FIFPRO pressar á FIFA: „Sama vinna og sami árangur ætti að fá sömu verðlaun“ Alþjóða leikmannasamtökin FIFPRO, kalla nú formlega eftir því að Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, jafni aðstöðu og almennan hlut kvenna á heimsmeistaramótum miðað við hvað karlpeningurinn fær að njóta á samskonar mótum. Fótbolti 16. mars 2023 10:31
Utan vallar: Skattaskýrslunni skilað Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur leik í undankeppni EM 2024 síðar í mánuðinum. Svo virðist sem þjóðarpúlsinn sé mátulega jákvæður um þessar mundir eftir afar erfiða mánuði hjá íslenska liðinu. En er innistæða fyrir bjartsýni fyrir undankeppnina? Fótbolti 16. mars 2023 10:00
Líkt og það séu álög á Klopp þegar mótherjinn kemur frá Spáni Jürgen Klopp, þjálfara Liverpool, hefur gengið bölvanlega að sigrast á spænskum liðum síðan hann tók við stjórnartaumunum í Bítlaborginni. Fótbolti 16. mars 2023 08:30
„Að tapa sér í þessari umræðu finnst mér nokkuð sérstakt“ Arnar Þór Viðarsson tilkynnti í gær íslenska landsliðshópinn fyrir leikina tvo í undankeppni EM sem fram fara í næstu. Leikjahæsti landsliðsmaður frá upphafi er ekki í hópnum. Fótbolti 16. mars 2023 07:30
Verður áfram forseti FIFA þar sem það er ekkert mótframboð Giovanni Vincenzo, eða einfaldlega Gianni, Infantino hefur setið í embætti forseta FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandsins, frá árinu 2016. Hann mun gera það áfram þar sem enginn býður sig fram gegn honum. Fótbolti 16. mars 2023 07:01
„Ekki það sem við vildum en það sem við fengum“ Það var ekki bjart yfir Jürgen Klopp, þjálfara Liverpool, þegar hann mætti í viðtal eftir 1-0 tap sinna manna á Santiago Bernabéu-vellinum í Madríd. Eftir að hafa tapað 5-2 á heimavelli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu var brekkan brött fyrir drengina frá Bítlaborginni. Fótbolti 15. mars 2023 23:31
Óeirðir fyrir leik en Napoli hafði öll völd í leiknum sjálfum Napoli lagði Eintracht Frankfurt 3-0 í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Ítalska liðið vann einvígið þar með 5-0 og fór örugglega áfram. Fótbolti 15. mars 2023 22:10
Benzema skoraði og Real fór örugglega í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu Evrópumeistarar Real Madríd unnu 1-0 sigur á Liverpool í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Real vann fyrri leik liðanna á Anfield 5-2 og var því í góðum málum fyrir leik kvöldsins. Fótbolti 15. mars 2023 22:00
Brighton og Brentford í bullandi baráttu um Evrópusæti Brighton & Hove Albion og Brentford unnu leiki kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Enski boltinn 15. mars 2023 21:31
„Ef ég ræð ekki við Rikka G í padel þá get ég ekkert spilað fótbolta“ Markahæsti leikmaður í sögu Fylkis hefur lagt skóna á hilluna. Bakslag hans, Padel viðureign gegn Rikka G, var dropinn sem fyllti mælinn. Íslenski boltinn 15. mars 2023 19:45
Þrumaði boltanum upp í stúku þótt lið hans væri að vinna Cristiano Ronaldo, leikmaður Al Nassr í Sádi-Arabíu var allt annað en sáttur þegar flautað var til hálfleiks í bikarleik liðsins gegn Abha. Litlu máli skipti að Al-Nassr væri 2-0 yfir og sigurinn næsta vís. Fótbolti 15. mars 2023 18:00
Snýr aftur til Chelsea í sumar eftir mislukkaða lánsdvöl á Ítalíu Lánsdvöl belgíska framherjans Romelu Lukaku hjá Inter Milan á Ítalíu hefur ekki gengið að óskum. Framkvæmdastjóri félagsins hefur staðfest að Lukaku fari aftur til Chelsea að dvölinni lokinni. Fótbolti 15. mars 2023 17:01
Óvissa ríkir um framtíð Gavi vegna skráningarvesens og baráttu Barcelona við La Liga Hinn gríðarlegi efnilegi Gavi gæti verið á leið frá Barcelona á frjálsri sölu þar sem samningur hans við félagið gæti verið ógildur. Málið er flókið og er hluti af ástæðunni bakvið þeirrar miklu spennu sem nú ríkir milli Barcelona og spænsku úrvalsdeildarinnar, La Liga. Fótbolti 15. mars 2023 16:30
Peningahljóð út af stjórnarfundi FIFA í gær Ekki ein heldur tvær heimsmeistarakeppnir félagsliða hjá FIFA í framtíðinni. Fótbolti 15. mars 2023 12:30
Birkir er að reyna að losna frá liði sínu eftir jarðskjálftana í Tyrklandi Leikhæsti leikmaðurinn í sögu íslenska landsliðsins er ekki í hópi Arnars Þórs Viðarssonar fyrir fyrstu leiki Íslands í undankeppni EM 2024. Fótbolti 15. mars 2023 11:28
Arnar um Albert: Vonbrigði að hann sé ekki tilbúinn til að koma inn í landsliðið á forsendum liðsins Arnar Þór Viðarsson tilkynnti í dag landsliðshóp sinn fyrir fyrstu leiki Íslands í undankeppni EM 2024. Þar vantar einn heitasta fótboltamann landsins. Fótbolti 15. mars 2023 11:14
Hópurinn sem hefur ferðina á EM: Albert og Birkir ekki með en Sævar fær tækifæri Arnar Þór Viðarsson hefur tilkynnt landsliðshóp sinn fyrir fyrstu leiki Íslands í undankeppni EM karla í fótbolta. Birkir Bjarnason og Albert Guðmundsson eru ekki í hópnum. Fótbolti 15. mars 2023 11:13
Þjálfarinn stökk frá borði skömmu áður en Ísland mætir í heimsókn Martin Stocklasa, fyrrverandi þjálfari landsliðs Liechtenstein, sagði starfi sínu lausu fyrr í þessum mánuði. Það má því segja að Liechtenstein verði þjálfaralaust þegar Ísland mætir í heimsókn í undankeppni EM 2024. Fótbolti 15. mars 2023 11:00
Hefur sýnt og sannað að enn er hægt að koma á óvart á gervihnattaöld Georgímaðurinn Khvicha Kvaratskhelia, mögulega betur þekktur sem Kvaradona, hefur undanfarna mánuði heillað knattspyrnuaðdáendur á Ítalíu sem og um gervalla Evrópu með ótrúlegum hæfileikum sínum. Reikna má með að hann spæni upp vænginn þegar Napoli tekur á móti Eintracht Frankfurt í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 15. mars 2023 10:31
Garnacho frá næstu vikurnar Ungstirnið Alejandro Garnacho, leikmaður Manchester United, verður frá næstu vikurnar eftir að hafa orðið fyrir meiðslum í markalausu jafntefli liðsins við Southampton í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi. Enski boltinn 15. mars 2023 09:31
Sjáðu mörkin: Bæði fljótastur og yngstur til að skora þrjátíu í Meistaradeild Evrópu Erling Braut Håland er svo sannarlega engum líkur. Norski framherjinn hefur nú skorað 30 mörk í Meistaradeild Evrópu, í aðeins 25 leikjum. Það gerir hann fljótasta leikmann sögunnar til að ná þeim áfanga sem og þann yngsta. Mörkin fimm sem Håland skoraði í gær, þriðjudag, má sjá neðst í fréttinni. Fótbolti 15. mars 2023 09:00
Henderson ekki með á Bernabéu Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, verður ekki með sínum mönnum í kvöld þegar liðið mætir á Santiago Bernabéu í Madríd og reynir að snúa einvíginu gegn Real Madríd sér í vil. Stefan Bajcetic verður einnig fjarverandi í kvöld. Fótbolti 15. mars 2023 07:30
HM karla í knattspyrnu mun innihalda 48 þjóðir árið 2026 Talið er næsta öruggt að Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, muni á næstunni samþykkja breytingu á heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu. Mótið sem fram fer í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó mun innihalda 48 þjóðir og verða stærsta HM sögunnar. Fótbolti 15. mars 2023 07:01
„Ofurkraftur minn er að skora mörk“ „Þetta er stórt kvöld. Í fyrsta lagi er ég stoltur af því að spila í þessari keppni, ég elska það. Fimm mörk! Að vinna 7-0 er ótrúlegt,“ sagði norski markahrókurinn Erling Braut Håland eftir ótrúlegan sigur Manchester City á RB Leipzig í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 14. mars 2023 23:31
Þrjú mörk í seinni hálfleik tryggðu sigur Víkings | Undanúrslitin klár Víkingur lagði Aftureldingu með þremur mörkum gegn gengu í Mosfellsbæ í Lengjubikar karla í knattspyrnu. Um var að ræða lokaleik liðanna í riðlinum og eru Víkingar komnir áfram í undanúrslit keppninnar. Íslenski boltinn 14. mars 2023 23:00
Inter naumlega áfram eftir að leggja rútunni í Portúgal Inter Milan er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir markalaust jafntefli við Porto í Portúgal. Inter vann fyrri leikinn 1-0 og er því komið áfram. Fótbolti 14. mars 2023 22:15
Fimm frá Håland og Man City flaug áfram Erling Braut Håland gerði sér lítið fyrir og skoraði fimm mörk í ótrúlegum 6-0 sigri Manchester City á RB Leipzig í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Staðan í einvíginu var 1-1 eftir fyrri leikinn. Fótbolti 14. mars 2023 21:55
Fyrrverandi leikmaður KR lést aðeins 28 ára að aldri Mia Gunter lék með KR í Bestu deild kvenna sumarið 2018. Hún lést á dögunum, aðeins 28 ára að aldri. Fótbolti 14. mars 2023 21:30
Þjálfara Elíasar Rafns sparkað Danska úrvalsdeildarfélagið Midtjylland hefur ákveðið að láta þjálfara sinn, Albert Capellas, fara. Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson leikur með liðinu. Fótbolti 14. mars 2023 21:01
ÍBV í undanúrslit með fullt hús stiga eftir sigur á Kópavogsvelli ÍBV vann 3-2 sigur á Breiðabliki í Lengjubikar karla í knattspyrnu í kvöld. Eyjamenn voru með fullt hús stiga fyrir leik kvöldsins og þurftu heimamenn þriggja marka sigur itl að komast í undanúrslit keppninnar. Íslenski boltinn 14. mars 2023 20:35