Utan vallar: Ísland og hin heimilislausu liðin drógust saman í umspili EM Íslenska karlalandsliðið er nú aðeins tveimur sigurleikjum frá því að tryggja sér sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi næsta sumar. Fótbolti 24. nóvember 2023 10:01
Selja miða sem gilda þó ekki ef Messi spilar leikinn Bandaríska fótboltaliðið New York Red Bulls er að bjóða stuðningsmönnum sínum sérstakt tilboð fyrir hátíðirnar. Það er samt eins gott þó að kaupendur lesi smáa letrið. Fótbolti 24. nóvember 2023 09:30
Íslensku stelpurnar eru skalladrottningar sænsku deildarinnar Íslenska kvennalandsliðið á góða skallamenn og það hafa okkar landsliðskonur líka sýnt og sannað á þessu tímabili. Fótbolti 24. nóvember 2023 09:01
Stjórnvöld í Venesúela: Þeir rændu fótboltalandsliðinu okkar Perú og Venesúela gerðu 1-1 jafntefli í undankeppni HM í vikunni í leik sem fór fram í Lima í Perú. Venesúelamenn hafa nú sakað Perú um að ræna fótboltalandsliði þjóðarinnar. Fótbolti 24. nóvember 2023 08:00
Balotelli í hörðum árekstri í gærkvöldi Ítalski knattspyrnumaðurinn Mario Balotelli er engum líkur og honum tókst að koma sér tvisvar í fréttirnar í gær. Balotelli byrjaði daginn á því að kalla eftir því að hann fengi annað tækifæri með ítalska landsliðinu en endaði daginn hins vegar á því að klessa bílinn sinn. Fótbolti 24. nóvember 2023 07:00
Vill að Sun Jun-ho verði leystur úr haldi Hinn þýski Jürgen Klinsmann, þjálfari Suður-Kóreu í knattspyrnu, hefur óskað eftir því að leikmaðurinn Sun Jun-ho verði leystur úr haldi Kínverja fyrir jól en leikmanninum hefur verið haldið þar í landi frá því síðasta sumar. Fótbolti 24. nóvember 2023 06:32
Litlar sem engar líkur taldar á EM sæti Íslands Tölfræðiveitan Football Meets Data hefur reiknað út líkur þeirra liða, sem taka þátt í umspili um laust sæti á EM 2024 í fótbolta, á að tryggja sér sæti á EM í gegnum umspilið. Ísland er á meðal þátttökuþjóða í umspilinu. Fótbolti 23. nóvember 2023 23:30
Kerr með þrennu í sigri Chelsea Sam Kerr skoraði þrennu þegar Chelsea lagði París FC í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Þá vann AS Roma 3-0 sigur á Ajax. Fótbolti 23. nóvember 2023 21:59
Glódís Perla lagði upp sigurmarkið í París Bayern München lagði París Saint-Germain á útivelli í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði gestanna, lagði upp sigurmarkið. Fótbolti 23. nóvember 2023 20:01
Mikael ber af í þremur tölfræðiþáttum Mikael Neville Anderson, landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu, ber af í þremur tölfræðiþáttum í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Frá þessu greinir félag hans, AGF. Fótbolti 23. nóvember 2023 19:01
Þjálfari FCK orðaður við Ajax Jacob Neestrup, þjálfari FC Kaupmannahafnar, hefur verið orðaður við Ajax en lítið sem ekkert hefur gengið hjá hollenska stórveldinu það sem af er leiktíð. Nicolai Boilesen, leikmaður FCK, lék áður með Ajax og segir liðið í raun þurfa á þjálfara eins og Neestrup að halda. Fótbolti 23. nóvember 2023 18:15
Þjálfari Júlíusar sakfelldur Mikkjal Thomassen, þjálfari norska knattspyrnufélagsins Fredrikstad, hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi af dómstóli í Færeyjum í kjölfar hótunar sem hann beindi að knattspyrnumanni í Færeyjum í fyrra. Fótbolti 23. nóvember 2023 17:00
Åge hefur trú á Íslandi í umspilinu: „Í fótbolta er ekkert ómögulegt“ Age Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta lýst vel á möguleika liðsins í umspili fyrir EM. Ísland mætir Ísrael í undanúrslitum umspilsins og hefur Hareide trú á því að liðið geti tryggt sér sæti á EM. Hann vonast til að allir bestu og reyndustu leikmenn Íslands verði klárir í baráttuna í mars. Fótbolti 23. nóvember 2023 15:27
Haaland borgar fyrir tvö hundruð stuðningsmenn æskufélagsins Norska stórstjarnan Erling Braut Haaland er ekki búinn að gleyma heimahögunum eins og hann sýnir og sannar með því að leggja fram rausnarlega peningagjöf til að hjálpa æskufélaginu sínu að komast í hóp þeirra bestu. Fótbolti 23. nóvember 2023 14:01
