Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, hrósaði karakter sinna manna eftir 3-3 jafntefli liðsins á Villa Park í Birmingham. Gestirnir úr Bítlaborginni voru 3-1 yfir þegar skammt var eftir af leiknum en Aston Villa skoraði tvívegis og leiknum lauk með jafntefli. Enski boltinn 13. maí 2024 22:01
Barcelona upp í annað sætið Barcelona er komið upp í 2. sæti La Liga, spænsku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, eftir 2-0 sigur á Real Sociedad í kvöld. Fótbolti 13. maí 2024 21:46
Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Aston Villa og Liverpool gerðu 3-3 jafntefli í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Leikurinn var frábær skemmtun þrátt fyrir að myndbandsdómarar leiksins hafi eytt alltof miklum tíma í að skoða hin ýmsu atriði. Um var að ræða síðasta útileik Jürgen Klopp sem þjálfari Liverpool en hann yfirgefur félagið í sumar. Enski boltinn 13. maí 2024 21:20
Segja Real renna hýru auga til miðjumanns Leverkusen Það má reikna með að fjöldi leikmanna Þýskalandsmeistara Bayer Leverkusen verði eftirsóttur af stærstu og ríkustu knattspyrnufélögum Evrópu í sumar. Spánarmeistarar Real Madríd eru nú þegar með augastað á miðjumanni þýska félagsins en eru þó tilbúnir að bíða til næsta árs. Fótbolti 13. maí 2024 19:45
Guðrún og stöllur enn með fullt hús stiga Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn þegar Rosengård lagði Häcken í efstu deild sænska fótboltans í kvöld. Guðrún var ekki eini Íslendingurinn sem kom við sögu í kvöld en Katla Þórðardóttir skoraði mark Örebro sem hefur ekki enn unnið leik. Fótbolti 13. maí 2024 19:02
Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Bayern München leitar enn logandi ljósi að nýjum þjálfara til að taka við stjórnartaumunum í sumar. Crystal Palace á Englandi sendi liðinu skýr skilaboð þegar spurst var fyrir um þjálfara liðsins. Enski boltinn 13. maí 2024 18:01
Stuðningsmenn PSG bauluðu á Mbappé í síðasta heimaleiknum Kylian Mbappé á væntanlega ekkert alltof góðar minningar frá síðasta heimaleik sínum með Paris Saint-Germain. Fótbolti 13. maí 2024 15:00
Sungu nafn Arnórs hástöfum Arnór Sigurðsson fékk höfðinglegar móttökur þegar hann mætti á gamlan heimavöll sinn um helgina. Stuðningsmenn IFK Norrköping tóku þá mjög vel á móti íslenska landsliðsmanninum. Fótbolti 13. maí 2024 10:00
„Höfum ekki haft neitt svigrúm til að gera mistök“ Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var sáttur með 0-1 sigur á Old Trafford í dag en vill þó ekki leyfa sér að fagna um of strax. Enski boltinn 12. maí 2024 23:01
„Þetta er saga tímabilsins og það gengur ekki lengur“ Fylkir er enn í leit að fyrsta sigri tímabilsins eftir tap í kvöld gegn Breiðablik í Bestu deildinni. Fylkismenn voru miklu betri aðilinn í fyrri hálfleik og gátu nagað sig í handabökin að vera ekki búnir að skora að minnsta kosti eitt mark. Þrátt fyrir það skoraði Breiðablik þrjú mörk í leiknum og unnu öruggan 3-0 sigur. Fótbolti 12. maí 2024 22:38
„Förum glaðir úr Lautinni“ Breiðablik vann öruggan 3-0 sigur á Fylki í Lautinni í kvöld. Leikurinn var undarlegur fyrir margar sakir þar sem heimamenn voru sterkari aðilinn framan af leik en Blikar náðu þessum þremur mörkum. Fótbolti 12. maí 2024 21:53
Atalanta skrefi nær Meistaradeildarsæti Atalanta tók á móti Róma í Seríu-A í kvöld en liðin eru í harðri baráttu um 5. sætið í deildinni sem er síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í Meistaradeildinni. Fótbolti 12. maí 2024 20:49
Gregg: Algjörlega óásættanlegt HK gerði góða ferð í Vesturbæ Reykjavíkur í dag þegar þeir lögðu KR af velli 1-2 í sjöttu umferð Bestu deildar karla. Gregg Ryder þjálfari þeirra svarthvítu fór engum silkihönskum um sína menn hvorki frammistöðuna þeirra né hugarfarið. Fótbolti 12. maí 2024 20:00
Sveindís Jane á skotskónum í sigurleik Sveindís Jane Jónsdóttir virðist vera búin að ná sér algjörlega af meiðslunum sem hún hefur verið að glíma við síðustu vikur en hún lék allan leikinn í dag þegar Wolfsburg lagði Werder Bremen. Fótbolti 12. maí 2024 18:26
Sverrir Ingi hafði betur í Íslendingaslagnum Sverrir Ingi Ingason og Mikael Anderson mættust í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í dag en Sverrir og félagar í Midtjylland sóttu þrjú mikilvæg stig í toppbaráttunni. Fótbolti 12. maí 2024 18:03
Jafntefli eftir óvænt brotthvarf Óskars Haugesund gerði 2-2 jafntefli á útivelli gegn HamKam í Íslendingaslag í dag, í fyrsta leik sínum eftir að Óskar Hrafn Þorvaldsson ákvað óvænt að hætta sem þjálfari liðsins. Fótbolti 12. maí 2024 17:06
Orri mikilvægur gegn erkióvinum og FCK á toppinn Eftir fjóra sigra í röð hefur FC Kaupmannahöfn laumað sér, nánast „bakdyramegin“ upp í efsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir. Fótbolti 12. maí 2024 16:23
Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum KR og HK mættust í 6. umferð Bestu deildar karla í fótbolta að Meistaravöllum í dag þar sem gestirnir fóru með frækinn sigur af hólmi. Íslenski boltinn 12. maí 2024 16:15
Hlín allt í öllu í sigri Kristianstad Hlín Eiríksdóttir var í aðalhlutverki í dag þegar Kristianstad vann 3-1 sigur á Trelleborg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 12. maí 2024 15:08
Sonur Kristbjargar fagnaði góðum sigri Albert Guðmundsson var merktur mömmu sinni í leik með Genoa í dag, þegar liðið vann 2-1 sigur gegn Sassuolo í ítölsku A-deildinni í fótbolta. Fótbolti 12. maí 2024 15:00
Langþráð endurkoma Valgeirs Landsliðsbakvörðurinn Valgeir Lunddal Friðriksson sneri loksins aftur til leiks í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, eftir langvinn meiðsli, þegar hann lék með Häcken í 3-1 sigri á Kalmar. Fótbolti 12. maí 2024 14:12
Ótrúlegur árangur Glódísar og Bayern en Selma fallin Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir var á sínum stað í vörn Bayern München þegar liðið vann öruggan 4-0 sigur á Nürnberg, liði Selmu Sólar Magnúsdóttur, sem þar með er formlega fallið niður um deild. Fótbolti 12. maí 2024 13:58
Þórir hélt Braunschweig uppi og gerði Sveini greiða Þórir Jóhann Helgason reyndist hetja Braunschweig í dag þegar liðið vann 1-0 sigur á Wehen Wiesbaden og tryggði sér áframhaldandi veru í þýsku 2. deildinni í fótbolta. Um leið hjálpaði hann Hansa Rostock, liði Sveins Arons Guðjohnsen. Fótbolti 12. maí 2024 13:36
„Skulda mér mikinn pening þarna hjá Lyngby“ „Þeir skulda mér mikinn pening þarna hjá Lyngby,“ sagði Freyr Alexandersson, fyrrverandi þjálfari Lyngby í kímni og hló svo dátt í kjölfarið að sögn blaðamanns Tipsbladet sem náði í skottið á honum áðan til að spyrja út í möguleg félagsskipti Andra Lucasar Guðjohnsen frá Lyngby til belgíska úrvalsdeildarfélagsins Gent sem virðist nálægt því að kaupa íslenska landsliðsframherjann. Fótbolti 12. maí 2024 12:23
Andri og Eiður mættir til Belgíu að semja Landsliðsframherjinn Andri Lucas Guðjohnsen er eftirsóttur enda markahæsti leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta og hann mun nú eiga í viðræðum við belgíska félagið Gent. Fótbolti 12. maí 2024 10:18
Trúir að Burnley snúi aftur upp: „Er ekki að væla og vorkenna okkur“ Vincent Kompany, knattspyrnustjóri Burnley, segist ekki ætla að vorkenna sjálfum sér eftir að liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni í gær. Fótbolti 12. maí 2024 08:00
Léku með eftirnöfn mæðra sinna á treyjunum Merkingar á treyjum leikmanna AC Milan vöktu líklega athygli margra er liðið mætti Cagliari í ítölsku deildinni í gær. Fótbolti 12. maí 2024 07:00
Hálf áttræður Warnock gæti snúið aftur tveimur mánuðum eftir að hann hætti Gamla brýninu Neil Warnock gengur bölvanlega að hætta afskiptum af fótbolta, en þessi 75 ára gamli knattspyrnustjóri gæti snúið aftur aðeins mánuði eftir að hann sagðist vera sestur í helgan stein. Fótbolti 11. maí 2024 22:46
AC Milan kom sér aftur á sigurbraut með stórsigri AC Milan vann afar öruggan 5-1 sigur er liðið tók á móti Cagliari í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 11. maí 2024 20:40
Hólmbert upp í efstu deild en Ísak gæti enn farið beint upp Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar hans í Fortuna Düsseldorf eiga enn möguleika á því að fara beint upp í þýsku úrvalsdeildina eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli gegn toppliði Holstein Kiel í kvöld. Fótbolti 11. maí 2024 20:25