

Dómsmál
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

33 milljóna úttektir í spilasölum og 4,3 milljóna bíll greiddur með reiðufé
Meðal þeirra útgjalda pólskra hjóna sem héraðssaksóknari hefur ákært fyrir peningaþvætti og telur að sé ekki trúverðugar skýringar á eru 33,4 milljóna króna úttektir í spilakössum og kaup eiginmannsins á Hyunday Tucson að andvirði 4,3 milljóna, sem hann greiddi fyrir með reiðufé.

Afkomendum Sævars boðnar 240 milljónir í bætur
Þá hafi fimm sakborningum í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum verið samtals boðnar um 760 milljónir í bætur.

Ákærð fyrir peningaþvætti en segjast einfaldlega heppin í spilakössum
Pólsk hjón sem sæta ákæru héraðssaksóknara fyrir peningaþvætti gefa þá skýringu að þau hafi lifað hátt vegna þess hve vel manninum gekk að vinna í spilakössum.

Ríkislögmaður segir áhrif sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálum á framvindu máls hafa áhrif á bætur
Andri Árnason, settur ríkislögmaður, segir taka þurfi mið af því hvort einstaklingur sem sýknaður hefur verið hafi á einhvern hátt stuðlað að því að rangur dómur hafi verið upp kveðinn þegar bætur eru ákvarðaðar.

Hæstiréttur staðfestir úrskurð Landsréttar
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Landsréttar sem hafnaði kröfu Isavia um að fá úrskurð Héraðsdóms Reykjaness felldan úr gildi þess efnis Isavia yrði að afhenda bandaríska leigufélaginu ALC Airbus-þotu sem Isavia hafði kyrrsett gegn öllum skuldum flugfélagsins WOW air.

Neitar að hafa brotið tvisvar á fjórtán ára stúlku
Karlmaður sem sakaður er um að hafa brotið tvívegis kynferðislega gegn fjórtán ára stúlku fyrri hluta árs 2017 neitar sök í málinu. Aðalmeðferð í málinu fer fram í október við Héraðsdóm Reykjavíkur.

Ákærður fyrir líkamsárás á Götubarnum
21 árs karlmaður sætir ákæru fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Götubarnum við Hafnarstræti á Akureyri í febrúar í fyrra.

Dæmdur í fangelsi fyrir að stela kjúklingabringum úr Krónunni
Karlmaður var fyrir helgi dæmdur í átta mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ítrekaðan vörustuld úr matvöruverslunum frá því í mars á þessu ári þar til í júlí.

Segir greinargerð ríkislögmanns grimma
Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, segir þá stöðu sem er komin upp í máli sakborninganna í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum vera eins og kjaftshögg fyrir aðila málsins.

Segir ríkið hafna nútímavísindum til þess að „fara sem verst með sakborningana“
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar sem stefnt hefur ríkinu til greiðslu bóta með dráttarvöxtum upp á 1,3 milljarða króna, segir ríkislögmann ekki vera sjálfstæða stofnun.

Landsréttur staðfesti sýknudóm í nauðgunarmáli
Sýknudómur Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmanni frá því í desember árið 2018 var staðfestur í Landsrétti í dag.

Krefst fimm ára fangelsis yfir Árna Gils
Héraðssaksóknari krafðist fimm ára fangelsisdóms yfir Árna Gils Hjaltasyni vegna tilraunar til manndráps við lok aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Tveggja ára dómur fyrir nauðgun á Þjóðhátíð
Landsréttur hefur dæmt Helga Fannar Sæþórsson í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa, á Þjóðhátíð 2015, nauðgað konu sem ekki gat spornað við verknaðinum sökum svefndrunga og ölvunar.

Dómur mildaður í nauðgunarmáli manns sem kom GPS-tæki fyrir í bíl konu sinnar
Landsréttur hefur mildað dóm yfir karlmanni á fertugsaldri fyrir að nauðga þáverandi eiginkonu sinni og að koma GPS-tæki fyrir í bíl konunnar, án hennar vitundar, í þeim tilgangi að fylgjast með ferðum hennar.

Þinghaldi lokað á meðan fyrrverandi vinkona Árna bar vitni
Dómari féllst á beiðni saksóknara sem sagði vitnið óttaslegið og telja viðvist fólks í dómsalnum geta haft áhrif á framburð sinn.

Deilt um dagbókarfærslur lögreglu í stóra amfetamínmálinu
Verjendur og saksóknari í umfangsmiklu fíkniefnamáli þar sem þrír menn eru ákærðir fyrir framleiðslu á rúmum átta kílóum af amfetamíni í sumarbústað í Borgarfirði tókust á um það fyrir dómi í dag hvort ákæruvaldinu beri að leggja fram dagbókarfærslur lögreglu í málinu.

Guðmundar og Geirfinnsmálið: „Ríkið er nú komið í stríð við Hæstarétt“
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar, segir það hafa komið skjólstæðingi sínum á óvart að ríkisstjórnin skyldi hafa krafist sýknu af skaðabótakröfum Guðjóns vegna fangelsunar hans í Gerfinnsmálinu.

Bensínþjófur slapp með sekt
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í vikunni ungan mann til að greiða Olíuverzlun Íslands 67 þúsund króna skaðabætur auk dráttarvaxta fyrir að hafa ítrekað stolið bensíni frá fyrirtækinu.

Dómurinn frá 1980 hafi fullt sönnunargildi um málsatvik
Ríkið telur að byggja eigi á málsatvikum eins og þeim er lýst í sakfellingardómi Hæstaréttar frá 1980 um bótakröfu Guðjóns Skarphéðinssonar. Ný gögn sem aflað hefur verið gangi ekki framar þeim dómi. Fullyrðingum Guðjóns um ólöglegar rannsóknaraðgerðir hafnað sem ósönnuðum með öllu.

Stefna Landspítalanum vegna andláts barns
Þau Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Karl Olgeirsson hafa stefnt Landspítalanum til greiðslu miska- og skaðabóta vegna alvarlegra mistaka starfsfólks á fæðingardeild spítalans í ársbyrjun 2015.

Meiðyrðamál Manna í vinnu tekin fyrir
Eiríkur Jónsson baðst einn afsökunar vegna ummæla eða fréttar í tengslum við starfsmannaleigu sem var sökuð um misnotkun á starfsmönnum. Hópur verkalýðsforingja fékk kröfubréf. Tvö meiðyrðamál tekin fyrir á morgun.

Lýstu áhyggjum af meðferð skattamála við þingfestingu
Jafnt sækjendur, verjendur og dómarar telja meðferð skattlagabrota ekki í lagi nú þegar þrír dómar hafa fallið hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Fjórða málið er komið til efnismeðferðar í Strassborg. Þetta kom fram við þingfestingu máls í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudaginn.

Prófessor sagður tapa trúverðugleika sínum
Tónlistarprófessor sem gerði samanburðargreiningu á lögunum Söknuði og You Raise Me Up er sagður hafa fórnað trúverðugleikanum með vinnubrögðunum. Þetta kemur fram í andsvörum lögmanns Jóhanns Helgasonar fyrir dómi.

„Hættur að kippa sér upp við svona atvik í Breiðholtinu“
Íbúar í grennd við Leifasjoppu þar sem Árni Gils Hjaltason er sakaður um tilraun til manndráps árið 2017 báru vitni um rifrildi og mögulegan eftirleik árásar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Sextán kíló af kókaíni, milljónir í reiðufé en allir neita sök
Tveir 23 ára karlmenn og einn nýskriðinn yfir tvítugt neita sök í umfangsmiklu kókaínmáli sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Átti í átökum skömmu fyrir áflogin við Leifasjoppu
Þetta kom fram í fyrsta skipti þegar réttað var yfir Árna í annað skipti vegna ákæru um tilraun til manndráps í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Íslenskir hvítflibbakrimmar sleppa við þungar refsingar
Aðeins níu prósent af sektum dómstóla innheimtast á Íslandi. Ástandið er verra eftir því sem sektin er hærri. Fangelsiskerfið er svo gott sem sprungið. Flestir fullnusta refsingar með samfélagsþjónustu sem getur að hámarki orðið 480 klukkustundir.

Par ákært fyrir milligöngu um vændi þriggja kvenna frá Perú
Kona og karl hafa verið ákærð fyrir milligöngu um vændi þriggja útlendra kvenna á þremur stöðum í Reykjavík seint á árinu 2017. Málið hefur þegar verið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ákærðu neita bæði sök.

Sautján ára dómur fyrir manndráp á Austurvelli
Landsréttur hefur staðfest sautján ára fangelsisdóm yfir Degi Hoe Sigurjónssyni fyrir að verða Albananum Klevis Sula að bana með hnífsstungu á Austurvelli í desember 2017.

Segist samviskusamlega hafa tilkynnt um andlát föður síns
Kona um sextugt sætir ákæru héraðssaksóknara fyrir fjárdrátt með því að hafa dregið sér fjármuni af bankareinkningi dánarbús föður hennar. Það á hún að hafa gert með fimm millifærslum sem námu samtals 2,2 milljónum króna.