„Leikur gegn Ísrael mjög álitlegur kostur fyrir okkur“ Jóhannes Karl Guðjónsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir leið liðsins að EM sæti í gegnum umspil í mars á næsta ári vera leið sem hægt sé að sætta sig við. Ísland mun mæta Ísrael í undanúrslitum umspilsins. Fótbolti 23. nóvember 2023 12:47
Jón Dagur meðal efstu manna í stoðsendingum í undankeppni EM Jón Dagur Þorsteinsson lagði upp flest mörk fyrir íslenska landsliðið í undankeppni EM en riðlakeppninni lauk á þriðjudagskvöldið. Fótbolti 23. nóvember 2023 12:31
Sonur Zlatans valinn í landsliðshóp Zlatan Ibrahimovic hefur sett landsliðsskóna upp á hilluna en það gæti verið stutt í það að annar Ibrahimovic spili með sænska landsliðinu. Fótbolti 23. nóvember 2023 12:00
Þurfum söguleg úrslit: Ísland hefur aldrei unnið Ísrael Íslenska karlalandsliðið þarf að brjóta blað í sögunni til þess að tryggja sér sæti í úrslitum EM-umspilsins í mars á næsta ári. Liðið leikur undanúrslitaleik við Ísrael í mars. Fótbolti 23. nóvember 2023 11:44
Mæta Ísrael í umspilinu Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Ísrael í undanúrslitum umspils um sæti á EM 2024. Fótbolti 23. nóvember 2023 11:15
Segir af sér en vill samt halda áfram Javier Tebas, forseti spænsku deildarinnar, tilkynnti um afsögn sína í gær en hann vildi boða til nýrra kosninga um forsetaembættið. Fótbolti 23. nóvember 2023 11:00
Mikill ruglingur í kringum „síðasta dansinn“ hjá Messi og Ronaldo Fyrr í vikunni tilkynntu Sádi-Arabar að knattspyrnugoðin Lionel Messi og Cristiano Ronaldo myndu mætast í síðasta sinn á fótboltavellinum í febrúar næstkomandi en nú er komið upp babb í bátinn. Fótbolti 23. nóvember 2023 07:00
Celtic sektaðir í þriðja sinn fyrir hegðun stuðningsmanna UEFA hefur sektað skoska knattspyrnufélagið Celtic um €29.000, sem jafngildir tæpum fjórum og hálfum milljónum króna, fyrir hegðun stuðningsmanna á leik liðsins gegn Atletico Madrid. Fótbolti 22. nóvember 2023 22:30
Brann vann en Ingibjörg fór í fýluferð Önnur umferð Meistaradeildar kvenna fór fram í kvöld. Natasha Anasi-Erlingsson kom inn á sem varamaður fyrir Brann og hélt sigurgöngu þeirra áfram en Guðrún Arnardóttir og stöllur í Rosengard máttu þola tap gegn Benfica. Ríkjandi meistarar Barcelona eru enn ósigraðar. Fótbolti 22. nóvember 2023 22:01
Reggístrákarnir mæta Bandaríkjunum í undanúrslitum Rétt í þessu var dregið í undanúrslit CONCACAF Þjóðadeildarinnar eftir að 8-liða úrslit keppninnar kláruðust í gær. Heimir Hallgrímsson mun stýra Jamaíku gegn ríkjandi meisturum mótsins, Bandaríkjunum. Í hinni viðureign undanúrslitanna mætast Panama og Mexíkó. Fótbolti 22. nóvember 2023 19:31
Meistararnir í neðsta styrkleikaflokki Nokkuð ljóst virðist vera hvaða andstæðinga úr neðsta styrkleikaflokki liðin vilja forðast þegar dregið verður í riðla á EM 2024 í fótbolta karla. Fótbolti 22. nóvember 2023 17:01
England tapaði fyrir Úsbekistan Margir ráku eflaust upp stór augu þegar þeir sáu úrslitin í leik Englands og Úsbekistans í sextán liða úrslitum á HM U-17 ára í fótbolta karla sem fer fram í Indónesíu. Fótbolti 22. nóvember 2023 16:01
Elísabet ekki eini Íslendingurinn sem hættir hjá Kristianstad Miklar breytingar eru í gangi hjá Íslendingaliðinu Kristianstad í Svíþjóð og Íslendingum fækkar mikið hjá félaginu á milli tímabila. Fótbolti 22. nóvember 2023 15:30
Suárez segir Núnez einn besta framherja heims Luis Suárez fór fögrum orðum um Darwin Núnez eftir að sá síðarnefndi skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Úrúgvæ á Bólivíu í undankeppni HM 2026. Fótbolti 22. nóvember 2023 15:01
Þjálfari heimsmeistaranna gæti hætt Þjálfari argentínsku heimsmeistaranna, Lionel Scaloni, segir að hann gæti hætt eftir fimm ár í starfi. Hann vakti máls á þessu eftir sigurinn á Brasilíu. Fótbolti 22. nóvember 2023 14:31
Potter hafði ekki áhuga á því að taka við sænska landsliðinu Svíar eru að leita sér að nýjum þjálfara fyrir karlalandsliðið sitt í fótbolta en Janne Andersson hætti með liðið eftir að Svíum mistókst að tryggja sér sæti á Evrópumótinu næsta sumar. Fótbolti 22. nóvember 2023 12:00
Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn