Liverpool að blanda sér í Meistaradeildarbaráttuna Liverpool stökk upp í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 2-0 sigri gegn Wolves í kvöld. Liðið er nú aðeins sex stigum frá Meistaradeildarsæti og á leik til góða. Fótbolti 1. mars 2023 22:00
Tottenham féll úr leik gegn B-deildarliði og Southampton gegn D-deildarliði Á hverju ári býður enska bikarkeppnin, FA-bikarinn, upp á óvænt úrslit og í kvöld fengu áhorfendur að sjá tvö úrvalsdeildarlið falla úr leik gegn liðum í neðri deildum. Tottenham mátti þola 1-0 tap gegn B-deildarliði Sheffield United og D-deildarlið Grimsby Town gerði sér lítið fyrir og sló Southampton úr leik. Fótbolti 1. mars 2023 21:54
Arsenal endurheimti fimm stiga forskot með öruggum sigri Arsenal styrkti stöðu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta er liðið vann öruggan 4-0 sigur gegn Everton í kvöld. Fótbolti 1. mars 2023 21:39
Hákon lagði upp er FCK komið langleiðina í undanúrslit Íslendingalið FCK er komið langleiðina í undanúrslit dönsku bikarkeppninnar í fótbolta eftir 2-0 sigur gegn Vejle í kvöld. Fótbolti 1. mars 2023 21:08
Þjálfari Króata neitaði að greiða atkvæði Zlatko Dalic, þjálfari króatíska karlalandsliðsins í knattspyrnu, er ekki par sáttur með Alþjóða knattspyrnusambandið og þykir brotið á sínum mönnum þegar kemur að því að veitingu viðurkenninga hjá sambandinu. Fótbolti 1. mars 2023 17:01
Ronaldo valinn besti leikmaður mánaðarins Cristiano Ronaldo var kjörinn besti leikmaður febrúarmánaðar í sádi-arabísku fótboltadeildinni. Fótbolti 1. mars 2023 16:01
Cole Campbell skoraði í vítakeppni á móti PSG Íslenski unglingalandsliðsmaðurinn William Cole Campbell komst í gær áfram í átta liða úrslit Evrópukeppni unglingaliða þegar lið hans Borussia Dortmund sló út Paris Saint-Germain. Fótbolti 1. mars 2023 14:30
Mourinho rekinn út af í þriðja sinn í vetur: „Ég er tilfinningaríkur en ekki brjálaður“ José Mourinho, knattspyrnustjóri Roma, fékk rautt spjald í þriðja sinn á tímabilinu þegar hans menn töpuðu óvænt fyrir Cremonese, 2-1, í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Portúgalinn var ósáttur við fjórða dómara leiksins. Fótbolti 1. mars 2023 12:30
Gamla lið Gunnhildar breytir buxum vegna blæðinga Orlando Pride er fyrsta félagið í bandarísku NWSL-deildinni sem tekur tillit til tíðarhrings leikmanna liðsins. Fótbolti 1. mars 2023 12:01
Handhafi markametsins á HM látinn Just Fontaine, sem á metið yfir flest mörk skoruð í einni heimsmeistarakeppni, er látinn, 89 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu í Toulouse. Fótbolti 1. mars 2023 10:11
Hakimi hafnar ásökunum um nauðgun Marokkóski fótboltamaðurinn Achraf Hakimi, varnarmaður PSG í Frakklandi, hefur vísað á bug ásökunum um nauðgun. Hann er sagður sæta lögreglurannsókn vegna gruns um að hafa nauðgað konu um síðustu helgi. Fótbolti 1. mars 2023 09:01
Ivan Toney játar sök og gæti verið á leið í langt bann Enski knattspyrnumaðurinn Ivan Toney, framherji Brentford í ensku úrvalsdeildinni, hefur játað sök í flestum ákæruliðum eftir að hann var sakaður um rúmlega 260 brot á veðmálareglum enska knattspyrnusambandsins. Fótbolti 28. febrúar 2023 23:31
Íslendingalið Bayern tryggði sér sæti í undanúrslitum Íslendingalið Bayern München tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í knattspyrnu er liðið vann góðan 2-0 útisigur gegn Hoffenheim. Fótbolti 28. febrúar 2023 22:17
City ekki í vandræðum með B-deildarlið Bristol | Leicester óvænt úr leik Englandsmeistarara Manchester City eru komnir í átta liða úrslit FA-bikarsins í knattspyrnu eftir öruggan 3-0 útisigur gegn B-deildarliðið Bristol City í kvöld. Nokkrum mínútum áður féll úrvalsdeildarlið Leicester úr leik eftir óvænt 2-1 tap gegn B-deildarliðið Blackburn Rovers. Fótbolti 28. febrúar 2023 22:01
Juventus nálgast Evrópusæti eftir sigur í borgarslagnum Juventus vann sterkan 4-2 sigur er liðið tók á móti nágrönnum sínum í Torino í borgarslag ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Fótbolti 28. febrúar 2023 21:46
Sveindís lagði upp tvö er Wolfsburg komst í undanúrslit Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg eru komnar í undanúrslit þýsku bikarkeppninnar í fótbolta eftir öruggan 4-0 útisigur gegn Köln í kvöld. Fótbolti 28. febrúar 2023 20:51
Mourinho sá rautt og Roma tapaði gegn botnliðinu Í þriðja skiptið á tímabilinu var hinn skrautlegi þjálfari Roma, José Mourinho, rekinn upp í stúku með beint rautt spjald er liðið mátti þola 2-1 tap gegn botnliði Cremonese í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 28. febrúar 2023 19:26
Silva skaddaði liðbönd og gæti verið lengi frá Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea þarf að raiða sig af án hins reynslumikla varnamanns Thiago Silva í næstu eftir að miðvörðurinn skaddaði liðbönd í hné í 2-0 tapi liðsins gegn Tottenham um síðustu helgi. Fótbolti 28. febrúar 2023 18:30
Tottenham byggir kappakstursbraut undir vellinum í samstarfi við F1 Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham tilkynnti í vikunni samstarf við Formúlu 1 og mun félagið útbúa kappakstursbraut undir heimavelli liðsins, Tottenham Hotspur Stadium. Fótbolti 28. febrúar 2023 17:46
Liðsfélagi Arons dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að eyðileggja hornfána Liðsfélagi Arons Elísar Þrándarsonar hjá Odense Boldklub missti stjórn á skapi sínu í síðasta leik og það hefur sínar afleiðingar. Fótbolti 28. febrúar 2023 16:32
Nýja Osimhen kakan slær í gegn í Napólíborg Napolíbúar elska fótbolta og stórstjörnur liðsins eru í guðatölu í borginni. Enginn fær meiri ást og aðdáun í borginni núna en nígeríski framherjinn Victor Osimhen. Fótbolti 28. febrúar 2023 16:00
Alaba varð fyrir kynþáttaníði eftir að hafa valið Messi fram yfir Benzema David Alaba varð fyrir kynþáttaníði eftir að hafa kosið Lionel Messi besta leikmann heims en ekki samherja sinn hjá Real Madrid, Karim Benzema. Fótbolti 28. febrúar 2023 15:01
Vond vika varð enn verri hjá Börsungum Knattspyrnulið Barcelona upplifði sannkallaða martraðarviku í lok febrúarmánaðar. Fótbolti 28. febrúar 2023 14:00
Pogba loksins klár í slaginn og gæti spilað fyrsta leikinn í tæpt ár Eftir margra mánaða fjarveru vegna meiðsla er Paul Pogba loksins klár í slaginn. Hann verður í leikmannahópi Juventus í borgarslagnum gegn Torino í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fótbolti 28. febrúar 2023 13:31
Stuðningsmennirnir brenndu treyju Balotelli í stúkunni Mario Balotelli spurði um árið: Af hverju alltaf ég? Enn á ný virðist þetta eiga við. Fótbolti 28. febrúar 2023 12:31
Hættur eftir ásakanir um kynferðislega áreitni og fleiri hneyksli Hinn afar umdeildi Noël Le Graët er endanlega hættur sem forseti franska knattspyrnusambandsins, eftir að hafa meðal annars verið sakaður um kynferðislega áreitni. Fótbolti 28. febrúar 2023 11:56
Var að hugsa um að hætta í fótbolta en var kosin best í heimi í gær Allir þurfa góða dæmisögu um að gefast ekki upp því það getur skilað miklum árangri á endanum. Markvörður Evrópumeistara Englendinga í kvennafótboltanum er frábært dæmi um að það borgar sig að halda áfram. Fótbolti 28. febrúar 2023 11:31
Íslendingarnir völdu Messi en ekki þá bestu Fulltrúar Íslands í vali FIFA á besta knattspyrnufólki ársins 2022 voru sammála um hvaða fólk ætti að vera efst á lista, en tilkynnt var um kjörið í gærkvöld. Fótbolti 28. febrúar 2023 08:31
„Hann sprautar einhverju í kálfann á mér og hann sprautar einhverju í bakið á mér“ Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður enska B-deildarliðsins Burnley og íslenska landsliðsins mætti í hlaðvarpsþáttinn Chat After Dark, áður Chess After Dark, og fór yfir víðan völl. Meiðslin sem Jóhann Berg varð fyrir á HM í Rússlandi árið 2018 var meðal þess sem var rætt í þættinum. Fótbolti 28. febrúar 2023 07:00
Messi og Putellas valin best Lionel Messi og Alexia Putellas voru í kvöld valin bestu leikmenn ársins 2022 af Alþjóða knattspyrnusambandinu FIFA. Verðlaunaafhendingin fór fram í París. Var fjöldinn allur af verðlaunum veittur í kvöld. Fótbolti 27. febrúar 2023 23:01