

Donald Trump
Fréttir tengdar 45. og 47. forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.

Saksóknarar vilja koma Cohen bak við lás og slá
Saksóknarar í máli Michaels Cohen, fyrrum lögmanns Donald Trump, telja æskilegt að Cohen, verði dæmdur til talsverðrar fangelsisvistar fyrir glæpi sem "Rússarannsóknin“ svokallaða hefur leitt í ljós að hann framdi.

Trump úthúðar fyrrum utanríkisráðherra á Twitter
Donald Trump Bandaríkjaforseti sendi í kvöld frá sér tíst þar sem hann fór ófögrum orðum um Rex Tillerson, fyrrum utanríkisráðherra í ríkisstjórn sinni.

Tillerson segir Trump reynt að gera ólöglega hluti
Rex Tillerson, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig í fyrsta sinn um störf sín í Hvíta húsinu.

Trump vill ráðherra Bush aftur í embætti
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnti að hann ætli að tilnefnda Bill Barr sem nýjan dómsmálaráðherra.

Talskona utanríkisráðuneytisins verður tilnefnd sem sendiherra hjá SÞ
Heather Nauert var áður einn stjórnenda Fox and Friends, uppáhaldssjónvarpsþáttar Trump forseta.

Giuliani kennir Twitter um eigin mistök og hrekk
Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York, og einn af æðstu lögmönnum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, er sannfærður um að starfsmenn Twitter hati Donald Trump.

Mætt til Washington til að votta Bush virðingu sína
Athöfnin á sér stað í Washington National Cathedral en forsetinn fyrrverandi verður svo jarðsettur í Texas á morgun.

Krefjast ekki fangelsisdóms yfir Flynn
Robert Mueller, sérstaki saksóknarinn sem kannað hefur íhlutun Rússa í forsetakosningunum vestanhafs árið 2016, mun ekki fara fram á fangelsisdóm yfir Michael Flynn.

Markaðir taka ekki vel í tíst Trump um að hann sé „tollamaður“
Svo virðist sem að viðskiptasamningur Kína og Bandaríkjanna sem hyllti undir um helgina séu í hættu eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sendi út röð tísta um að hann væri "tollamaður“. Markaðir í Bandaríkjunum hafa hvorki tekið vel í tíst Trump né vangaveltur um að ekkert verði af samningum á milli ríkjanna tveggja.

Krónsprins Sáda "kolklikkaður“ að mati öldungardeildarþingmanns
Hópur öldungardeildarþingmanna í Bandaríkjunum segist fullviss um að Mohammed bin Salman, krónprins Sádí-Arabíu, tengist morðinu á blaðamanninum Jamal Kashoggi á einhvern hátt.

Dómari sem ógilti tilskipun Trumps í innflytjendamáli dæmir í máli Jóhanns Helgasonar
Dolly M. Gee er dómari í máli um meintan stuld á lagi Jóhanns Helgasonar.

Trú CIA á aðild sádiarabíska krónprinsins styrkist
Leyniþjónustan veit að krónprinsinn skiptust ítrekað á skilaboðum um það leyti sem hópur morðingja kom á ræðisskrifstofuna þar sem Jamal Khashoggi var myrtur.

Trump segir Kínverja falla frá bílatollum
Stjórnvöld í Peking munu „lækka og afnema“ tolla sem þau hafa til þessa lagt á innfluttar, bandarískar bifreiðar að sögn Bandaríkjaforseta.

Þjóðarleiðtogar Bandaríkjanna og Kína semja um „vopnahlé“ í tollastríði
Skömmu fyrir leiðtogafundinn hafði Bandaríkjaforseti í frammi miklar yfirlýsingar um innleiðingu nýrra verndartolla en leiðtogarnir sömdu um "vopnahlé“ í tollastríðinu.

Þungavigtarfólk stjórnmálanna minnist George Bush eldri
Stjórnmálafólk víðs vegar að úr heiminum minnist nú George H.W. Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Hann lést upp úr klukkan tíu í gærkvöldi á heimili sínu í Houston í Bandaríkjunum, 94 ára að aldri. Meðal þeirra sem hafa minnst forsetans eru ýmist sitjandi eða fyrrverandi þjóðarleiðtogar þó nokkurra ríkja.

Hertaka og Khashoggi ofarlega á blaði hjá G20
Valdamestu leiðtogar heims mættu til fundar í argentínsku höfuðborginni í gær. Skrifað var undir nýjan NAFTA-samning. Rússar gagnrýna aflýsingu á fundi Trumps og Pútíns. Trump ræddi við forseta Kína um tollastríð ríkjanna.

Nornirnar fuðra upp á báli Mueller
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, virðist ekki sáttur við að Michael Cohen, fyrrverandi lögmaður forsetans, hafi játað að hafa logið að þingmönnum um umsvif hans í Rússlandi.

Stefnir í lokun stofnana vegna veggsins
Þingmenn Demókrataflokksins segjast ætla að hafna tillögu Repúblikanaflokksins varðandi fjármögnun veggjarsmíði Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, á landamærunum við Mexíkó.

Fyrrverandi lögmaður Trump játar að hafa logið um viðskipti í Rússlandi
Michael Cohen kom fyrir dómara í dag og játaði að hafa logið að þingnefndum um fasteignaverkefni í Moskvu sem hélt áfram eftir að forsetaframboð Trump hófst.

Trump aflýsir fundi með Pútín
Bandaríkjaforseti hefur aflýst fyrirhuguðum fundi hans og Vladimír Pútín vegna deilna rússneskra og úkraínskra stjórnvalda.

Trump útilokar ekki að náða Manafort
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, vill ekki útiloka að náða Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóra sinn, sem hefur verið sakfelldur fyrir fjársvik og bankasvik.

Lögmaður Manafort greindi lögmönnum Trump frá vitnisburði hans
Trump forseti virðist meðal annars hafa notað upplýsingarnar í áróðursstríði sínu gegn Rússarannsókninni svonefndu.

Telur sig tilheyra hópi bráðgáfaðra sem trúa ekki á loftslagsbreytingar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, trúir ekki mati eigin ríkisstjórnar á því að loftlagsbreytingar ógni heilsu Bandaríkjamanna, innviðum og efnahag.

Úthúðar The Guardian fyrir umfjöllun um meintan leynifund Assange og Manafort
Kristinn Hrafnsson vandar The Guardian ekki kveðjurnar vegna fréttar um Julian Assange, stofnanda Wikileaks.

Trump íhugar að aflýsa fundi með Pútín vegna hertöku skipanna
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist íhuga að aflýsa fundi sínum og Vladímírs Pútín Rússlandsforseta á G20 ráðstefnunni í Argentínu síðar í mánuðinum vegna hertöku Rússa á þremur skipum sjóhers Úkraínu.

Segja Manafort hafa hitt Assange á leynifundum í London
Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag, og hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum, að Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóri Donald Trump, Bandaríkjaforseta, hafi átt að minnsta kosti þrjá leynifundi með Julian Assange, stofnanda Wikileaks.

„Þið getið sagt að ég sé skrímsli en ég er nokkuð stoltur af sjálfum mér“
Bandaríkjamaðurinn Christopher Blair, sem BBC nefnir guðföður falsfrétta, segir að það sem hann geri sé ekkert annað en satíra ætluð til þess að afhjúpa kynþáttahatara og aðra öfgafulla lesendur þeirra miðla sem hann rekur.

Mueller sakar Manafort um lygar
Sérstaki rannsakandinn segir Manafort hafa brotið gegn samkomulagi sínu við saksóknara.

Trump dregur niðurstöður loftslagsskýrslunnar í efa
Donald Trump svaraði spurningum blaðamanna um nýútgefna loftslagsskýrslu við Hvíta húsið í dag. Trump sagðist ekki trúa því að áhrif loftslagsbreytinga yrði á þá leið sem skýrslan lýsir.

Trump veltir fyrir sér ríkisrekinni sjónvarpsstöð til höfuðs CNN
Bandaríkjaforseti Donald Trump sagði á Twitter síðu sinni að mögulega yrði sett upp ríkisrekin sjónvarpsstöð til höfuðs CNN sem hann segir rægja Bandaríkin.