

CrossFit
Fréttir af keppendum og mótum í CrossFit.

Anníe Mist um erfiðasta árið á ævinni og ótrúlega árið sem er framundan
Íslenska CrossFit konan Anníe Mist Þórisdóttir ætlar sér stóra hluti á árinu 2021.

Heimsmeistarinn í CrossFit byrjuð að æfa sig á ísnum
Á meðan flestir í hópi besta CrossFit fólks heims er fyrir alvöru að hefja undirbúning sinn fyrir komandi tímabil þá er sú besta í heimi að troða nýjar slóðir hinum megin á hnettinum.

Eins gott fyrir Söru að vera við öllu búin þegar Moli er á ferðinni í Simmagym
Sara Sigmundsdóttir og Moli eyða miklum tíma saman í Simmagym og þá geta stundum orðið „smá slys“ þegar sumir verða of kappsamir.

Hetjuleg framganga Katrínar Tönju í nýrri heimildarmynd
Heimildarmyndin „The Hold“ er kannski stutt en hún lýsir vel þeim mikla andlega styrk sem íslenska silfurkonan frá síðustu heimsleikum í CrossFit býr yfir. Katrín Tanja Davíðsdóttir sýndi það og sannaði margoft á þessu ótrúlega ári að hún er með bæði sterkan haus og öflugan líkama.

Sara stjarnan í hvatningarmyndabandi heimsleikanna í CrossFit
Tilþrif frá íslensku CrossFit konunni Söru Sigmundsdóttur eru í aðalhlutverki í dramatísku myndbandi hjá síðu heimsleikanna í CrossFit

Katrín Tanja í „ísköldum“ tökum rétt fyrir jól
Katrín Tanja Davíðsdóttir eyddi gærdeginum út í íslensku náttúrunni og lét ekki kuldann á sig fá.

Fá að bjóða upp á útiæfingar eftir allt saman
CrossFit-stöðvum er heimilt að verða með útiæfingar fyrir iðkendur sína samkvæmt núgildandi samkomutakmörkunum. Yfirþjálfari hjá CrossFit Kötlu hefur fengið þetta staðfest, en lögregla gerði stöðinni að loka um helgina og sagði útiæfingar óheimilar.

Listinn yfir það sem Katrín Tanja elskaði að gera á svakalegu ári
Íslenska CrossFit konan Katrin Tanja Davíðsdóttir átti svakalegt ár þar sem hún byrjaði árið í tómu tjóni með bakið á sér og endaði það í langþráðu fríi á Íslandi. Tíminn inn á milli var ekki síður viðburðaríkur og sögulegur.

Hætt að bjóða upp á útiæfingar eftir að lögreglan mætti í morgun
Brynjar Helgi Ingólfsson, yfirþjálfari í CrossFit Kötlu, fékk óvænta heimsókn á útiæfingu stöðvarinnar í morgun. Rétt fyrir klukkan ellefu mætti lögreglan á svæðið og í kjölfarið var stöðinni gert að loka.

CrossFit Samtökin kynna nýja jólagjöf fyrir CrossFit fólk
Nýr eigandi CrossFit samtakanna vill fjölga fólki í íþróttinni og jólin í ár gætu hjálpað honum á þeirri vegferð.

Svona lítur nýtt og gerbreytt CrossFit dagatal út fyrir árið 2021
CrossFit samtökin hafa nú opinberað keppnisdagatal sitt fyrir árið 2021 og þar má sjá mjög miklar breytingar á leið besta CrossFit fólks heims að heimsmeistaratitlinum.

Sara Sigmunds með góð ráð fyrir íþróttafólk yfir jólin
Íslenska CrossFit stjarnan Sara Sigmundsdóttir hefur búið sér til reglur til að komast í gegnum jólahátíðina án þess að rugla of mikið í mataræði sínu.

Sú besta í CrossFit heiminum hefur sett stefnuna á Vetrarólympíuleikana 2022
Tia-Clair Toomey hefur unnið síðustu fjóra heimsmeistaratitla í CrossFit en það er önnur íþrótt sem mun eiga hug hennar á næstu mánuðum.

Anníe Mist: Síðustu fjórir mánuðir erfiðari en þeir fjórir síðustu á meðgöngunni
Anníe Mist Þórisdóttir segir í nýjustu stöðuuppfærslu sinni að draumurinn að komast aftur á fullt eftir átta til tíu vikur hafi ekki alveg gengið eftir.

Anníe Mist skorar á fylgjendur sína í hverri viku
Anníe Mist Þórisdóttir hvetur fylgjendur sína til að gera með henni eina æfingu á hverjum mánudegi.

Anníe Mist: Svaraði strax já en þurfti síðan að breyta því
Lífið getur breyst á augabragði og komið með nýja og öðruvísi áskorun fyrir íþróttafólk. Gott dæmi um það er síðasta CrossFit tímabil hjá Anníe Mist Þórisdóttur.

Dóttir Köru Saunders slær í gegn með því að herma eftir mömmu sinni
Ástralska CrossFit stjarnan Kara Saunders er mikil fyrirmynd fyrir þær CrossFit konur sem verða ófrískar og vilja koma til baka inn á keppnisgólfið.

Íslensku CrossFit stelpurnar með hæsta hlutfallið í heiminum
Það er mikill áhugi á CrossFit með íslenskra kvenna og nú er komið í ljós að hann er í raun einstakur í heiminum.

Sara setti naglana undir fyrir æfingu
Sara Sigmundsdóttir lét ekki íslenska vetrarveðrið koma í veg fyrir útiæfingu í gær.

Anníe Mist: Leitaðu uppi veikleikana þína og nýttu þér þá
Anníe Mist Þórisdóttir lætur vísindin vinna með sér til á leið sinni að því að komast í betra form fyrir hennar fyrsta CrossFit tímbil eftir að hún varð mamma.

Katrín Tanja er komin af stað á ný: „Yasssss“
Það styttist í nýtt ár og nýtt CrossFit tímabil og önnur besta CrossFit kona heims er búinn að skipta um gír eftir rólegar vikur.

Katrín Tanja leitaði uppi innri frið í gær
Katrín Tanja Davíðsdóttir er að hlaða batteríin heima á Íslandi og hún leitaði uppi innri frið með góðum árangri í gær.

Heyrði öskrin í fjölskyldunni sinni allan tímann á ógleymanlegu kvöldi
Það eru liðin fimm ár síðan en Sara Sigmundsdóttir man eftir þessu kvöldstund eins og hún hafi gerst.

CrossFit höfuðstöðvarnar flýja gömlu draugana í Kaliforníu
Það eru nýir og breyttir tímar hjá CrossFit samtökunum og nýr eigandi lætur sér ekki nægja að breyta öllu innanhúss hjá samtökunum.

Æfingafélagi Katrínar Tönju með COVID
Loka þurfti æfingastöð Katrínar Tönju Davíðsdóttur í Boston í Bandaríkjunum vegna kórónuveirusmits en okkar kona er sem betur fer í langþráðu fríi á Íslandi.

Sara Sigmunds er næstum því vegan
Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir segist ekki alveg geta kallað sig vegan en en hún lifir samt 80 til 85 prósent á plöntufæði.

Ein sú besta í heimi hættir hjá þjálfara Katrínar Tönju
Katrín Tanja Davíðsdóttir og Brooke Wells komust báðar í fimm manna ofurúrslit heimsleikanna í ár en þær hafa báðar verið lengi hjá bandaríska þjálfaranum Ben Bergeron. Nú er samvinnunni lokið.

Heimaslóðirnar á Íslandi í aðalhlutverki í nýrri auglýsingu Söru
Íslenska CrossFit stjarnan auglýsir íslenska náttúru og þá sérstaklega sinn hlut landsins í nýrri auglýsingu hennar fyrir Volkswagen.

Sara Sigmunds elskar Lewis Hamilton
Heimsmeistarinn í formúlu eitt á sér mikinn aðdáenda í einni stærstu stjörnu CrossFit íþróttarinnar. Sara Sigmundsdóttir felur ekki aðdáun sína á sjöfalda heimsmeistaranum Lewis Hamilton.

Sjáðu hvað Sara valdi sem bestu minninguna sína á heimsleikunum
Sara Sigmundsdóttir rifjaði upp sína eftirminnilegustu grein á heimsleikunum og það var stundin þegar ný íslensk CrossFit drottning fæddist eins og lýsandinn komst að orði.