Telur að geti brugðið til beggja vona hjá Hatara Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. mars 2019 15:00 Jóhanna Guðrún segist ekki leyfa sér að þreytast á því að vera beðin um að syngja Is it true. Henni þyki vænt um lagið og hvað það hafi gert fyrir hana. RÚV „
Þetta var bara ógeðslega gaman,“ segir Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sem óhætt er að segja að hafi blómstrað á sviði Laugardalshallar á úrslitum Söngvakeppninnar á laugardagskvöldið. Tæp tíu ár eru síðan Jóhanna Guðrún landaði öðru sæti í Eurovision og af því tilefni var búinn til skemmtilegur texti við lagið Shallow með Lady Gaga sem Jóhanna Guðrún söng með kynnunum Benedikt Valssyni og Fannari Sveinssyni.„Það er fyndið að hugsa til þess að það sé svona langt síðan. Manni finnst einhvern veginn bæði heil eilífð liðin en líka eins og þetta hafi gerst í gær,“ segir Jóhanna Guðrún um úrslitakvöldið eftirminnilega í Moskvu þar sem Íslendingar stóðu á öndinni. „Ég er þakklát fyrir að hafa fengið þetta lag sem breytti öllu til hins betra fyrir mig,“ segir söngkonan 28 ára um lagið Is it true. Hún var aðeins nítján ára þegar hún náði þessum besta árangri Íslands í Eurovision. Jafnaði hún árangur Selmu Björnsdóttur frá því í Jerúsalem 1999. Segja má að það sé því skrifað í skýin að Hatari haldi uppteknum hætti. Annað sæti til Íslands á tíu ára fresti.Hatari á sviðinu á Laugardagskvöld.RÚVJóhanna Guðrún segist ekki hafa þekkt til Hatara áður en kom að Söngvakeppninni. „Ég vissi ekkert hverjir þessir gaurar voru. En það var fullt af fólki í kringum mig að spyrja hvort ég væri búin að heyra „lagið með Hatara“,“ segir Jóhanna Guðrún. Buzz-ið hafi byrjað snemma og haldið dampi allan tímann. „Þeir komu alveg tilbúnir og voru rosalega fagmannlegir. Búningar, sviðsframkoma, söngur, grafík og heildarmyndin rosalega fullkláruð og sterk. Það er sjaldséð hjá einhverjum sem maður þekkir ekki, ekki reynsluboltum. Það kemur manni ekkert á óvart að Friðrik Ómar komi og negli þetta upp á tíu,“ segir Jóhanna Guðrún greinilega uppnumin af framkomu Hatara.Atriði Hatara sé ferskt og sveitin til alls líkleg þótt erfitt sé að spá. „Ef það er eitthvað sem ég hef lært með Eurovision er að það getur allt gerst og ekkert hægt að spá í spilin. Það hefur oft gerst að eitthvað lag á bara töfrandi augnablik á sviðinu og vinnur. Svo taka stórstjörnur þátt, er spáð sigri en svo gerst ekkert. Við bætast alls konar skrýtnir hlutir eins og pólitíkin sem spilar líka stundum stóran part en ég er lítið inn í.“ Til beggja vona geti brugðið með Hatara.Liðsmenn Hatara sýna mýkri hlið á spjalli við Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra og Elizu Reid forsetafrú.RÚV„Ég trúi því að þeir geti alveg náð mjög langt. Annaðhvort er fólk ekki að fíla þetta eða þetta verður svaka hitt.“ Miklu máli skipti hvernig Hatari standi sig í aðdraganda keppninnar. „Það þarf að vanda til verka. Hvernig þeir koma fram. Þetta verður erfitt. Það er talað um að fólk eigi ekki að keppa og þeir verða settir on the spot. Blaðamannafundirnir verða ekki einfaldir. Ég vona að þeir noti sína mannlegu hlið, þó þeir séu í BDSM-búningum, sýni mjúku hliðina.“ Jóhanna Guðrún segist hafa verið mjög ánægð með íslensku undankeppnina. „Mér fannst þessi keppni í heild sinni mjög spennandi. Það er langt síðan ég hef verið svona spennt fyrir úrslitunum. Það var mikið í lögin spunnið og hefði getað farið hvernig sem er. Ég er samt mjög sátt við úrslitin.“
Eurovision Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira