

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Risatilboð dugði ekki til að sannfæra De Gea um að verða liðsfélagi Ronaldo
David De Gea hefur hafnað risatilboði frá Al Nassr í Sádi Arabíu. Spánverjinn hefur verið án félags síðan samningur hans hjá Manchester United rann út í sumar.

James allt í öllu þegar Chelsea lagði Liverpool
Lauren James var mögnuð þegar Englandsmeistarar Chelsea lögðu Liverpool 5-1 í úrvalsdeild kvenna á Englandi. James kom að fjórum mörkum Chelsea en hún skoraði þrjú og lagði upp eitt.

Verða Chelsea og Manchester City dæmd niður um deild?
Í gær bárust fréttir af því að tíu stig hefðu verið tekin af Everton vegna brota félagsins á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Fréttirnar valda forráðamönnum Chelsea og Manchester City vafalaust áhyggjum.

Haaland dregur sig úr landsliðshópnum vegna meiðsla
Erling Haaland hefur dregið sig úr norska landsliðshópnum vegna meiðslanna sem hann varð fyrir gegn Færeyjum á fimmtudag.

Dæmdur fyrir að gera grín að sex ára stuðningsmanni sem lést
Dale Houghton, 32 ára gamall stuðningsmaður Sheffield Wednesday, hefur verið dæmdur í tólf vikna skilorðsbundið fangelsi fyrir að gera grín að Bradley Lowery, sex ára gömlum stuðningsmanni Sunderland, sem lést úr krabbameini árið 2017.

De Bruyne neitar fyrir að hafa samið lag fyrir Drake
Kevin de Bruyne, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, hefur þurft að neita fyrir sögusagnir um það að hann hafi hjálpað kanadíska rapparanum Drake að semja lag á nýrri stuttskífu hans.

Everton nýtti mál Gylfa í vörn sinni
Enska úrvalsdeildarfélagið Everton listaði upp sex hluti sem hluta af vörn sinni áður en tíu stig voru dæmd af félaginu vegna brota á reglum ensku úrvalsdeildarinnar um hagnað og sjálfbærni í rekstri.

Tíu stig dregin af Everton
Tíu stig hafa verið dregin af Everton í ensku úrvalsdeildinni fyrir brot á reglum ensku úrvalsdeildarinnar um hagnað og sjálfbærni í rekstri.

Ratcliffe ætlar að fá ráð hjá Sir Alex
Búist er við því að Sir Jim Ratcliffe muni spyrja Sir Alex Ferguson ráða þegar kemur að því að umturna Manchester United en búist er við því að gengið verði frá kaupum Ratcliffe á 25 prósent eignarhlut í félaginu á næstu dögum.

Arteta kærður fyrir skammarræðuna
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir ummæli sín eftir 1-0 tap Arsenal á móti Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á dögunum.

Kim Kardashian fríkaði út þegar hún hitti Haaland
Ofurstjarnan Kim Kardashian átti erfitt með að hemja sig þegar hún hitti norska fótboltamanninn Erling Haaland.

Ætlar ekki að hvíla Haaland á móti Færeyingum
Það er nóg að gera hjá Erling Braut Haaland þessar vikurnar enda á fullu með Manchester City á öllum vígstöðvum. Hann fær samt ekkert frí í vináttulandsleik í kvöld.

Bróðir Rooneys skoraði líka frá miðju
Wayne Rooney er ekki eini fjölskyldumeðlimurinn sem getur skorað glæsileg mörk. Það sást bersýnilega í leik Macclesfield og Basford United í fyrradag.

Man. Utd mun ekki selja Sancho á útsöluverði
Framtíð Jadon Sancho hjá Manchester United virðist svo gott sem ráðin en hann gæti verið fastur hjá félaginu komi ekki ásættanlegt tilboð í janúar.

