Inter bikarmeistari þökk sé tvennu Martínez Inter sigraði Fiorentina 2-1 í úrslitum Coppa Italia, bikarkeppni karla í knattspyrnu á Ítalíu, í kvöld. Fótbolti 24. maí 2023 21:15
Þrjú mörk dæmd af í fjörugu jafntefli Brighton og Englandsmeistaranna Englandsmeistarar Manchester City gerðu 1-1 jafntefli við Brighton & Hove Albion í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Enski boltinn 24. maí 2023 21:00
Sverrir Ingi og félagar töpuðu í úrslitum Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn þegar PAOK tapaði 2-0 fyrir AEK Aþenu í úrslitum grísku bikarkeppninnar. PAOK var manni fleiri frá 6. mínútu leiksins. Fótbolti 24. maí 2023 20:00
Real aftur upp í annað sætið eftir dramatískan sigur Real Madríd er komið upp í 2. sæti La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, eftir dramatískan 2-1 sigur á Rayo Vallecano. Fótbolti 24. maí 2023 19:31
Pirlo atvinnulaus Tyrkneska knattspyrnufélagið Fatih Karagümrük Spor Kulübü hefur ákveðið að láta þjálfara sinn Andrea Pirlo fara þó enn séu þrjár umferðir þangað til tyrkneska úrvalsdeildin klárast. Fótbolti 24. maí 2023 18:45
Varnarmaður Man United á leið til Barcelona Ona Batlle verður samningslaus í sumar og stefnir í að hún gangi í raðir Barcelona en hún er uppalin í Katalóníu. Enski boltinn 24. maí 2023 17:45
Vann tvo titla á fyrsta tímabilinu með PSV en er hættur vegna innanbúðar vandræða Ruud van Nistelrooy er hættur sem þjálfari PSV Eindhoven þrátt fyrir að tímabilinu sé ekki lokið. Fótbolti 24. maí 2023 16:02
Búa sig undir mikið fyllerí og ólæti Lögreglan í Tékklandi verður með fjölmennt lið til taks þegar stuðningsmenn West Ham og Fiorentina fara að streyma til höfuðborgarinnar, Prag, vegna úrslitaleiks Sambandsdeildar Evrópu. Fótbolti 24. maí 2023 15:30
Valencia þarf að vera með tóma stúku í fimm leikjum Spænska knattspyrnusambandið hefur brugðist hart við þeirri meðferð sem brasilíski framherjinn Vinicius Junior fékk frá stuðningsmönnum Valencia á dögunum. Fótbolti 24. maí 2023 15:01
Ronaldo: Deildin í Sádi-Arabíu gæti orðið ein af þeim fimm bestu í heimi Cristiano Ronaldo hefur mikla trú á uppgangi deildarinnar í Sádi-Arabíu á næstu árum en hann gekk til liðs við Al Nassr í janúar. Fótbolti 24. maí 2023 12:01
Hrósar De Zerbi í hástert og segir hann einn áhrifamesta stjóra síðustu áratuga Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, hrósar kollega sínum hjá Brighton, Roberto de Zerbi, í hástert og segir hann einn áhrifamesta þjálfara síðustu tuttugu ára. Fótbolti 24. maí 2023 07:00
Facebook-síða Maradona hökkuð: „Þið vitið að ég sviðsetti dauða minn“ Óprúttinn aðili hefur komist inn á Facebook-síðu knattspyrnugoðsagnarinnar Diego Maradona og birtir þar heldur ónærgætnar færslur um þessar mundir. Fótbolti 23. maí 2023 22:41
Annað tapið í röð eftir að titillinn var í höfn Nýkrýndir Spánarmeistarar Barcelona máttu þola 3-2 tap er liðið heimsótti Real Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Var þetta annað tap Börsunga í röð eftir að liðið tryggði sér titilinn. Fótbolti 23. maí 2023 22:02
HK tók mikilvæg stig gegn Fylki HK vann sterkan 1-0 sigur er liðið tók á móti Fylki í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í Kórnum í kvöld. Fótbolti 23. maí 2023 21:18
„Hef reynt nánast allt til að benda á þá ömurlegu stöðu sem við búum við“ Óli Stefán Flóventsson, þjálfari karlaliðs Sindra frá Höfn í Hornafirði, er kominn í leyfi frá þjálfarastörfum sökum þess að hann kveðst vera að bugast vegna stuðningsleysis af hálfu bæjarfélagsins og skorts á aðstöðu á Höfn. Fótbolti 23. maí 2023 20:04
Stefna að milljarða uppbyggingu á félagssvæði KA Undirritaður var samningur á milli Akureyrarbæjar og Knattspyrnufélags Akureyrar (KA) um uppbyggingu íþróttamannvirkja á félagssvæði KA. Samningurinn er framhald af viljayfirlýsingu milli aðila sem var undirrituð í desember 2021. Áætlaður kostnaður við keppnisvöllinn, stúkumannvirkið og félags- og búningsaðstöðuna er rúmlega 2,6 milljarðar á núverandi verðlagi. Fótbolti 23. maí 2023 19:51
