Bayern og PSG hvíldu sig vel fyrir seinni leikinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. maí 2026 17:36 Harry Kane, Joshua Kimmich og Luis Diaz sátu hjá í fyrri hálfleik í dag. Getty/Chris Brunskill Bæði Bayern Munchen og PSG hvíldu lykilmenn í leikjum dagsins en það kostaði líka sitt, jafntefli varð niðurstaðan á báðum vígstöðvum.
Jafnteflið skiptir Þýskalandsmeisturum Bayern litlu máli. PSG er hins vegar ekki orðið Frakklandsmeistari. Liðið er með sex stiga forystu á Lens nú þegar fjórar umferðir eru eftir. Bayern mætti Hedenheim og gerði 3-3 jafntefli í fjörugum leik. Stórskyttunum Harry Kane, Luis Diaz og Michael Olise var skipt inn á þegar Bayern var 2-0 undir í hálfleik. Leon Goretzka þakkaði þá fyrir traustið þegar Jamal Musiala var tekinn af velli. Goretzka skoraði tvö mörk og jafnaði leikinn fyrir Bayern. Gestirnir frá Hedenheim komust síðan yfir á 76. mínútu en Michael Olise skoraði jöfnunarmark á tíundu mínútu uppbótartíma. PSG gerði níu breytingar á sínu byrjunarliði í 2-2 jafntefli gegn Lorient. PSG þarf sem fyrr segir tvo sigra til viðbótar til að verða meistari og mátti því minna við jafnteflinu í dag. Desiré Doué hélt sínu sæti í byrjunarliðinu og lagði upp mark fyrir Ibrahim Mbaye, sem spilaði á hægri kantinum í stað Ousmane Dembélé. Warren Zaire-Emery kom svo inn af varamannabekknum og skoraði annað mark PSG en Aiyegun Tosin skoraði annað jöfnunarmark fyrir Lorient seint í leiknum. Bayern tekur á móti PSG í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudag. Staðan er 5-4 eftir fyrri leikinn og seinni leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Þýski boltinn Franski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Fleiri fréttir Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Sjá meira