
Frá formanni kjaranefndar Leiðsagnar – stéttarfélags leiðsögumanna
Það er ástæða til að hafa áhyggjur af deilum ríkisins og ljósmæðra.
Fréttir af ýmsum málum tengdum ferðamennsku á Íslandi.
Það er ástæða til að hafa áhyggjur af deilum ríkisins og ljósmæðra.
Launakostnaður sem hlutfall af tekjum Icelandair Group er umtalsvert hærri en hjá helstu keppinautum flugfélagsins. Hlutfallið hefur hækkað hratt á undanförnum tveimur árum. Sérfræðingur segir ekkert fyrirtæki ráða við viðlíka kostnaðarhækkanir til lengdar.
Eitt herbergja hótelsins við Bláa lónið er ekki auglýst.
Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Iceland Travel, segir að laun séu komin að þolmörkum í ferðaþjónustu. Ferðaskipuleggjendur hafa margir hverjir ákveðið að hvíla Ísland á meðan gengið er jafn sterkt og raun ber vitni. Aukinn áhugi er á Íslandi frá NorðurAmeríku og Asíu en þar er sumarfrí styttra.
Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að stöðva gjaldtöku Isavia á bílastæðum fyrir hópferðafyrirtæki sem aka frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Steingrímur J. Sigfússon var í átján manna hópi úr fjölskyldu- og vinahópi hans sem lenti í hrakningum í Meyjardal á Ströndum á sunnudag.
Aukið eftirlit með íbúðagistingu breytir litlu fyrir samkeppnisstöðu ferðaþjónustunnar ef seljendur á neytendamarkaði halda áfram að sleppa við að innheimta virðisaukaskatt og gistináttaskatt.
Ferðaþjónustan á Íslandi er í alþjóðlegri samkeppni um hylli ferðafólks.
Guðmundur segir að skömmu eftir að hann hafi tekið við embætti hafi hann falið Umhverfisstofnun að taka saman greinargerð um mögulegt bann við brennslu svartolíu.
Franskir ferðamenn sem fóru utanvegar á tveimur jeppabifreiðum austan við Kerlingarfjöll í gær voru yfirheyrðir á lögreglustöðinni á Selfossi í morgun.
Hringvegurinn, eða þjóðvegur eitt, er í sjötta sæti af fimmtíu á lista vefsíðunnar Flight Network yfir bestu ferðalög í heimi í ár.
Gera má ráð fyrir að kostnaður upp á hundruð milljóna lendi á bílaleigum verði ný umferðarlög samþykkt óbreytt. Ekki tekið tillit til athugasemda SAF um málið. Framkvæmdastjóranum finnst óeðlilegt að bílaleigur beri ábyrgð á hraðakstri viðskiptavina sinna.
Björgunarsveitarmaður segir sárt að hugsa til þess að ferðamenn greiði hátt í tvær milljónir fyrir tjón á bifreiðum sem verður þegar þeir festast í ám og straumvötnum.
Í annað sinn á átján mánuðum hefur Icelandair verið skellt niður á jörðina.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, segir að ráðuneytið hafi verið að endurskoða reiknireglur sem varða tryggingar sem ferðaskrifstofum er skylt að útvega.
Tryggingar sem 339 ferðaskrifstofum á Íslandi er skylt að útvega vegna pakkaferða nema 4,3 milljörðum króna samkvæmt tölum Ferðamálastofu. Nýsamþykkt lög geta leitt til þess að hundruð ferðaþjónustufyrirtækja til viðbótar verði gerð tryggingarskyld.
Gæfan getur verið hverful í viðskiptalífinu.
Samtök ferðaþjónustunnar fagna nýútkominni skýrslu um færniþörf á vinnumarkaði en Ísland hefur lengi verið eftirbátur Evrópuríkja þegar kemur að því að leggja mat á hæfni- og menntunarþörf á vinnumarkaði til skemmri og lengri tíma.
Greiningarfyrirtækið IFS telur að EBITDA-hagnaður Icelandair Group – afkoma fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir – verði 21,9 milljónir dala á öðrum fjórðungi ársins og lækki þannig um 48 prósent á milli ára, að því er fram kemur í nýrri afkomuspá IFS sem Fréttablaðið hefur undir höndum.
Herðubreið, oft nefnd drottning íslenskra fjalla, er eitt fegursta fjall á Íslandi.
Landeigendur í Vogum í Mývatnssveit hafa brugðið á það ráð að loka Kvennagjá, vinsælum ferðamannastað í sveitinni, vegna slæmrar umgengni.
Markaðsvirði rúmlega tveggja prósenta hlutar Traðarhyrnu, sem er í eigu einkafjárfesta, í Icelandair Group hefur lækkað um 40 prósent frá kaupunum í febrúar 2017.
Hagfræðingur Viðskiptaráðs fer yfir stöðu íslensku flugfélaganna.
Sú aðferðafræði Icelandair Group að bíða og vona að fargjöld hækki hefur gengið sér til húðar, að sögn greinanda Landsbankans. Hlutabréfaverð fyrirtækisins lækkaði um fjórðung í gær eftir afkomuviðvörun.
Verðfall hlutabréfa í Icelandair Goup eru fyrstu staðfestu merki um samdrátt í ferðaþjónustu að mati prófessors í hagfræði við HÍ. Framkvæmdastjóri SAF segir tíma samþjöppunar fram undan. 15 milljarðar af markaðsvirði Icelandair þurrkuðust út í gær.
Um 71 þúsund Íslendingar fóru utan í júní í ár eða 14,4 prósentum fleiri en í júní 2017.
Í ljósi fjölgunar á komum skemmtiferðaskipa til Seyðisfjarðar, þrýstu bæjarbúar á um loftgæðamælingar á höfninni á Seyðisfirði til að mæla umfang mengunar af völdum skipa.
Hið herta eftirlit með skipum sem Umhverfisstofnun boðaði síðasta haust er enn ekki byrjað.
Dornier-skrúfuþota sem Flugfélagið Ernir keypti í vetur og kom til landsins fyrir rúmum sex vikum stendur enn ónotuð í flugskýli 1 á Reykjavíkurflugvelli.
Unnið er að gerð nýrrar ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar sem leysa á stefnu frá 2011 af hólmi. Formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur segir löngu tímabært að setja skýrar reglur um sambúð ferðaþjónustunnar og íbúa borgarinnar. Áskorun að tryggja góða sambúð milli ferðaþjónustunnar og borgarbúa.