

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Selja hlut í Liverpool og borga upp skuldir
Eigendur enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, Fenway Sports Group (FSG), hefur selt fjárfestingafyrirtækinu Dynasty Equity hlut í félaginu.

Kærkomin þróun hafi átt sér stað með innkomu Arnórs
Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Arnór Sigurðsson, er að fara ansi hreint vel af stað í sínum fyrstu keppnisleikjum með enska B-deildar liðinu Blackburn Rovers. Þjálfari liðsins, Jon Dahl Tomasson, er afar ánægður með innkomu Arnórs í liðið en vill þó fara varlega af stað með hann.

Sjáðu Arnór skora hjá Rúnari Alex og Rúnar síðan verja frá honum víti
Arnór Sigurðsson og félagar í Blackburn Rovers tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitum enska deildabikarsins með 5-2 sigri á Cardiff City í gær.

Manchester United trúir því að félagið sé ekki að brjóta lög
Meðferð Manchester United á leikmanni sínum Jadon Sancho hefur vakið upp spurningum um hvort félagið sé þarna í órétti.

Leikmenn Villa kvíða fyrir að spila í blautbolunum
Leikmenn kvennaliðs Aston Villa kvíða fyrir að spila í nýjum treyjum liðsins í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn.

Arteta: Kaupum ekki annan framherja
Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, segir að félagið sé ekki í leit að nýjum framherja þrátt fyrir gagnrýni á framherja liðsins í byrjun tímabils.

Klopp um Nunez: Hann er okkur mjög mikilvægur
Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, segist ánægður með framfarir Darwin Nunez síðustu vikur.

Dregið í deildabikarnum: Newcastle mætir á Old Trafford
Manchester United mun mæta Newcastle United í 16-liða úrslitum deildarbikarsins.

Szoboszlai með þrumufleyg í sigri Liverpool
Liverpool er komið áfram í deildarbikarnum eftir 3-1 sigur á Leicester á Anfield í kvöld.

Newcastle hafði betur gegn City
Alexander Isak skoraði eina mark leiksins er Newcastle hafði betur gegn Manchester City í deildarbikarnum.

Nelson skoraði eina markið er Arsenal fór áfram
Arsenal er komið áfram í deildarbikarnum eftir 0-1 sigur á Brentford í kvöld en mark Arsenal skoraði Reiss Nelson.

Reece James kærður fyrir ummæli í garð dómara
Reece James hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir meint brot eftir leik Chelsea gegn Aston Villa um helgina. Brotið á að hafa átt sér stað í göngunum sem liggja að búningsherbergjum.

Chelsea væri búið að vinna alla leikina sína ef farið væri eftir XG
Chelsea situr í fjórtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir sex leiki og nær því ekki að skora eitt mark í leik.

Löng rútuferð bíður stórstjarnanna í Manchester City í kvöld
Englandsmeistarar Manchester City heimsækja Newcastle United í kvöld í enska deildabikarnum en knattspyrnustjóri félagsins hefur áhyggjur af ferðalaginu heim.

Antony yfirheyrður af lögreglunni í Manchester
Brasilíski sóknarmaðurinn Antony, leikmaður Manchester United, mun mæta í yfirheyrslu hjá lögreglunni í Greater Manchester og svara þar spurningum tengdum ásökunum á hendur honum vegna meints ofbeldis.

Sancho alltaf í tölvunni og sefur ekki nóg
Forráðamenn Borussia Dortmund eru efins um að fá Jadon Sancho aftur til liðsins vegna agaleysis hans.

Eigendur Chelsea séu velkomnir í búningsklefann
Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea, segir að eigendur félagsins séu velkomnir inn í búningsklefa liðsins svo lengi sem þeir mæti ekki til að halda ræðu.

Fresta leik vegna andláts leikmanns Sheffield United
Leik Sheffield United og Crystal Palace í ensku B-deildinni kvennamegin hefur verið frestað eftir að leikmaður Sheffield United, Maddy Cusack, lést á dögunum.

Manchester United fór auðveldlega í gegnum Palace
Manchester United vann öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti Crystal Palace í 32-liða úrslitum enska deildarbikarsins í knattspyrnu í kvöld.

Burnley í 16-liða úrslit eftir stórsigur | Luton og Úlfarnir úr leik
Burnley er á leið í 16-liða úrslit enska deildarbikarsins eftir öruggan 4-0 útisigur gegn D-deildarliði Salford í kvöld. Á sama tíma féll úrvalsdeildarliðið Luton úr leik gegn C-deildarliði Exeter City og Wolves féll úr leik gegn B-deildarliði Ipswich.

Meiðsli Rice ekki talin alvarleg
Meiðsli sem Declan Rice, miðjumaður enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal, varð fyrir í Norður-Lundúna slagnum gegn Tottenham um síðastliðna helgi eru ekki talin alvarleg.

Tjáir sig um skyndilegt fráfall föður síns: „Hann vissi að eitthvað væri að“
Fótboltamaðurinn Ben Tozer, segist ekki enn vera búinn að átta sig á því að faðir hans sé látinn. Tozer segist ekki hafa gefið sér tíma til að syrgja fráfall hans en hann segir sögu föður síns vera víti til varnaðar fyrir aðra. Hann hafi verið hræddur við að leita sér hjálpar.

Liverpool 2.0 minnir hann á bestu lið Jürgens Klopp
Enska úrvalsdeildarliðið Liverpool gekk í gegnum miklar breytingar í sumar og miðjunni var nánast skipt út í heilu lagi. Byrjun liðsins í ensku úrvalsdeildinni lofar góðu fyrir framhaldið.

Sancho bannaður á æfingasvæðinu og þarf að borða með krökkunum
Jadon Sancho hefur verið bannað að nota aðstöðu aðalliðs Manchester United á æfingasvæði félagsins.

Orðaður við brottför nokkrum mánuðum eftir komuna til Parísar
Vængmaðurinn Ousmane Dembélé færði sig frá Katalóníu til Parísar í sumar en gæti nú verið á leið til Lundúna.

Jenas biðst afsökunar á ummælum sínum
Sparkspekingurinn Jermaine Jenas hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla á samfélagsmiðlum þegar fyrrverandi lið hans Tottenam Hotspur mætti Arsenal um liðna helgi í ensku úrvalsdeildinni.

Eftir krefjandi mánuði stimplaði Arnór sig rækilega inn í endurkomunni
Íslenski atvinnu- og landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson stimplaði sig inn í lið enska B-deildar liðsins Blacburn Rovers um nýliðna helgi er hann sneri aftur á völlinn eftir meiðsli og skoraði eitt marka liðsins í tapi gegn Ipswich Town.

Declan Rice meiddur í baki
Arsenal tapaði ekki aðeins tveimur stigum í nágrannaslagnum á móti Tottenham í gær heldur missti liðið líka lykilmann meiddan af velli.

Ekkert grunsamlegt við andlát leikmanns Sheffield United
Ekkert grunsamlegt var við andlát Maddy Cusack, leikmanns Sheffield United, samkvæmt lögreglu.

Skilur ekki af hverju Ten Hag lét Ronaldo fara: „Sköllóttu gaurarnir eru flóknir“
Arturo Vidal botnar ekkert í þeirri ákvörðun Eriks ten Hag að bola Cristiano Ronaldo út hjá Manchester United.