Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 5. ágúst 2026 14:32 Neymar lét öllum illum látum eftir leik. Marco Miatelo/Sports Press Photo/Getty Images Neymar var sjálfum sér til skammar eftir 1-0 sigur Santos gegn Remo í sextán liða úrslitum bikarkeppninnar í Brasilíu í gærkvöld.
Neymar varð fyrir aðkasti stuðningsmanna Remo á meðan leiknum stóð og svaraði fyrir sig. Eftir leik hoppaði hann dansandi um völlinn og blés fingurkossum í átt að stuðningsmönnum Remo. Neymar hélt áfram að hrella Remo-menn. Þegar liðin löbbuðu að búningsherbergjunum heyrðist Neymar hrópa „Úr leik! Þið eruð úr leik!“ að leikmönnum, þjálfurum og stuðningsmönnum Remo. 🚨Neymar taunted Remo fans after Santos’ victory in the Copa Libertadores pic.twitter.com/KWu1zsjsvH— Polymarket Sports (@PolymarketSport) August 5, 2026 Forseti Remo var líka á svæðinu og sagði Neymar hafa hagað sér eins og trúð. „Þessi auli, Neymar, sem margir ungir krakkar líta upp til, kom hérna og hagaði sér eins og trúður. Við erum öll meðsek í að gera menn eins og hann að fyrirmyndum fyrir börnin okkar,“ sagði Antonio Carlos Texeira, forseti Remo. ⚡️ Neymar en craquage complet après la victoire de Santos face à Remo en Coupe du Brésil et tout ça devant... le staff, les joueurs ET le Président du club adverse.La scène est tout simplement lunaire 😳 pic.twitter.com/lpRdx69mZU— RMC Sport (@RMCsport) August 5, 2026 Neymar virtist vera í miklu ójafnvægi í gær en það er ekkert nýtt. Hann hefur átt erfitt uppdráttar eftir heimkomuna til Santos. Inn á milli hefur glitt í gamla takta hjá Neymar, hann sýndi snilldartilþrif í lokaumferðum síðasta tímabils og hjálpaði Santos að bjarga sér frá falli, en oftar en ekki að undanförnu er það hegðun hans utan vallar sem vekur athygli. Neymar lenti í slagsmálum við liðsfélaga sinn Robinho Jr., sem er sonur fyrrum Real Madrid og Manchester City leikmannsins Robinho, síðastliðinn maí. Hann hefur einnig staðið í stappi við stuðningsmenn Santos og verið sakaður um að leggja ekki nógu mikið á sig fyrir liðið. Landsliðsferli Neymar er formlega lokið og væntanlega er ekki langt eftir af félagsliðaferlinum en spurning er hvort Santos muni framlengja samninginn sem á að renna út næstu áramót.
Brasilía Fótbolti Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira