
Gagnrýna fyrirhuguð bílastæðagjöld
Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn frumvarpi Jóns Gunnarssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, um breytingar á lögum um bílastæðagjöld.
Fréttir af ýmsum málum tengdum ferðamennsku á Íslandi.
Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn frumvarpi Jóns Gunnarssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, um breytingar á lögum um bílastæðagjöld.
Fjölgun erlendra ferðamanna fyrstu fjóra mánuði ársins er langt umfram spár. Reyndur ferðaþjónustumaður óttast skort á gistirými.
Icelandair opnaði í gærkvöldi nýja setustofu á Keflavíkurflugvelli, Saga Lounge, í nýrri byggingu á efstu hæð flugstöðvarinnar.
Á síðustu sex árum hafa ferðamenn sem versla hér á landi og vilja ekki nýta sér endurgreiðslu á Tax Free látið 10 milljónir renna til styrktar góðgerðarmála í gegnum Premier Tax Free á Íslandi.
Slíkt leyfi hefði aldrei verið gefið út að sögn þess sem annast slíkar leyfisveitingar á Íslandi. Um 40 leyfi til að dreifa ösku ástvina eru gefin úr árlega á Íslandi.
Það er alveg ljóst að slíkar miðstöðvar eru bráðnauðsynlegar á Íslandi og mín skoðun er að við eigum að sjálfsögðu að selja inn á okkar helstu ferðamannaperlur. Annað er fásinna.
Byggingar- og skipulagsfulltrúi Rangárþings eystra minnir á að engin drög séu til um hönnun nýrrar þjónustumiðstöðvar við Seljalandsfoss.
Björgunarsveitarbíll var sendur á vettvang í forgangsakstri en síðar kom í ljós að meiðsl konunnar voru ekki eins alvarleg og leit út fyrir í fyrstu.
Íslendingar setja traust sitt heldur betur á ferðamanninn.
Vegagerðin hefur sett upp skilti við afleggjarann af fangelsinu við Kvíabryggju á Snæfellsnesi. Skiltinu er ætlað að stemma stigu við komu erlendra ferðamanna sem hafa áhuga á því berja Kirkjufell augum sem er í næsta nágrenni við fangelsið.
Arndís Halla Ásgeirsdóttir er vön að standa á sviðinu í stórum óperuhúsum og á sýningum úti í heimi að syngja fyrir áhorfendur. Nú fá erlendir ferðamenn líka að njóta söngs hennar.
Sveitarstjóri Rangárþings eystra segir uppbyggingu í sveitarfélaginu meiri nú en áður hafi sést. Það á bæði við um þéttbýli og dreifbýli. Ferðaþjónusta drífur vöxtinn áfram.
Ferðamálastjóri hjá Innovasion Norge segir Norðmenn fylgjast vel með aukningu ferðamanna til Íslands.
Fjórir nemendur úr Háskólanum í Reykjavík vilja koma upp sjálfsölum við helstu ferðamannastaði landsins þar sem ferðamönnum verður boðið að leigja armbönd.
Dvelur á Suðurlandi.
Hann segir ekki sjá mikið athugavert við það að Ísland sé dýr áfangastaður og að ferðaþjónustan geti haldið áfram að vaxa og dafna. Til þess þurfi þó skýra sýn og samstarf stjórnvalda og ferðaþjónustunnar.
Tillaga stýrihóps um akstur hópbifreiða með ferðamenn í miðborginni gengur lengra en áður. Breyttum fjallajeppum er gefið rauða spjaldið. Bannið tekur ekki til þeirra sem eiga sinn fjallabíl fyrir sig og sína. FETAR segja sinnuleysi borga
"Excel skjalið tekur ekki tillit til mismunandi aðstæðna, landsbyggðirnar og höfuðborgin eru eitt, skjalið segir að Ísland allt árið sé raunveruleikinn, þegar staðreyndirnar segja allt annað.“
Í dag er haldið upp á þrjátíu ára afmæli flugstöðvarinnar sem er sífellt að stækka.
Litið á mál læðunnar Nuk sem óhapp.
Ferðamennirnir komu til landsins með Norrænu síðastliðinn þriðjudag og spurðist fljótlega út að þeir væru með kött í húsbílnum sínum.
Búist er við að ferjusiglingar milli Reykjavíkur og Akraness hafi góð áhrif á ferðaþjónustu á síðarnefnda staðnum. Reykjavík og Akranes buðu hvort um sig 15 milljónir fyrir samning um siglingarnar. Siglt verður þrisvar á dag. Dótturf
Þessir ferðamenn munu eflaust eiga fallegar minningar frá Íslandi um ókomna tíð.
Nú þegar eru tekin bílastæðagjöld og salernisgjöld í þjóðgarðinum og segir Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður, að stefnt sé áfram að því að taka gjöld á Þingvöllum fyrir veitta þjónustu.
Alls er gert ráð fyrir að 104 skemmtiferðaskip komi til hafnar á Ísafirði í sumar en fyrir fimm árum voru 32 skipakomur í höfnina. Starfshópur um komu skemmtiferðaskipa hittist á þriðjudag þar sem Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir, formaður starfshópsins, kynnti atriði sem sérstaklega þarf að skoða fyrir sumarið.
Sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja með einu pennastriki um 20 milljarða skattahækkun á ferðaþjónustuna á ári verður ekki túlkuð öðruvísi en sem hrein aðför að greininni í heild.
Myndir frá Seljavallalaug sýna slæma umgengni, enn til athugunar er að vakta svæðið reglulega.
"Ég hef miklar áhyggjur varðandi ferðaþjónustuna á landsbyggðinni sem er í uppbyggingar fasa.“
Til samanburðar við 1.400 sumarstörf Icelandair búa um 1.250 manns á Siglufirði.
Í drögum að frumvarpi Bjartar Ólafsdóttur, umhverfis-og auðlindaráðherra, um breytingar á lögum um þjóðgarðinn á Þingvöllum er lagt til að í reglugerð megi ákveða að taka gestagjöld innan þjóðgarðsins fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu. Í dag er bæði rukkað fyrir bílastæðagjöld innan þjóðgarðsins sem og fyrir aðgang að salerni.