Sjö handteknir grunaðir um kynþáttaníð í garð Vinícius Júnior Spænska lögreglan hefur handtekið sjö einstaklinga vegna gruns um að hafa beitt brasilíska knattspyrnumanninn Vinicius Junior, leikmann Real Madrid, kynþáttaníði. Fótbolti 23. maí 2023 18:45
Sjáðu atvikið: Hitnaði í kolunum er Sveinn Aron braut á Arnóri í Svíþjóð Íslendingaslagur gærdagsins í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, á milli IFK Norrköping og Elfsborg, bauð upp á allt sem góður Íslendingaslagur ætti að bjóða upp á. Fótbolti 23. maí 2023 16:00
AC Milan hafi áhuga á Alberti: Fetar hann í fótspor langafa? Forráðamenn ítalska stórliðsins AC Milan fylgjast grannt með stöðu mála hjá íslenska landsliðsmanninum Alberti. Fótbolti 23. maí 2023 15:25
Leika fyrir luktum dyrum næsta árið eftir að tólf manns létu lífið Heimaleikir salvadorska knattspyrnufélagsins Alianza FC næsta árið verða leiknir fyrir luktum dyrum en knattspyrnusamband El Salvador hefur kveðið upp dóm sinn í kjölfar troðnings sem varð á leikvangi félagsins og dró tólf manns til bana. Fótbolti 23. maí 2023 14:30
Kominn með nóg eftir óþverra helgarinnar: Íhugar að yfirgefa Spán Vinicus Jr., leikmaður Real Madrid á Spáni, íhugar nú alvarlega að yfirgefa félagið og spænsku úrvalsdeildina eftir að hafa fengið sig fullsaddan af aðgerðarleysi deildarinnar gegn kynþáttaníði. Vinicius upplifir sig einan í baráttunni. Fótbolti 23. maí 2023 11:30
Phil Neville tók kast á blaðamannafundi: „Sýndu smá helvítis virðingu“ Phil Neville, þjálfari Inter Miami, var illa fyrir kallaður á blaðamannafundi eftir 3-1 tap liðsins fyrir Degi Dan Þórhallssyni og félögum í Orlando City í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Fótbolti 23. maí 2023 11:01
Mikill áhugi á kröftum Arnórs sem hefur farið á kostum Næstu vikur hjá Arnóri Sigurðssyni verða fróðlegar. Mikill áhugi er á leikmanninum, sem hefur farið á kostum með IFK Norrköping í Svíþjóð á láni frá rússneska félaginu CSKA Moskvu í Rússlandi. Fótbolti 23. maí 2023 10:05
Myrkur yfir Jesústyttunni til stuðnings við Vinicius Slökkt var á ljósunum við hina frægu Jesústyttu í Ríó de Janeiro í Brasilíu í gærkvöld, í eina klukkustund, til að sýna stuðning við Vinicius Junior vegna kynþáttaníðsins sem hann hefur orðið fyrir á Spáni. Fótbolti 23. maí 2023 07:59
Þakka ótrúlegan stuðning eftir að kveikt var í velli félagsins Skoska neðri deildarliðið Dunipace FC hefur þakkað stuðningsfólki sínu fyrir ótrúlegan stuðning og fjárhagslega aðstoð eftir að kveikt var í gervigrasvelli liðsins fyrir ekki svo löngu. Fótbolti 23. maí 2023 07:00
Dæmdi úrslitaleik HM og nú úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu Pólverjinn Szymon Marciniak mun dæma úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á milli Inter og Manchester City sem fram fer á Atatürk-vellinum í Istanbúl í Tyrklandi þann 10. júní. Fótbolti 22. maí 2023 23:30
Arsenal stórhuga í sumar Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal er stórhuga í sumar eftir að hafa misst enska meistaratitilinn í knattspyrnu úr greipum sér. Liðið stefnir á að bæta við sig nokkrum þekktum stærðum til að það gerist ekki aftur. Enski boltinn 22. maí 2023 23:00
Rúnar Páll: Þetta er ekki búið fyrr en þetta er búið Stjarnan og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í 8. umferð Bestu deildar karla í Garðabænum í kvöld. Eftir að Fylkir hafði komist í 1-2 jöfnuðu Stjörnumenn með marki undir lokin. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, var súr í leikslok. Íslenski boltinn 22. maí 2023 22:10
Var mjög dramatískur og mjög spennandi leikur Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, var að vonum ánægður með dramatískan sigur á Þór/KA í Bestu-deild kvenna í fótbolta. Dramatískt mark Freyju Karínar Þorvarðsdóttur á loka mínútu leiksins var það sem skildi liðin að í lokin. Íslenski boltinn 22. maí 2023 22:01
Rúnar Kristinsson: Leikmennirnir sýna að þeir hafi trú á verkefninu Þjálfari KR, Rúnar Kristinsson, var feginn þegar flautað var til leiksloka á Fram vellinum fyrr í kvöld. Hans menn náðu í langþráðan 1-2 sigur á Fram og hysjuðu sig upp úr fall sætunum. Rúnar var þó á því að mikil vinna sé framundan og þeir séu alls ekki hólpnir. Fótbolti 22. maí 2023 21:43