
Grindvíkingar enn að jafna sig á skjálftariðunni í morgunsárið
Fjöldahjálparstjóri hjá Rauða krossinum segir að 75 manns hafi gist í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Kórnum í Kópavogi sem opnuð var vegna rýmingar í Grindavík.
Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það níunda varð norðan Grindavíkur í ágúst 2024.
Fjöldahjálparstjóri hjá Rauða krossinum segir að 75 manns hafi gist í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Kórnum í Kópavogi sem opnuð var vegna rýmingar í Grindavík.
Hafnarstjóri Grindavíkurhafnar segir það heppilegt að nú sé sá tími árs þar sem fáir bátar eru við höfn í Grindavík. Hann telur um 20 til 30 báta enn vera við höfn.
Upplýsingafundur almannavarna vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og rýmingar í Grindavíkurbæ verður haldinn klukkan 12:00 í dag.
Land virðist hafa gliðnað um allt að 120 sentímetra. Jarðskjálftavirknin hefur færst nær hafi og kvikugangurinn lengst.
Enn er stöðug skjálftavirkni þótt hún hafi róast eitthvað. Kvikugangurinn virðist enn undir Grindavík.
Vísindamenn telja miklar líkur á eldgosi á Reykjanesskaga eftir atburði gærkvöldsins. Grindvíkingar munu ekki fá að fara heim næstu daga eftir farsæla rýmingu í gærkvöldi. Ástandið er stöðugt endurmetið.
Hér er að finna samantekt á því sem gerðist í nótt. Kvikugangur virðist nú liggja undir Grindavík. Nokkuð mikil kvika virðist vera að safna saman og atburðurinn stærri en áður var búist við. Búið er að rýma Grindavík, kalla flesta viðbragðsaðila af svæðinu og varðskipið Þór fær fjær bænum.
Miklar breytingar hafa orðið á skjálftavirkninni sem mælst hefur við Sundhnjúkagíga og aflögun sem mælst hefur á Reykjanesskaga. Náttúruvársérfræðingur Veðurstofu Íslands tjáði fréttastofu í nótt að kvikugangurinn virtist vera að teygja sig í suðvestur.
Jarðvísindamenn funduðu með almannavörnum um þrjúleytið í nótt. Bæði GPS gögn og gervitunglamyndir staðfesta að síðan í gærkvöldi hefur myndarlegur kvikugangur myndast og er hann töluvert stærri en talið var. Stór sprunga gæti opnast á svæðinu frá Sundhjúkagígum og áfram í gegnum Grindavík.
Systkinin Michal og Isabella voru á meðal þeirra sem urðu á vegi fréttamanns í fjöldahjálpastöðinni í Kórnum í Kópavogi eftir miðnætti. Þau voru hluti af fimmtán starfsmönnum Vísis hf. í Grindavík.
Auðbjörg María Ólafsdóttir er ein þeirra sem yfirgaf Grindavík í gærkvöldi, en fjórir hundar fylgdu henni og segist hún afar snortin og þakklát Rauða krossinum fyrir að skjóta yfir hópinn skjólshúsi.
Margir hafa leitað skjóls í þremur fjöldahjálparmiðstöðvum sem opnaðar voru vegna rýmingar í Grindavík, á Selfossi, Reykjanesbæ og í Kópavogi.
Steinar Nói Kjartanson og fjölskylda er meðal þeirra Grindvíkinga sem hafa neyðst til að yfirgefa heimili sitt. Fjölskyldan er á leiðinni til Grundarfjarðar svo langur bíltúr er fyrir höndum. Þau ætluðu að sofa í Grindavík í nótt þar til tilkynning um allsherjarrýmingu barst.
Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, greindi frá því á upplýsingafundi upp úr ellefu að Almannavarnir hafi lýst yfir neyðarstigi og að í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum hafi verið tekin ákvörðun um að rýma Grindavík.
Þrjár varaaflsstöðvar eru til taks fyrir Keflavíkurflugvöll ef rafmagn fer af svæðinu vegna mögulegs eldgoss. Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir neyðarstjórn Isavia fylgjast vel með þróun mála vegna jarðhræringanna á Reykjanesi.
Veðurstofa hefur upplýst að ekki sé hægt að útiloka að kvikugangur nái til Grindavíkur og geti opnast. Að sögn sviðsstjóra almannavarna er um stærri kvikugang að ræða en sást í síðustu eldgosum á Reykjanesskaga og er mikil kvika undir jörðinni.
Rýming er hafin í Grindavík vegna kvikugangs sem gæti myndast undir bænum. Almannavarnir biðla til íbúa að koma sér burt úr bænum innan fáeinna klukkustunda, fyrir klukkan þrjú í nótt. Öllum í Grindavík er skylt að yfirgefa heimili sín.
Almannavarnir hafa boðað til upplýsingafundar vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að rýma Grindavík en fækkað hefur verulega í bænum í kvöld.
„Þetta er náttúrulega alveg hræðilegt. Það eru engin orð sem geta lýst þessu,“ segir Birna Óladóttir íbúi á hjúkrunarheimilinu í Grindavík. Gríðarlegar skemmdir eru á hjúkrunarheimilinu eftir skjálftana síðdegis og í kvöld.
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að stutt sé í eldgos á Reykjanesi; það sé frekar spurning um klukkustundir en daga að hans mati. Þá er hann ekki þeirrar skoðunar að hann hafi verið of djarfur í greiningu sinni á atburðum síðustu daga.
Halldóra Birta og fjölskylda hennar búa í Grindavík og fundu rækilega fyrir skjálftunum í dag. Þegar hlutir voru farnir að hrynja úr hillum ákvað Halldóra að fara til Reykjavíkur með börn sín tvö. Hún segir bílaröð hafa myndast á Nesvegi eftir að Grindavíkurvegur lokaði.
Mikil eyðilegging blasti við þegar Valgerður Vilmundardóttir gekk inn á heimili sitt í Grindavík fyrr í kvöld. Hún segist aldrei hafa upplifað annað eins og skjálftann sem reið yfir þegar hún var stödd í Lyfju um klukkan sex.
Skjálftakort Veðurstofunnar með skjálftum síðustu tveggja sólarhringa er þakið stjörnum. Hver stjarna táknar jarðskjálfta sem var yfir þrír að stærð.
Mikið tjón hefur orðið á hjúkrunarheimilinu Víðihlið í Grindavík. Bæði mikið vatnstjón og þá er stór sprunga í húsinu sem virðist sem það sé að klofna í tvennt.
Par í Grindavík segjast ætla að halda sér í bænum þrátt fyrir mikla skjálfta. Þeir áttu von á foreldrum í mat en enduðu með nágrannana við eldhúsborðið vegna skjálftanna.
Augu vísindamanna, almannavarna sem og almennings, ekki síst íbúa Suðurnesja, beinast núna að gígaröð og sprungu sem kennd eru við Sundhnúka norðaustan Grindavíkur. Frá því óvissustigi var lýst yfir fyrir hálfum mánuði hefur öll athyglin verið á svæðinu norðvestan við fjallið Þorbjörn og þar með Svartsengi og Bláa lóninu. Kastljósið færðist hins vegar í dag að Sundhnúkasvæðinu eftir að áköf skjálftahrina hófst þar í morgun, austan við fjallið Sýlingarfell.
Starfsemi fjöldahjálparstöðvanna fer hægt af stað. Þar fá þeir sem mæta skjól, hressingu og sálarhjálp.
Magnús Tumi Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði segir að landsmenn verði að vera undir það búnir að það gjósi á næstu klukkustundum.
Skýr merki koma nú fram á mælum Veðurstofu um myndun kvikugangs til yfirborðs. Enn eru mestar líkur á að kvika komi upp norðan vatnaskila við Sundhnúka og hraun muni því ekki renna til Grindavíkur í samræmi við hraunflæðilíkan sem keyrt var fyrr í kvöld.
Vegagerðin hefur lokið bráðabirgðaviðgerðum á Grindavíkurvegi eftir að sprungur mynduðust á honum fyrr í kvöld. Vegurinn verður þó áfram lokaður vegna viðvarandi skjálftavirkni á svæðinu.