Árið 2023 í myndum: Skjálftar á skjálfta ofan Það var titringur víða í samfélaginu árið 2023. Hatrammar kjaradeilur settu mark sitt á árið og tekist var á um hvalveiðar, útlendingamál og valdheimildir lögreglu, svo eitthvað sé nefnt. Innlent 2. janúar 2024 08:47
Mátti ekki gefa börnunum perlur íslenskrar myndlistar skömmu fyrir andlátið Átta málverk, öll eftir merka íslenska myndlistarmenn, voru miðlæg í dómi sem Hæstiréttur kvað upp í dag. Málið varðaði gerning aldraðs manns þar sem hann ráðstafaði verkunum til afkomenda sinna. Það gerði hann í desember 2018, tveimur mánuðum áður en hann lést 95 ára að aldri. Innlent 29. desember 2023 19:22
Vill að faðir sinn verði úrskurðaður látinn eftir dularfullt hvarf Moses Bradley, sonur fiðluleikarans Sean Aloysius Maríus Bradley sem spilaði meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Íslands, vill að faðir hans verði úrskurðaður látinn. Ekki hefur spurst til Seans síðan um sumarið 2018. Innlent 27. desember 2023 13:39
Lögregla hafi farið langt yfir eðlileg mörk með handtöku lögmanns Lögmenn á Landi lögmönnum, lögmannsstofu sem þrír lögreglumenn mættu á í gær og handtóku einn lögmann, segja engan vafa leika í huga þeirra á því að lögreglan hafi með aðgerðum sínum farið langt yfir eðlileg og málefnaleg mörk og hugsanlega gerst brotleg við lög. Innlent 22. desember 2023 14:40
Dómarinn vann í Hæstarétti og ríkið situr í súpunni Hæstiréttur hefur dæmt Ástríði Grímsdóttur héraðsdómara í vil í launadeilu hennar við íslenska ríkið. Hæstiréttur taldi að ríkið hafi ekki mátt krefja Ástríði, og um 260 æðstu embættismenn landsins, um endurgreiðslu launa. Meintar ofgreiðslur námu ríflega hundrað milljónum króna í heildina. Innlent 22. desember 2023 12:39
Landsréttur mátti ekki vísa meiðyrðamáli Hugins frá Hæstiréttur hefur fellt frávísunarúrskurð Landsréttar úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að taka meiðyrðamál Hugins Þórs Grétarssonar á hendur Maríu Lilju Þrastardóttur Kemp til efnislegrar meðferðar. Hæstiréttur féllst á það að ýmsir annmarkar hefðu verið á málatilbúnaði Hugins Þórs en taldi ekki næg efni til að vísa málinu frá. Innlent 22. desember 2023 11:23
Varð valdur að banaslysi vegna þreytu Karlmaður hefur verið dæmdur til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa valdið banaslysi við Hítará í sumar af stórfelldu gáleysi. Slysið var talið mega rekja til þess að maðurinn hafi verið ófær um að stjórna bifreið vegna þreytu. Innlent 22. desember 2023 10:11
Mátti svipta bræðurna að Brimnesi öllum nautgripum Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af öllum kröfum tveggja bænda, sem Matvælastofnun svipti vörslum allra 137 nautgripa þeirra árin 2021 og 2022. Innlent 21. desember 2023 13:11
Dóttir Eto'os fer í mál við hann og krefst einnar og hálfrar milljónar frá honum Dóttir Kamerúnans Samuels Eto'o, eins sigursælasta fótboltamanns síðari ára, hefur farið í mál í við hann. Fótbolti 21. desember 2023 11:30
Með um 700 grömm af kókaíni falin innvortis Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu til þrettán mánaða fangelsisvistar vegna smygls á um 700 grömmum af kókaíni til landsins. Innlent 21. desember 2023 10:33
Dæmdur fyrir smygl á tvö þúsund töflum Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla samtals um tvö þúsund töflum af Oxycontin og fleiri lyfseðilsskyldum efnum til landsins með flugi í febrúar síðastliðnum. Innlent 21. desember 2023 08:05
Ríkið greiði borginni rúmlega 3,3 milljarða Ríkið hefur verið dæmt til að greiða Reykjavíkurborg tæplega 3,4 milljarða króna vegna ógreiddra framlaga þess fyrrnefnda úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Innlent 20. desember 2023 21:14
Spurði „er þetta hann?“ og stakk hann fyrirvaralaust í brjóstið Candido Alberto Ferral Abreu hefur hlotið fjögurra ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tilraun til manndráps. Honum var gefið að sök að stinga annan mann tvisvar sinnum með hnífi í brjósthol við bílastæði í Breiðholti að kvöldi til í mars árið 2021. Innlent 20. desember 2023 17:09
Reyndi að fá fjórtán ára stúlku með sér á hótelherbergi í Reykjanesbæ Karlmaður um fertugt hlaut á dögunum átta mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundin til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að tæla fjórtán ára stúlku og peningafals árið 2021. Maðurinn var sýknaður af kröfu ákæruvaldsins sem var á þá leið að maðurinn yrði dæmdur fyrir tilraun til nauðgunar á stúlkunni. Innlent 20. desember 2023 13:08
Síbrotamaður í fjögurra mánaða fangelsi fyrir hnéspark Karlmanni, sem hefur langan sakaferil að baki, hefur verið dæmdur fjögurra mánaða hegningarauki við fyrri dóm. Hann var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa veitt manni hnéspark í höfuðið í verslunarmiðstöð í Reykjavík. Innlent 20. desember 2023 12:14
Tveggja daga líkamsmeiðingar til á upptöku Landsréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms þess efnis að Dagbjörtu Rúnarsdóttur, konu á fimmtugsaldri sem ákærð hefur verið fyrir manndráp í Bátavogi, verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Gæsluvarðhald yfir henni rennur nú út þann 11. janúar á næsta ári. Innlent 20. desember 2023 10:16
„Þegar þú sveikst mig um kynlífið þá komstu heldur betur við veikan blett á mér“ Landsréttur staðfesti á föstudag dóm yfir karlmanni vegna umsáturseineltis hans í garð kvenkyns samstarfsfélaga. Maðurinn hlýtur tveggja mánaða fangelsisrefsingu, skilorðsbundna til tveggja ára. Þá er honum gert að greiða konunni 600 þúsund krónur, sem og annan máls- og áfrýjunarkostnað málsins. Innlent 19. desember 2023 23:58
Markús í leyfi vegna meints eineltis Markús Ingólfur Eiríksson, fráfarandi forstjóri HSS hefur verið sendur í leyfi vegna ætlaðs eineltis. Til stóð að hann myndi starfa út skipunartíma sinn sem rennur út í febrúar. Innlent 19. desember 2023 17:50
Dæmdir fyrir að aka um á vespu og fremja vopnuð rán Tveir karlmenn hafa hlotið fangelsisdóma fyrir fjölda brota, meðal annars vopnað rán sem framið var í Fossvogi og annað eins í Hamraborg skömmu síðar. Innlent 19. desember 2023 15:10
Taldi niður sekúndurnar þar til konur myndu deyja Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás gegn tveimur konum og hótunarbrot, með því að hafa hótað þeim lífláti og talið niður sekúndur þar til að þær létust. Innlent 19. desember 2023 13:18
Hafi verið þekktur á Akranesi fyrir að ofsækja konur Héraðdómur Vesturlands dæmdi í dag í máli sem varðar líkamsárás sem átti sér stað í mars í fyrra á Akranesi. Innlent 18. desember 2023 21:16
Braut fartölvu með spýtu úr brotnum barnastól Karlmaður hefur hlotið níutíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundið til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás og eignaspjöll sem áttu sér stað í Reykjavík á þessu ári. Innlent 18. desember 2023 12:12
Eldar í ósamþykktu íbúðarhúsnæði og álag á rannsóknardeildinni Hver eldurinn kviknaði á fætur öðrum í ósamþykktu íbúðarhúsnæði, sem leiddi til þess að fleiri en einn týndi lífi. Svo margir voru drepnir á árinu að miðlæg rannsóknardeild lögreglu hafði í sumar þrjú manndrápsmál til rannsóknar í einu. Hér verður farið yfir helstu verkefni viðbragðsaðila á árinu, sem er að líða. Innlent 18. desember 2023 09:48
Viðhorfspistlar ársins 2023: Hænsn, hatur og allt þar á milli Hvað var fólki efst í huga á árinu 2023? Hvar liggja átakalínurnar? Þessar raunverulegu. Hvað er umhugsunarinnar virði? Innlent 18. desember 2023 07:51
Tók 1,4 milljónir út af stolnum greiðslukortum Karlmaður hefur verið dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar refsingar fyrir að taka 1,4 milljónir króna út af stolnum greiðslukortum árið 2017. Innlent 16. desember 2023 10:57
Grétar Sigfinnur dæmdur fyrir stórfelld skattsvik Knattspyrnumaðurinn fyrrverandi og fyrirliði KR, Grétar Sigfinnur Sigurðarson hefur verið dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfelld skattsvik. Innlent 15. desember 2023 22:58
Braut gróflega á konu sinni með dreifingu á kynferðislegu efni Íslenskur karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot, stórfelldar ærumeiðingar og stórfelld brot í nánu sambandi með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð fyrrverandi eiginkonu sinnar og barnsmóður með dreifingu á kynferðislegu myndefni á ýmsum miðlum og tölvupóstum til fólks. Innlent 15. desember 2023 16:55
Dagbjört ákærð fyrir manndráp í Bátavogi Héraðssaksóknari gaf í dag út ákæru á hendur Dagbjörtu Rúnarsdóttur, 42 ára gamalli konu, fyrir manndráp í Bátavogi í Reykjavík þann 23. september síðastliðinn. Innlent 15. desember 2023 16:44
Ummælin dauð og ómerk en miskabætur og málskostnaður detta út Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness um að ummæli Huga Halldórssonar í garð körfuboltamannsins Srdans Stojanovic séu dauð og ómerk. Hugi þarf hins vegar ekki að greiða Srdan miskabætur. Körfubolti 15. desember 2023 15:12
Margrét sýknuð í Landsrétti Landsréttur hefur sýknað Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra Fréttarinnar, af ákæru fyrir hótanir í garð Semu Erlu Serdar aðgerðarsinna fyrir utan Benzin Café á Grensásvegi árið 2018. Innlent 15. desember 2023 14:27
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent