leik KR-inga eftir brottför Amin Cosic til Noregs. Hann viðurkennir að hafa beðið brottfarar Amins, er hann beið eftir tækifæri sínu með liðinu.
Amin Cosic fór nýverið frá KR til Noregsmeistara Viking í Stafangri og varð með því á meðal dýrari leikmanna í sögu efstu deildar á Íslandi. Kaupverðið er sagt nema um 80 milljónum króna. Hann hafði leikið einkar vel á vinstri kanti KR-liðsins eftir skipti hans í Vesturbæinn frá Njarðvík um mitt síðasta sumar. Galdur átti stórleik, eins og flestir leikmenn KR, í 5-0 stórsigri á Stjörnunni í gær. Galdur Guðmundsson kom einnig til KR á miðju síðasta tímabili en meiddist illa síðasta haust. Hann hefur beðið eftir tækifæri sínu með liðinu og ekki er hægt að segja annað en að hann hafi gripið það. Hann hefur verið öflugur í undanförnum leikjum með KR, eftir brottför Amin til Noregs. „Ég er virkilega sáttur. Við erum á leið í smá frí frá deildinni og það er mikilvægt að klára svona góðan sigur fyrir fríið,“ sagði Galdur eftir leik í gær. Hann hefur beðið þess með eftirvæntingu að komast í lið KR. „Mér hefur liðið virkilega vel. Ég vissi að ég væri klár og mér finnst ég vera að sýna hversu góður ég er. Loksins þegar ég er farinn að spila. Ég hef verið klár lengi en ég á enn langt í land, en er ánægður,“ „Ég meiddist illa undir lok síðasta tímabils og var eiginlega allt undirbúningstímabilið að ná mér í stand. Þetta er ekki komið enn 100 prósent en síðustu vikur er ég búinn að vera heill. Ég er virkilega ánægður að vera farinn að spila. Það eru lífsgæði í því,“ Tóku þessi meiðsli á? „Já, klárlega. Það er svekkjandi að koma heim og meiðast strax. Það tók alveg á. En ég veit hvað í mér býr svo ég er að fara að sýna það áfram,“ segir Galdur. Amin hafði eignað sér þessa stöðu á vinstri kantinum og var öflugur. Taldir þú niður dagana eftir að hann færi út? „Ég veit það ekki,“ segir Galdur og hlær. „Amin er náttúrulega þvílíkur gæji. Hann á allt þetta skilið eftir það sem hann hefur lagt inn. En ég viðurkenni það alveg heiðarlega að ég var orðinn spenntur að hann færi út. Svona er þetta bara. Svona er fótboltinn.“
KR Besta deild karla Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira