„Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Árni Gísli Magnússon skrifar 4. ágúst 2026 22:44 Ólafur Ingi hefur ekki horft á neitt verra en fyrri hálfleik Breiðabliks í kvöld. vísir / guðmundur Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, segir fyrri hálfleikinn vera þann slakasta undir hans stjórn þegar Breiðablik tapaði 1-0 gegn Þór á VÍS-vellinum á Akureyri í kvöld. „
Ég held að fyrri hálfleikurinn, bara hvernig við mættum hérna inn í leikinn, líklega okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við liðinu. Mér fannst leikurinn bera þess merki að mér fannst hann virka eins og hann væri mikilvægari fyrir þá en fyrir okkur. Mér fannst þeir vera miklu miklu viljugri í öllum sínum aðgerðum. Mér fannst við vera á eftir í flestu sem við gerðum, spiluðum inn í pressuna alveg trekk í trekk. Náum þar af leiðandi engu tempói í okkar leik og leikurinn fór alltof mikið fram inni á okkar vallarhelmingi hvort sem við vorum með boltann eða ekki en þeir héldu okkur bara frá markinu og eins og ég sagði, við vorum bara á eftir í öllu,“ sagði Ólafur Ingi eftir leik. Það virtist koma Blikum í opna skjöldu hversu mikil orka var í Þórsurum sem pressuðu þá hátt uppi á vellinum frá fyrstu mínútu að Ólafur segir það ekki hafa komið þeim á óvart. „Nei ég myndi ekki segja það. Er meira á því að við vorum bara ekki að hreyfa okkur nógu vel án bolta, fannst við ekki vera nógu viljugir að komast á hann, mér fannst við vera of fljótir að losa hann og inn í þeirra teig og kannski svona brjóta leikinn nógu mikið upp. Eins og ég sagði áðan fór hann mikið fram inni á okkar vallarhelmingi og ef við erum ekki að finna lausnir á pressunni þá þarf að leita meira á bak við og brjóta leikinn upp en mér fannst við ekki gera það. Mér fannst við svolítið halda áfram að rembast án þess að finna nokkrar lausnir. Auðvitað betri í seinni hálfleik, sköpum okkur ágætis færi og eigum sennilega að skora jöfnunarmark en það er áhyggjuefni hvernig við mætum leiks.“ Af hverju mætir liðið svona til leiks? „Ef ég hefði svör við því núna þá væri það geggjað. Eins og ég segi, ég veit það ekki, þetta er náttúrulega svo sem, við ferðuðumst í morgun og svo er þetta löng bið og annað. Er það mögulega einhver ástæða fyrir því? Það á ekki að vera það. Við töluðum mikið um það fyrir leik að hingað hafa lið komið og byrjað leiki illa og lent í vandræðum þannig við vorum fullkomlega klárir á því að það kæmi hátt orkustig hjá þeim og við þyrftum að mæta því. Svo þarf ég bara að kafa aðeins ofan í það, hvað veldur.“
Besta deild karla Breiðablik Þór Akureyri Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira