Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. ágúst 2026 22:00 Mykhailo Mudryk er mættur aftur í Chelsea treyjuna. Asuka Chan/Eurasia Sport Images/Getty Images Mykhailo Mudryk gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Chelsea í tæp tvö ár þegar liðið mætir Juventus í æfingaleik á morgun.
Leikbanni úkraínska framherjans fyrir brot á lyfjareglum var skyndilega aflétt síðasta föstudag. Alþjóðalyfjaeftirlitið breytti reglum sínum og Mudryk var sleppt lausum því magnið af meldóníum sem fannst í blóðsýni hans árið 2024 er undir nýjum refsiþröskuldi. Mudryk hefur ekki spilað fótboltaleik síðan í nóvember 2024 en ferðaðist til Hong Kong um helgina og gæti snúið aftur á völlinn á morgun. „Já, hann gæti spilað. Kannski ekki níutíu mínútur, það er of snemmt í það, en hann verður valinn í hópinn og gæti spilað. Hann æfði í gær, eftir að hafa komið beint á hótelið af flugvellinum. Þannig að gærdagurinn snerist mest um að fá tilfinningu fyrir öllu, að snúa aftur á æfingu og sjá hvernig formið er,“ sagði Xabi Alonso, þjálfari Chelsea, á blaðamannafundi í dag. Samkvæmt umfjöllun BBC er Mudryk mjög ánægður með viðmót Chelsea meðan hann var í banni og sjálfur er hann sagður hafa lagt mikið á sig til að halda sér í formi. Mudryk mátti ekki æfa með liðinu á meðan banninu stóð en hann leigði æfingasvæði sjöundu deildar liðsins Uxbridge FC og réði sér einkaþjálfara til aðstoðar auk markmanns til að standa á milli stanga. Mudryk mun fá tækifæri til að sanna sig fyrir Xabi Alonso og þjálfarateymi hans en Chelsea skoðar líka möguleikann á því að lána hann út. Coventry og fleiri félög í ensku úrvalsdeildinni eru sögð áhugasöm en Mudryk gæti einnig farið til Strasbourg, systurfélags Chelsea.
Chelsea FC Enski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Sjá meira