Manchester United gefst upp á að eltast við Kane Svo virðist sem forráðamenn Manchester United séu búnir að gefast upp á því að eltast við enska landsliðsfyrirliðann Harry Kane, framherja Tottenham. Fótbolti 15. júní 2023 10:01
Meistararnir byrja titilvörnina gegn Jóa Berg og félögum Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í sínum fyrsta leik í endurkomu sinni í ensku úrvalsdeildina á næsta tímabili. Greint var frá leikjaniðurröðun næsta tímabils nú fyrir skemmstu og Burnley tekur á móti Englandsmeisturum Manchester City í opnunarleik tímabilsins. Fótbolti 15. júní 2023 09:01
Chelsea hafnaði tilboði Man United í Mount Enska knattspyrnufélagið Manchester United bauð formlega í Mason Mount, miðjumann Chelsea og enska landsliðsins, í gær, miðvikudag. Chelsea hafnaði tilboðinu. Frá þessu greina breskir fjölmiðlar á borð við Telegraph, Guardian og fleiri. Enski boltinn 15. júní 2023 08:32
Spilaði kviðslitinn nær allt tímabilið Son Heung-min, framherji Tottenham Hotspur og Suður-Kóreu, hefur greint frá því að hann hafi spilað stóran hluta síðasta tímabils kviðslitinn. Enski boltinn 15. júní 2023 08:00
Banna kaup eins og þau þegar Glazer keypti Man United Eigendur félaga í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hafa bannað kaup þar sem kaupandi hleður skuldum á félagið sem verið er að kaupa. Hefði slíkt bann verið í gildi árið 2005 hefði Glazer-fjölskyldan aldrei eignast Manchester United. Enski boltinn 15. júní 2023 07:31
„Ekkert vandamál fyrir mig, sama hvaða stöðu hann vill nota mig í“ Jóhann Berg Guðmundsson fagnar aukinni stemningu í kringum landsliðið eftir erfið undanfarin ár. Hann er hluti af landsliðshópnum sem undirbýr sig fyrir komandi leiki í undankeppni EM. Fótbolti 15. júní 2023 07:00
Dagskráin í dag: Golf og Lindex mótið Það hafa oft verið fleiri beinar útsendingar á rásum Stöðvar 2 Sport en í dag. Boðið verður upp á golf og fótbolta. Fótbolti 15. júní 2023 06:00
Króatar unnu í framlengdum leik og mæta Ítalíu eða Spáni í úrslitum Holland og Króatía mættust í undanúrslitum Þjóðadeildar karla í knattspyrnu í kvöld. Króatar unnu 4-2 í framlengdum leik og mæta annað hvort Ítalíu eða Spáni í úrslitum. Fótbolti 14. júní 2023 22:30
„Þetta er menningin þeirra og maður þarf að komast hratt inn í hana“ „Það er táragas og gassprengjur frá Lögreglunni á vellinum,“ segir Hörður Björgvin Magnússon, leikmaður Panathinaikos í Grikklandi. Hann segir stuðningsmenn þar ansi líflega. Hann undirbýr sig nú fyrir leikina mikilvægu með íslenska landsliðinu og segir Åge Hareide, landsliðsþjálfara vera á réttri leið með liðið. Fótbolti 14. júní 2023 21:58
Macron reynir að sannfæra Mbappe um að vera áfram í PSG Emmanuel Macron, forseti Frakklands, mun reyna að sannfæra Kylian Mbappe um að vera áfram hjá Paris Saint-Germain. Fótbolti 14. júní 2023 19:46
Guðrún Arnardóttir hélt hreinu í stórsigri Rosengård Guðrún Arnardóttir, landsliðskona Íslands, stóð í hjarta varnarinnar í liði Rosengård sem vann stórsigur á Kalmar í Damallsvenskan, efstu deild í Svíþjóð. Fótbolti 14. júní 2023 18:24
Fyrsti fótbolta skemmtigarður Evrópu opnar í Smáralind Fótboltaland í Smáralind, sem opnaði í upphafi júnímánaðar, er fyrsti fótbolta skemmtigarður Evrópu og þótt víðar væri leitað. Lífið samstarf 14. júní 2023 18:00
James Milner frá Liverpool til Brighton James Milner, miðjumaður Liverpool, fer á frjálsri sölu til Brighton. Hann hefur verið hjá Liverpool í átta ár og er einungis 34 leikjum frá því að slá Gareth Barry við sem leikjahæsta leikmanni ensku Úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Fótbolti 14. júní 2023 17:32
Leikmaður Malmö fékk dóm fyrir ölvunarakstur Leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins Malmö hefur verið dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Fótbolti 14. júní 2023 17:00
Þriggja ára bann fyrir að gera grín að Hillborough-slysinu Kieron Darlow, 25 ára gamall stuðningsmaður Tottenham Hotspur, hefur verið úrskurðaður í þriggja ára bann frá því að mæta á fótboltaleiki eftir að hann var fundinn sekur um að gera grín að Hillsborough-slysinu, mannskæðasta breska íþróttatengda slysi sögunnar. Fótbolti 14. júní 2023 16:31
Getur ekki hætt og mun þjálfa þangað til hann verður 75 ára Gamla brýnið Neil Warnock hefur ákveðið að feta í fótspor Roy Hodgson og þjálfa fótbolta þangað til hann verður 75 ára gamall. Huddersfield Town staðfesti í dag að Warnock myndi stýra liðinu á næstu leiktíð eftir að hafa bjargað þeim frá falli á nýafstaðinni leiktíð. Enski boltinn 14. júní 2023 16:00
Alfreð áfram hjá Lyngby: „Ég mun aldrei gleyma síðasta tímabili“ Landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við danska úrvalsdeildarliðið Lyngby og spilar því með liðinu á næsta tímabili. Fótbolti 14. júní 2023 13:26
Úrslitin í leik Fylkis og KR standa þrátt fyrir kæru KR-inga Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur úrskurðað að úrslit í leik KR og Fylkis í Lengjudeild kvenna skuli standa. KR hafði kært leikinn á þeim grundvelli að Fylkir hefði teflt fram ólöglegum leikmanni í leiknum en Árbæingar unnu einkar sannfærandi 6-0 sigur. Íslenski boltinn 14. júní 2023 13:00
Djammið tekið sinn toll af Grealish: „Ég er að drepast úr sársauka“ Jack Grealish, leikmaður Manchester City, er farinn að finna fyrir eftirköstum stífrar drykkju eftir að City vann Evrópumeistaratitilinn um helgina. Enski boltinn 14. júní 2023 12:30
Félagaskiptagluggi Englands opnaður: Stór nöfn gætu verið á faraldsfæti Félagaskiptagluggi ensku úrvalsdeilda karla og kvenna í knattspyrnu hefur verið opnaður og má búast við flugeldum. Fjöldi stórra nafna mun skipta um lið í sumar fyrir upphæðir með svo mörgum núllum að við almúginn skiljum þær varla. Í tilefni þess tók Sky Sports saman hvaða 50 leikmenn er vert að fylgjast sérstaklega með í sumar. Fótbolti 14. júní 2023 12:01
Bellingham orðinn leikmaður Real Knattspyrnumaðurinn Jude Bellingham er orðinn leikmaður Real Madríd. Gæti hann orðið dýrasti Englendingur sögunnar. Fótbolti 14. júní 2023 10:30
Brasilía mætir Spáni í vináttuleik til að berjast gegn rasisma í garð Vinícius Brasilía og Spánn munu mætast í vináttulandsleik í mars á næsta ári þar sem markmiðið verður að berjast gegn kynþáttafordómum sem Vinícius Júnior, leikmaður Real Madrid og brasilíska landsliðsins, hefur þurft að þola á Spáni. Fótbolti 14. júní 2023 10:00
Lukaku með risatilboð frá Sádí-Arabíu Framtíð Romelu Lukaku virðist vera algjörlega óráðin. Lukaku lék með Inter í vetur þar sem hann var á láni. Hann er ennþá leikmaður Chelsea en hefur ítrekað lýst því yfir að hann vilji vera áfram á Ítalíu og þá helst hjá Inter. Fótbolti 14. júní 2023 07:00
Heimildirnar frá Katar byggðar á sandi og enn óvíst hver eignast Man United Í gær, þriðjudag, bárust fréttir þess efnis að allt væri klappað og klárt er kæmi að nýjum eiganda enska knattspyrnuliðsins Manchester United. Þær fréttir reyndust þvættingur. Enski boltinn 14. júní 2023 06:00
Markasúpa í Lengjudeild kvenna | Grindavík skoraði fimm gegn toppliðinu Þrír leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í kvöld og bar þar hæst að Grindvíkingar unnu stórsigur á toppliði HK, 5-3. Fótbolti 13. júní 2023 21:34
Alfreð vill vera áfram hjá Lyngby en Arnór er á leiðinni frá Nörrköping og fer ekki aftur til Rússlands Alfreð Finnbogason segist hafa lært mikið af því þegar hann vann síðast með Age Hareide fyrir rúmlega áratugi síðan. Fótbolti 13. júní 2023 20:15
Vinir Messi orðaðir við Inter Miami Eftir að félagaskipti Lionel Messi til Inter Miami í MLS deildinni í Bandaríkjunum voru staðfest á dögunum hrannast inn fréttir af fleiri mögulegum félagaskiptum til liðsins úr vinahópi Messi. Nýjasta nafnið er varnarmaðurinn Jordi Alba, sem leikið hefur með Barcelona síðan 2012. Fótbolti 13. júní 2023 18:45
Fjögurra leikja bann fyrir að bíta andstæðing Alberto Sánchez Montilla, leikmaður Kormáks/Hvatar hefur verið dæmdur í fjögurra leikja bann fyrir að bíta andstæðing sinn í leik liðsins gegn Kára í 3. deildinni síðastliðinn sunnudag. Fótbolti 13. júní 2023 16:41
Haaland hættur að fagna og lentur í Noregi Erling Haaland er kominn heim til Noregs eftir stíf fagnaðarhöld Manchester City í kjölfar þess að liðið tryggði sér þrennuna með sigri á Inter í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á laugardag. Fótbolti 13. júní 2023 15:01
Stjórnendur PSG æfir en Mbappé segir þá ekki eiga að vera hissa Franska knattspyrnustjarnan Kylian Mbappé hefur staðfest við frönsku fréttaveituna AFP að hann muni ekki framlengja samning sinn við PSG. Hann segist raunar hafa gert félaginu grein fyrir því fyrir tæpu ári síðan. Frétt um að hann vilji fara til Real Madrid í sumar er hins vegar röng, að sögn Mbappé. Fótbolti 13. júní 2023 14:00