
Samkomulag í höfn um nýjan langtímasamning
Arsenal hefur náð samkomulagi við Bukayo Saka um nýjan langtímasamning en enski landsliðsmaðurinn hefur átt frábært tímabil hjá toppliðinu til þessa.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Arsenal hefur náð samkomulagi við Bukayo Saka um nýjan langtímasamning en enski landsliðsmaðurinn hefur átt frábært tímabil hjá toppliðinu til þessa.
„Við vitum að við þurfum að bæta okkur og breyta hlutum, og það munum við gera,“ segir Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool sem átt hefur vonbrigðatímabil til þessa eftir að hafa verið nálægt sögulegri titlafernu á síðustu leiktíð.
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, vonast til að geta teflt Thomas Partey fram í leiknum gegn Leicester City á sunnudaginn.
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, var að sjálfsögðu mjög kátur eftir endurkomusigur liðsins á Barcelona á Old Trafford í gær.
Spánverjinn Ruben Selles hefur gert samkomulag um að stýra liði Southampton út tímabilið í ensku úrvalsdeildinni.
Peter Schmeichel segir að Manchester United sé loksins búið að finna rétta eftirmann Sir Alex Ferguson, áratug eftir að Skotinn hætti sem knattspyrnustjóri liðsins.
Þeir sem voru að missa sig yfir tölfræði Erling Braut Haaland fyrr á tímabilinu eru núa að sjá svipaðar tölur hjá leikmanni úr rauða liði Manchester borgar.
Jóhann Berg Guðmundsson mun að öllum líkindum spila í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en lið hans Burnley er langefst í ensku B-deildinni. Hann segir það hafa verið mikinn heiður að skrifa undir nýjan samning við félagið á dögunum.
John Motson, fótboltalýsandi á breska ríkisútvarpinu til 50 ára, er látinn 77 ára að aldri.
Breska ríkisstjórnin mun síðar í dag kynna tillögur að nýrri lagasetningu sem er ætlað að stuðla að bættum starfsháttum í enskri knattspyrnu. Ef lögin öðlast gildi er ljóst að um umfangsmiklar breytingar er að ræða.
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, naut þess að snæða kvöldverð með Sir Alex Ferguson.
Sjónvarpsmaðurinn Richard Keys segir brottför Cristiano Ronaldo frá Manchester United vera ástæðu góðs gengis Marcusar Rashford hjá félaginu á nýju ári. Rashford hefur farið hamförum eftir heimsmeistaramótið í desember.
Bresk stjórnvöld eru langt komin með frumvarp sem mun banna veðmálafyrirtækjum að auglýsa framan á treyjum liða í ensku úrvalsdeildinni. Viðræður eru sagðar eiga sér stað milli stjórnvalda og forráðamanna félaga í deildinni.
Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, vandaði leikmönnum liðsins ekki kveðjurnar eftir 5-2 tap þeirra fyrir Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld.
Svíinn Ken Sema hefur hlotið mikið lof í vikunni fyrir að fara í viðtal hjá félagsrás liðs síns, Watford. Hann hefur lítið farið í viðtöl á sínum ferli vegna málhelti.
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United hefur ákveðið að hækka miðaverð á leiki liðsins á Old Trafford um fimm prósent.
Finnska knattspyrnukonan Eveliina Summanen hefur verið dæmd í tveggja leikja bann af enska knattspyrnusambandinu.
Leikmaður enska fótboltafélagsins Sunderland nældi sér í sérstakt gult spjald um helgina. Hann sagði eftir á að auðvitað hafi hann hagað sér eins og algjört fífl.
Stuðningsmenn Liverpool reyndu að trufla svefn leikmanna Real Madrid í nótt en framundan er mikilvægur fyrri leikur liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Spánverjinn Javi Gracia verður næsti knattspyrnustjóri Leeds United samkvæmt fréttum frá Englandi og fær það stóra verkefni að halda liðinu í ensku úrvalsdeildinni.
James Ward-Prowse, leikmaður Southampton, eru einu aukaspyrnumarki frá því að jafna met David Beckham yfir flest mörk skoruð úr aukaspyrnum í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
John W. Henry, eigandi enska knattspyrnufélagsins Liverpool, segir það ekki til sölu. Henry segir þó að hann sé tilbúinn að fá inn nýja fjárfesta til að aðstoða við rekstur félagsins.
Maðurinn sem sendi Sigurð Jónsson upp á sjúkrahús í landsleik Íslands og Skotlands á Laugardalsvellinum á níunda áratugnum vildi sjá rautt spjald á leikmann Manchester United um helgina.
Darwin Núnez skoraði fyrra mark Liverpool í sigrinum á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni en það er óhætt að segja að hann og stuðningsmenn Liverpool hafi verið búnir að bíða lengi eftir þessu marki.
Lík ganverska fótboltamannsins Christian Atsu var flutt til Gana en hann fórst í jarðskjálftanum ógurlega í Tyrklandi fyrir tveimur vikum.
Einmitt þegar stuðningsmenn Manchester United sáu von um að losna við Glazers-fjölskylduna úr félaginu og það fréttir á tilboðum peningamanna í félagið berast óvæntar fréttir frá Bandaríkjunum.
Tottenham vann nokkuð öruggan 2-0 sigur er liðið tók á móti West Ham í seinasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Með sigrinum lyfti Tottenham sér aftur upp í fjórða sæti deildarinnar.
Marcus Rashford skoraði tvívegis þegar Manchester United vann Leicester City 3-0 á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni. Þá jafnaði David De Gea, markvörður heimaliðsins, met Peter Schmeichel yfir þá markverði félagsins sem oftast hafa haldið hreinu.
Erik Ten Hag, þjálfari Manchester United, stóð við loforð sitt og reddaði Roy Keane, fyrrverandi fyrirliða liðsins, tveimur miðum á leik Man United og Newcastle United í úrslitum enska deildarbikarsins.
Enska knattspyrnufélagið Manchester United er til sölu. Á föstudaginn var þurftu áhugasamir að hafa skilað inn kauptilboði til núverandi eiganda félagsins, Glazer-fjölskyldunnar. Tvö tilboð bárust, annars vegar frá Jim Ratcliffe sem hefur stutt Manchester United síðan í æsku og hins vegar frá Sheikh Jassim bin Hamad Al Thani.