Chelsea gæti tapað stigum eftir að gagnaleki leiddi í ljós mögulegt svindl
Chelsea er í vandræðum eftir að rannsókn á skjölum sli leiddu í ljós í gagnaleka sem bendir til svindls. Ólöglegar greiðslur virðast hafa verið greiddar til umboðsmanna í eigendatíð Roman Abramovich.

Erfið fíkn kom fyrrverandi markverði Liverpool næstum í gröfina
Chris Kirkland, fyrrverandi markvörður Liverpool, var háður verkjalyfinu Tramadol og fíknin varð honum næstum því að aldurtila.

Eftirmaður Woodwards hættir hjá United
Richard Arnold, framkvæmdastjóri hjá Manchester United, hættir hjá félaginu í árslok. Við starfi hans tekur Patrick Stewart.

Lét gömlu refina um karpið: „Maður skilur báðar hliðar í þessu“
Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Arnór Sigurðsson, segir að á meðan enn er möguleiki á EM sæti í gegnum undankeppnina verði liðið að stefna að því. Hann telur íslenska landsliðið klárt í að berjast um sigur í þeim tveimur leikjum sem eftir eru.

Man. City setti nýtt met í tekjum á síðasta rekstrarári
Rekstur Englandsmeistaraliðs Manchester City gengur frábærlega þessa dagana og það sést vel í uppgjörinu á síðasta fjárhagsári.

Emma fær jafnvel borgað og þjálfari karlalandsliðsins
Emma Hayes var í gær staðfest sem næsti þjálfari kvennaliðs Bandaríkjanna í fótbolta en þetta var búið að leika út áður og varla mikið leyndarmál lengur.

De Zerbi gæti fengið bann fyrir harða gagnrýni á dómara
Knattspyrnustjóri Brighton, Roberto De Zerbi, gæti verið á leið í bann vegna ummæla sinna um dómara eftir leikinn gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni.

Allt á uppleið hjá Núnez eftir að Suárez talaði við hann
Forráðamenn Liverpool báðu úrúgvæska framherjann Luis Suárez um að tala við landa sinn, Darwin, Núnez, þegar hann átti erfitt uppdráttar á fyrsta tímabili sínu í Bítlaborginni.

Borðar kjúklingafætur til þess að lengja ferillinn
Andros Townsend leitar allra leiða til að geta spilað lengur á hæsta stigi fótboltans og þar koma líka inn sérstakar matarvenjur.

Hneykslaðir á Glazerunum fyrir að mæta ekki í jarðarförina
Lítil ánægja er hjá stuðningsmönnum Manchester United með þá ákvörðun eigenda félagsins að mæta ekki í jarðarför Sir Bobbys Charlton.

Óttast það að Ödegaard hafi fengið heilahristing á æfingu
Martin Ödegaard, fyrirliði Arsenal, hefur misst af síðustu leikjum enska fótboltaliðsins og nú er að koma betur í ljós hvað er að angra hann.

Alexander-Arnold lærir með því að horfa á myndbönd með John Stones
Liverpool maðurinn Trent Alexander-Arnold leitar ekki langt yfir skammt þegar hann eltist við að læra betur nýju blendingsstöðuna sem hann hefur verið að spila.

Man Utd án dönsku landsliðsmannanna næstu vikurnar
Þeir Christian Eriksen og Rasmus Højlund verða að öllum líkindum ekki með Manchester United í næstu leikjum félagsins.

Fór inn í rangan klefa á Old Trafford
Teden Mengi hélt greinilega að hann væri enn leikmaður Manchester United þegar hann mætti með félögum sínum í Luton Town á Old Trafford um helgina.

Klopp kvartar yfir leiktíma: „Hafa enga tilfinningu fyrir fótbolta“
Enn einn ganginn á Liverpool fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni eftir landsleikjahlé. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri liðsins, er orðinn langþreyttur á því.

Hetja Chelsea valin í enska landsliðið
Cole Palmer, sem skoraði jöfnunarmark Chelsea gegn Manchester City í gær, hefur verið valinn í enska landsliðið.