Eina þjóðin sem kom ekki á ársþing FIFA en með á HM Sindri Sverrisson skrifar 30. apríl 2026 22:16 Gianni Infantino á ársþingi FIFA í Kanada í dag. Getty/Rich Lam Forráðamenn Knattspyrnusambands Íslands mættu á ársþing FIFA í Kanada í dag líkt og kollegar þeirra frá öllum öðrum löndum, fyrir utan Íran. Gianni Infantino, forseti FIFA, ítrekaði þó að Íranar yrðu með á HM í fótbolta í sumar.
Aðeins sex vikur eru þar til að HM í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada hefst. Íran var á meðal fyrstu þjóða til að tryggja sig inn á mótið en eftir að stríðið braust út í Mið-Austurlöndum hefur óvissa ríkt um þátttöku liðsins á mótinu. Af 211 aðildarþjóðum FIFA var Íran sú eina sem ekki átti fulltrúa á ársþinginu í dag. Samkvæmt íranska miðlinum Tasnim var fulltrúum íranska knattspyrnusambandsins, þar á meðal formanninum Mehdi Taj, snúið við í vegabréfaeftirlitinu eftir komuna til Kanada. Taj er sagður hafa tengsl við Íranska byltingarvörðinn, IRGC, en þau samtök eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök í Kanada. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, staðfesti að meðlimum IRGC væri ekki heimilt að koma til Kanada. „Auðvitað mun Íran spila í Bandaríkjunum“ Þrátt fyrir þetta ítrekaði Infantino á þinginu að Íran yrði með á HM. Liðið á að spila í G-riðli með Nýja-Sjálandi, Belgíu og Egyptalandi, og spila leiki sína í Inglewood og Seattle í Bandaríkjunum. „Auðvitað mun Íran spila í Bandaríkjunum. Ástæðan þess er einföld, við verðum að standa saman. Við verðum að færa fólkið nær hvert öðru,“ sagði Infantino. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur áður sagt að Íran sé velkomið á HM en þó einnig að Íranar ættu ekki að vera með, vegna þeirra eigin öryggis. Þegar hann var spurður út í ummæli Infantino í dag svaraði hann: „Tja, ef Gianni sagði það þá er ég sammála. Ég held við ættum að leyfa þeim að spila,“ sagði Trump.
HM 2026 í fótbolta Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Fleiri fréttir McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Sjá meira