

Eurovision
Fréttir af framlagi Íslendinga og annarra þjóða í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.

Ari fékk falleg skilaboð frá Stefáni Karli eftir söngvakeppnina: „Það flæðir frá þér einlægni, tár og gleði“
Stefán Karl ákvað að senda Ara Ólafssyni, söngvara, hvatningarorð þegar hann hafði sigrað undankeppni Eurovision.

Eurovision: Samið um skuld ísraelska sjónvarpsins við EBU
Nú þykir ljóst að keppnin verðihaldin í Ísrael næsta vor eftir allt saman.

Hætta á að Eurovision fari ekki fram í Ísrael
Hætta er á því að Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, fari ekki fram í Ísrael á næsta ári, fari svo að ísraelska ríkissjónvarpið geri ekki upp skuld sem það á við samtök evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU.

Júróvisjónstjarna fannst látin í bíl sínum
Fulltrúi Makedóníu árið 2011 fannst látinn í bíl sínum í Skopje í gærmorgun.

Will Ferrell gerir grínmynd um Eurovision
Gamanleikarinn frægi Will Ferrell hefur náð samkomulagi við Netflix um framleiðslu á grínmynd með söngleikjaívafi sem fjallar um Eurovision.

Svíar taka þátt í Eurovision í Ísrael
Svíar bætast þar með í hóp með Þjóðverjum og Norðmönnum sem hafa gefið út að þeir muni senda fulltrúa í keppnina í Ísrael.

Fundað í Ísrael vegna sniðgönguhótana
Ísraelsmenn óttast að þrjú Evrópuríki muni sniðganga Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á næsta ári.

Segir fréttaflutning frá Gasa mjög villandi
Sendiherra Ísraela gagnvart Íslandi fundaði með RÚV í gær vegna þrýstings á að Íslendingar sitji heima þegar Eurovision fer fram á næsta ári. Hann segir Ísraela ekki hafa viljandi drepið friðsama mótmælendur fyrr í mánuðinum.

Segir Palestínumenn bera ábyrgð á eigin örlögum
Sendiherra Ísrael gagnvart Íslandi telur orðspor ríkisins eiga undir högg að sækja á Íslandi. Hann segir Hamas-samtökin notfæra sér dauðsföll Palestínumanna til að öðlast samúð alþjóðasamfélagsins á meðan Ísraelar telji mikilvægara að treysta varnir landsins.

Sendiherra Ísraels kvartar undan "ósmekklegu gríni“ á kostnað Nettu
Við fögnum því ekki þegar Palestínumenn eru drepnir, segir sendiherrann í bréfi til hollenskrar sjónvarpsstöðvar.

Páll Óskar hafnaði fundi með sendiherra Ísraels
Vildi leyfa Páli að heyra hlið Ísraels í þessu máli.

„Litlar sem engar líkur“ á því að Sádi-Arabía verði með í Eurovision
Felix segir Sádi-Arabíu ekki uppfylla nauðsynleg þátttökuskilyrði.

Sádí-Arabíu boðið að taka þátt í Eurovision
Ísraelsk stjórnvöld hafa formlega boðið Sádí-Arabíu og öðrum Persaflóaríkjum að taka þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á næsta ári.

Stjórn RÚV ræðir áskorun vegna Ísraels
Áskoranir tugþúsunda um sniðgöngu Eurovision til umræðu í stjórn RÚV. Ekki liggur fyrir á hvers borði ákvörðunin endar. Dagskrárstjóri RÚV segir að haft verði samráð við norrænu stöðvarnar áður en ákvörðun verður tekin.

Tæplega 16.000 manns vilja að Ísland sniðgangi Eurovision
Tæplega 16.000 manns hafa nú ritað nafn sitt á undirskriftalistann sem stofnað var til á netinu um helgina þar sem þess er krafist að Ísland afþakki þátttöku í Eurovision í Ísrael að ári.

„Sniðgöngum Eurovision 2019“
Þessu afneitunar-gleðipartíi tökum við ekki þátt í, segir Páll Óskar.

Daði hættur við Eurovision og hvetur RÚV til að sniðganga keppnina
Nú hafa Daði Freyr og Gagnamagnið greint frá því að sveitin ætli sér ekki að taka þátt í Söngvakeppninni árið 2019, eins og fyrirhugað var.

Ari Ólafs birtir myndasyrpu af sér sofandi út um allt
Söngvarinn Ari Ólafsson er kominn heim til Íslands þar sem hann slakar á eftir erfiðar undanfarnar vikur í Lissabon þar sem hann tók þátt fyrir Íslands hönd í Eurovision.

4500 manns ritað nafn sitt á undirskriftalista gegn þátttöku Íslands í Eurovision
Tæplega 4500 manns hafa ritað nafn sitt á undirskriftalista sem stofnað var til á netinu um helgina þar sem hvatt er til þess að Íslendingar afþakki þátttöku í Eurovision að ári en keppnin fer þá fram í Ísrael.

Leikstjóri íslenska Eurovision-atriðisins hefði ekki breytt neinu
Arnór Pálmi Arnarson, leikstjóri íslenska atriðisins í Eurovision, segir að eftir á að hyggja hefði hann ekki breytt neinu hvað varðar sviðsetningu á atriðinu í keppninni, allt hafi farið eins og áætlað var og engu hafi þurft að sleppa. Hann segir íslenska hópinn jafnramt ekki hafa látið gagnrýnisraddir á sig fá eftir slæmt gengi á undankvöldi keppninnar síðastliðinn þriðjudag.

SuRie með áverka eftir atvikið leiðinlega í Eurovision
Óheppilegt atvik átti sér stað á Eurovision í Lissabon á laugardagskvöldið þegar maður hljóp inn á sviðið og greip í hljóðnemann af bresku söngkonunni SuRie og talaði í hann þar til hann var gripinn af öryggisvörðum og dreginn af sviðinu.

90 milljóna króna Eurovision-ævintýri Íslands
Evrópubúar kunnu fjórða árið í röð ekki að meta framlag okkar.

Núll stig
Það er alltaf gaman að taka góða "hvað fór úrskeiðis?“ umræðu eftir að eitthvað hefur rækilega mistekist.

Söngvakeppir
Þegar til stóð að senda mig í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir nokkrum árum strandaði það á því lítilræði að ekki fannst mátulegur kjóll.

Ganga stolt frá Eurovision
„Þetta var yndisleg ferð sem einkenndist af mikilli og frábærri vinnu með stórkostlegum listamönnum“

Netta sökuð um menningarnám
Menningarnám er þegar hópar í yfirburðastöðu stela menningu þeirra sem eru í minnihluta sér til hagsbóta.

Trylltur fögnuður braust út í Ísrael þegar ljóst var að sigurinn í Eurovision væri í höfn
Margir fóru út á götur í Tel Aviv og stigu kjúklinga-dans til heiðurs Nettu.

Segir Eurovision-keppnina í Ísrael hluta af kúgun Palestínumanna og landráni
Sveinn Rúnar Hauksson fyrrum formaður félagsins Ísland-Palestína segir að sigur Ísraels í Eurovision í gærkvöld sé hluti af ímyndarherferð Ísraels og að keppnin sem verður haldin í Eurovision að ári liðnu sé hluti af atlögu gegn Palestínumönnum.

Ísland fékk 0 stig frá evrópskum áhorfendum
Var neðst í sínum riðli.

Ísland neðst í sínum riðli
Fengum fimmtán stig.