Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Lovísa Arnardóttir skrifar 2. janúar 2026 11:33 Hæstiréttur telur ekki tilefni til að taka fyrir dóm um kynferðisbrot. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarbeiðni karlmanns sem sakfelldur var í héraðsdómi og Landsrétti fyrir að brjóta kynferðislega á stjúpdóttur sinni með því að strjúka rass hennar og slá í hann í nokkur skipti þegar hún var 12 til 14 ára gömul.
Hæstiréttur telur málið ekki þannig að mikilvægt sé að fá úrlausn í því fyrir Hæstarétti auk þess sem hann sér ekki ástæður sem geti varðað í ómerkingu hans. Maðurinn sótti um leyfi til áfrýjunar til Hæstaréttar en fram kemur í niðurstöðu dómsins að ákæruvaldið lagðist gegn beiðninni. Landsréttur staðfesti sakfellingu yfir manninum í október. Dómurinn lækkaði þó fangelsisdóminn úr sjö mánuðum í fjóra mánuði, bundna skilorði í tvö ár, með tilliti til þess að málsmeðferðin hafði dregist verulega á langinn. Héraðsdómur dæmdi í málinu í nóvember árið 2024. Brot mannsins áttu sér stað frá árinu 2018 til febrúar eða mars 2021 Fyrir héraðsdómi viðurkenndi maðurinn að hafa nuddað stúlkuna en sagði það hafa verið að hennar beiðni. Vinkona hennar hafi verið viðstödd allan tímann og móðir hennar í dyragættinni og séð hvað væri að fara fram. Hann sagði í héraðsdómi engar athugasemdir hafa komið fram á þeim tíma. Hann hafi ekki nuddað beran rass hennar né innanverð læri. Hann hefði lært nudd og væri því vel að sér í líffærafræði. Hann hafi ekki nuddað hana til að brjóta á henni, heldur af þekkingu. Í Landsrétti neitaði maðurinn að hafa nuddað svokallaðan maximus-vöðva stúlkunnar þrátt fyrir að hafa fyrir héraðsdómi sagst hafa nuddað þann vöðva. Héraðsdómur hafði bent á að umræddur vöðvi væri stærsti rassvöðvinn og því þótti dómnum vera innbyrðis ósamræmi í framburði mannsins sem bæði sagðist hafa nuddað vöðvann en ekki hafa nuddað rass hennar. Fyrir héraðsdómi viðurkenndi maðurinn að hann hefði „danglað“ í rass stjúpdóttur sinnar og einnig vinkonu hennar en sagði það vera grín. Hætti eftir að móðir stúlkunnar bað hann að hætta Spurður út í rassskellingarnar sakargiftir fyrir Landsrétti sagði hann að háttsemin hefði verið „random“. Maðurinn kvaðst ekki hafa haft ásetning til að brjóta á brotaþola og að hann hefði hætt háttseminni tímabundið eftir að móðir brotaþola bað hann um það. Fyrir dómi sagði stúlkan að sér hafi alltaf þótt þetta óþægilegt, sérstaklega í eitt skipti þegar hann hafi sagt: „Æj nei djók, þú gætir fílað þetta.“ Niðurstaða héraðsdóms var að maðurinn fengi sjö mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm til tveggja ára en Landsréttur mildaði dóminn í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi. Litið var til þess að málsmeðferð dróst verulega. Í umfjöllun Hæstaréttar kemur fram að karlmaðurinn hafi byggt sína beiðni á því að „verulegir aðferðafræðilegir annmarkar hafi verið á sönnunarmati“ dómsins. Lykilgagna hafi ekki verið aflað og Landsréttur lagt til grundvallar „órökstudda sérfræði- eða sálfræðilega tilgátu um „seinkaða skynjun“ brotaþola á háttsemi leyfisbeiðanda“. Hafi verið skylt að kalla til meðdómsmanns Þá telur hann að dómurinn hafi vanrækt að meta áhrif „mengunar“ frá móður brotaþola á framburð hennar og vitnis. Móðirin hafi staðið í „hatrammri skilnaðar- og fjárskiptadeilu“ við leyfisbeiðanda. Maðurinn telur að við þessar aðstæður hafi dómstólnum verið skylt að kalla til meðdómsmann með sérkunnáttu. Einnig byggði hann beiðni sína á því að dómur Landsréttar hafi falið í sér ranga lögskýringu á hugtakinu „kynferðisleg áreitni“ og brot gegn lögmætisreglu refsiréttar sem feli í sér að skýra beri refsiheimildir þröngri lögskýringu. „Leyfisbeiðandi áréttar sérstaklega að beiðnin varði lögskýringu og aðferðafræði við sönnunarmat en feli ekki í sér kröfu á endurmati sönnunargildis munnlegs framburðar og falli því að skilyrðum áfrýjunarleyfis til réttarins,“ segir að lokum um beiðnina. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að virtum gögnum máls verði ekki sé að málið lúti atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu eða mjög mikilvægt sé af öðrum ástæðum að fá úrlausn Hæstaréttar um. Þá metur hæstiréttur að engir annmarkar séu á aðferð við sönnunarmat hins áfrýjaða dóms sem geti varðað ómerkingu hans. Beiðninni er því hafnað.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Sjá meira