

Fastir pennar

Ásýnd og traust
Þótt stjórnendur fjármálafyrirtækja taki ákvarðanir í góðri trú með rétta hagsmuni að leiðarljósi er það ekki nóg þegar störf þeirra eru metin.

Á bjargbrúninni
Samfylkingin er í þröngri stöðu. Jafnaðarmannaflokkurinn sem stefndi að því að verða annar tveggja turna í íslenskri pólitík, er ekki svipur hjá sjón.

Grínlaust grínlast
Erum við sem sagt hætt við að vera Charlie?

Erfðaskrá
Þó að farsímar séu nú búnir að vera til í áratugi þá eru margir með áskrift að heimasíma. Við getum ekki bara keyrt með hann út í skóg og skilið hann eftir eins og labrador með liðagigt þó að við höfum ekki sömu not fyrir hann og áður.

Refsigleði
Hæstiréttur mildaði í gær dóma yfir burðardýri og sendli í umfangsmiklu fíkniefnamáli. Maður sem gerður var út hér heima til að sækja fíkniefnin fær fjögurra ára dóm í stað fimm og dómur yfir hollenskri konu sem gerð var út með efnin á milli landa var styttur um þrjú ár. Hún fær átta ár í stað ellefu í héraði.

Alveg eftir bókinni
Stjórnmálaþróun síðustu ára í Bandaríkjunum kallast á við þróun mála hér heima. Við því var að búast þar eð Sjálfstæðisflokkurinn hefur frá því fyrir aldamótin 2000 sótt sér fyrirmyndir til bandarískra repúblikana

Einfalt er betra
Heimild til endurgreiðslu á 100 prósentum af virðisaukaskatti vegna vinnu við viðhald eða endurbætur á húsnæði og frístundahúsum var samþykkt á Alþingi í mars árið 2009. Um var að ræða þjóðarátak stjórnvalda og fleiri til að koma hjólum atvinnulífsins í gang í kjölfar kreppunnar og atvinnuleysis sem því fylgdi. Heimildin átti að hvetja til vinnuskapandi framkvæmda. Þetta átak var kallað Allir vinna.

Er þetta frétt?
Mér finnst fréttir ekki vera fréttir lengur. Alltaf þegar maður kveikir á fréttunum er það sama. Stríð í útlöndum. Kemur ekki á óvart. Stjórnmálamaður er ósammála öðrum stjórnmálamanni. Duh. Og fótboltalið vann annað fótboltalið í fótbolta. Sem einhverra hluta vegna er hluti af fréttatímanum. Ekkert af þessu eru fréttir. Þetta gerist á hverjum degi. Alltaf.

Veldur þrjóskan í Yellen samdrætti í Bandaríkjunum?
Yellen hefur síðasta hálfa árið verið ötul við að segja að Seðlabanki Bandaríkjanna ætti að hækka vexti. Þetta hefur greinilega verið vegna þess að atvinnuleysi hefur farið sífellt minnkandi.

Gengið alla leið í hömlunum
Viðbrögð við nýjasta áfellisdómi yfir íslenskri stjórnsýslu eru umhugsunarverð. EFTA-dómstóllinn komst að því nú í byrjun vikunnar að innflutningsbann ríkisins á fersku ófrosnu kjöti stæðist ekki ákvæði EES um frjálst flæði vöru og þjónustu á innri markaði Evrópu.

Litlu hlutirnir
Lykillinn að lífshamingjunni er að vera ekki of vandfýsinn. Einblína á litlu hlutina. Með slíku hugarfari getum við valhoppað í gegnum lífið. Febrúar er nöturlegur mánuður og kjörinn fyrir drastíska breytingu á sjónarhorni.

Að mæta Bakkusi í búð
Manstu hvað við höfðum miklar áhyggjur af því að verða hornreaka í hruninu? Reyndin varð síðan sú að okkar biðu meiri vinsældir en við höfðum áður þekkt. Hvernig stóð á því?

Ákall um endurreisn
Látið hefur verið í veðri vaka að um fimmtíu og fimm þúsund Íslendingar hafi skrifað undir ákall Kára Stefánssonar um endurreisn íslenska heilbrigðiskerfisins af því að þeir séu ekki nógu talnaglöggir.

Nei eða já
Vínmenning er forvitnilegt hugtak sem kemur reglulega upp í umræðunni um frjálsa sölu áfengis. Ef við gefum okkur það að hér sá átt við þann hluta menningar sem fellur undir siðmenningu, því tæpast er hér vísað til almenns þroska hugar og handar, þá er vísað til þess sem við sem samfélag gerum að háttum okkar og siðum. Þannig að með hugtakinu vínmenning er líkast til leitast við að siðmennta og siðfága áfengisneyslu þjóðarinnar.

Innihaldsríkur bakþanki
Ég tek sjálfa mig venjulega frekar óhátíðlega en ákvað nýlega að breyta út af vananum og fór sérstaklega upp í sveit til að skrifa þennan bakþanka. Ég bara verð að komast úr bænum, elskan, sagði ég við elskuna mína sem rúllaði undir eins upp svefnpokunum og reddaði sumarbústað hjá starfsmannafélagi eins og hendi væri veifað.

Hestamenn í hættu staddir
Í byrjun desember barðist hnefaleikakappinn Gunnar Nelson við brasilískan slagsmálamann.

Leiðin er grýtt
Metfylgi Pírata í skoðanakönnunum er hætt að koma á óvart. Fjölmiðlar eyða ekki lengur heilu síðunum í að fjalla um þennan nýja risa í íslenskri pólitík. Fregnir af hverju fylgismetinu á fætur öðru eru ekki lengur efni í uppslætti.

Við erum höfð að fíflum
Þegar tveir mánuðir voru liðnir frá innrás Saddams Husssein í Kúveit í ágúst 1990 hafði almenningsálitið í Bandaríkjunum snúist gegn hugmyndum um hernaðarleg afskipti af málinu.

Þar lágu Danir í því
Eða sko ekki Danir sjálfir, þeir hafa það upp til hópa alveg ágætt held ég. Kannski á fyrirsögnin betur við þá sem sækja á náðir velmegunarinnar í Danaveldi.


Þetta er bara mín staðreynd
Lesendur viðhorfspistla í dagblöðum eru 30% líklegri til þess að trúa höfundi ef hann nefnir að minnsta kosti eina tölulega staðreynd máli sínu til stuðnings. Reyndar veit ég ekki hvort talan er nákvæmlega rétt.

Hræðslan
Haldlagning á eignum flóttamanna minnir svo óþægilega á þriðja ríkið og skopmynd breska teiknarans er svo beint í mark að það gerir meira en að vekja ugg, það veldur gríðarlegri hræðslu.

Íslensk gestrisni
Allt gott sem hefur komið til Íslands hefur komið frá útlöndum. Flest sem við teljum íslenskt á uppruna sinn einhvers staðar annars staðar en hér á landi. Fyrsta klósettið kom til Íslands með innflytjendum.

Gleymt og grafið? Nei, varla
Fyrir röskum þrem árum, á 95. afmælisdegi rússnesku byltingarinnar 7. nóvember 2012, samþykkti Alþingi að skipa þriggja manna rannsóknarnefnd til að rannsaka einkavæðingu bankanna 1998-2003,

Mígandi spilling
Ég varð vitni að heldur óskemmtilegri uppákomu í þessari viku. Einn gestur sundlaugarinnar sem ég sæki reglulega ákvað upp á sitt eindæmi, í sturtuklefa karlaklefans, að vippa litla vininum úr skýlunni

Fullkominn seðlabankastjóri eyðir mestum tíma sínum í golfi
Hvor er betri seðlabankastjóri – sá sem er mjög upptekinn í starfi sínu eða sá sem eyðir mestum tíma sínum á golfvellinum?

Fermingarbróðir í sturtu
Þegar allar sundlaugar borgarinnar hafa verið prófaðar þarf að kanna nýjar lendur. Úr varð bíltúr til Þorlákshafnar um helgina sem býður upp á þessa fínu laug. Í Þorlákshöfn er líka körfuboltalið sem tryggði sér sæti í bikarúrslitum

Betri er krókur en kelda
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur kynnt tillögur sínar að breytingum á byggingareglugerð. Markmið þeirra er að lækka byggingarkostnað vegna íbúða, sem er hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar á sviði húsnæðismála í tengslum við nýgerða kjarasamninga.

Júró-uppeldi
Ég horfði á upprifjun á þátttöku Íslands í júróvisjón árin 2006-2009 um helgina. Þetta er ekki í fjarlægðri fortíð en mér fannst það samt. Undraðist tísku og strauma. Fannst allt svo framandi og oft kjánalegt.

Miðbæjarprýði
Forsætisráðherra vill taka yfir lóð Landstólpa á Hafnartorgi fyrir Stjórnarráðið. Lóðin hefur verið töluvert til umræðu eftir að hafnargarður fannst við Austurbakkann sem síðar var friðlýstur eftirminnilega. Á endanum var samið við byggingaraðilann um að hafnargarðurinn yrði geymdur í bílakjallara.