100 gráðu heitt vatn fannst í Reykholti í Bláskógabyggð Íbúar og fulltrúar í sveitarstjórn Bláskógabyggðar ráða sér ekki yfir kæti þessa dagana því í þorpinu í Reykholti voru að finnast tuttugu sekúndu lítrar af hundrað gráðu heitu vatni í fyrstu tilraun með jarðbornum Trölla. Innlent 2. febrúar 2025 20:04
Umhverfis- og tæknisvið uppsveita á Laugarvatni Sex sveitarfélög í uppsveitum Árnessýslu, sem reka sameiginlegt umhverfis- og tæknisvið uppsveita hafa komið sér vel fyrir í nýju húsnæði á Laugarvatni þar sem er meira en nóg að gera við að gefa út allskonar leyfi fyrir sveitarfélögin. Innlent 19. janúar 2025 21:04
1166 ára gömul systkini frá Kjóastöðum og öll á lífi Elstu núlifandi systkini landsins eru systkinin sextán frá Kjóastöðum í Biskupstungum í Bláskógabyggð en þau eru samtals 1166 ára gömul. Elsta systkinið er 83 ára og það yngsta 58 ára. Innlent 5. janúar 2025 14:04
Telur Sigurð Inga hafa misnotað umboð sitt Landvernd segir Sigurð Inga Jóhannsson fjármála- og innviðaráðherra hafa misnotað umboð sitt með því að staðfesta svæðisskipulag fyrir Suðurhálendið næstu tuttugu árin. Um sé að ræða stefnumarkandi mál sem óeðlilegt sé að starfsstjórn keyri áfram í tómarúmi. Innlent 16. desember 2024 11:14
Svæðisskipulag fyrir Suðurhálendi Íslands til 2042 Sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi ráða sér ekki fyrir kæti þessa dagana því fulltrúar ellefu sveitarfélaga undirrituðu í gær í Samgöngusafninu í Skógum undir Eyjafjöllum samkomulag um Svæðisskipulag fyrir Suðurhálendi Íslands, sem gildir til 2042. Fimm ár tók að vinna skipulagið. Innlent 11. desember 2024 20:04
Safnað fyrir 20 milljóna króna flygli í Skálholti Söfnun er nú hafin á flygli í Skálholtsdómkirkju en þar hefur aldrei verið til píanó, eingöngu orgeli, sem þykir mjög sérstakt í einu flottasta tónlistarhúsi landsins. Nýr flygill kostar um 20 milljónir króna. Innlent 7. desember 2024 14:06
Afturkalla átta friðlýsingar Friðlýsingar átta svæða á Íslandi hafa verið afturkallaðar. Var það gert vegna úrskurðar Hæstaréttar Íslands frá því í mars um að friðlýsing verndarsvæðis Jökulsár á Fjöllum frá árinu 2019 hefði verið ólögmæt. Innlent 3. desember 2024 20:01
Söngelskir nemendur í Menntaskólanum að Laugarvatni Hugur nemenda Menntaskólans að Laugarvatni er ekkert endilega við skólabækurnar þessa dagana því kór skólans er að fara að syngja á þrennum tónleikum í Skálholti með Sinfóníuhljómsveit Suðurlands. Meirihluti nemenda er í kórnum. Lífið 27. nóvember 2024 21:39
Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Biskup Íslands fagnar því að Alþingi hafa samþykkt hækkun á sóknargjöldum til kirkna landsins annars hefði þurft að koma til uppsagna starfsfólks í kirkjum eins og á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 24. nóvember 2024 14:05
Verðlaunuð fyrir að berjast gegn slúðri Freyja Rós Haraldsdóttir, kennari, jafnréttisfulltrúi og gæðastjóri við Menntaskólann á Laugarvatni, hlaut hvatningarverðlaun Dags gegn einelti sem afhent voru á föstudaginn. Valið var úr innsendum tilnefningum. Innlent 11. nóvember 2024 10:08
„Þetta var hræðilegt slys“ Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu ásamt félögum. Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar segir um hræðilegt slys að ræða. Innlent 4. nóvember 2024 18:38
Formaður Kyndils lést í slysinu við Tungufljót Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu. Maðurinn hét Sigurður Kristófer McQuillan Óskarsson en hann var formaður björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ. Hann var 36 ára. Innlent 4. nóvember 2024 14:55
Banaslys við Tungufljót Banaslys varð í dag þegar karlmaður á fertugsaldri féll í Tungufljót nálægt Geysi. Innlent 3. nóvember 2024 20:42
Maðurinn kominn upp úr fljótinu Maður féll út í Tungufljót í Árnessýslu skammt frá Geysi síðdegis. Lögreglan á Suðurlandi var með töluverðan viðbúnað, straumvatnsbjörgunarmenn voru sendir á vettvang og þyrla landhelgisgæslunnar var ræst út. Innlent 3. nóvember 2024 16:59
Matarsmakk á fjölmenningarhátíð í Aratungu Það stendur mikið til í félagsheimilinu Aratungu í Bláskógabyggð á morgun sunnudag þegar fjölmenningarhátíð uppsveita Árnessýslu verður haldin. Þar munu fulltrúar sautján þjóðlanda, sem búa á svæðinu kynna menningu síns lands og bjóða upp á matarsmakk. Innlent 2. nóvember 2024 14:04
Óvenjuleg aukin virkni við Geysi Óvenjuleg aukning á hveravirkni hefur orðið á Geysissvæðinu í Haukadag síðan á laugardag. Engar breytingar hafa komið fram á mælum Veðurstofunnar sem gætu útskýrt þessa virkni. Innlent 21. október 2024 17:48
„Ég er viss um að hann mundi allt sem gerðist þetta kvöld“ „Maður missti svo mikið við þessa atlögu. Ég missti pabba, ég missti frænda minn, ég missti griðastaðinn minn þarna. Í rauninni held ég að það hafi ekki komið mér á óvart þegar hann neitaði sök. Þetta er ekki maður sem hefur gengist við gjörðum sínum,“ segir Ellen Drífa Ragnarsdóttir, dóttir Ragnars Lýðssonar sem ráðinn var bani á bænum Gýgjarhóli árið 2018. Banamaður Ragnars var bróðir hans, Valur Lýðsson. Innlent 15. október 2024 10:06
Lýsir hrottafengnu ofbeldi í Reykholti: Bundinn á meðan köldu vatni var bunað á hann Maltneskur karlmaður hefur lýst hrottafenginni meðferð af hálfu þriggja einstaklinga um nokkurra daga skeið í lok aprílmánaðar á þessu ári í Reykholti í Biskupstungum. Innlent 11. október 2024 16:18
Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Ferðamaður tók vel í beiðni pars um að hann tæki af þeim paramynd á Þingvöllum í morgun. Þegar myndatökunni var lokið og parið á bak og burt áttaði ferðamaðurinn sig á því að hann var kortaveskinu fátækari. Innlent 9. október 2024 13:37
Maðurinn sem lést í Brúará frá Katar Maðurinn sem lést í gær þegar hann féll í Hlauptungufoss í Brúará var um þrítugt og frá Katar. Hann var hér á ferðalagi ásamt fjölskyldu sinni þegar slysið varð. Innlent 25. september 2024 16:06
Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Þó nokkrir urðu vitni að því þegar karlmaður féll í Hlauptungufoss í Brúará um klukkan 13 í dag. Maðurinn fannst látinn skömmu síðar. Um var að ræða erlendan ferðamenn. Innlent 24. september 2024 17:46
Maðurinn fannst látinn Maðurinn sem féll í Hlauptungufoss fannst látinn nú fyrir stundu. Um erlendan ferðamann er að ræða. Innlent 24. september 2024 13:13
Engin væll í sunnlenskum sauðfjárbændum Fjallkóngur Tungnamanna segir að lömbin hafa sjaldan eða aldrei komið eins falleg af afrétti eins og í ár. Réttað var í Tungnaréttum í gær þar sem fjögur þúsund fjár komu til réttanna og mörg hundruð manns mætt til að taka þátt í réttarstörfum. Innlent 15. september 2024 13:05
Hótel Geysir hagnaðist um meira en hálfan milljarð í fyrra Rekstur Hótel Geysis gekk afar vel á árinu 2023, segir stjórn félagsins, og horfur góðar fyrir árið í ár. Hótelið keypti jörðina Neðri-Dal í Bláskógabyggð í fyrra sem skapar tækifæri á frekari þróun á ferðatengdri þjónustu á svæðinu. Innherji 4. september 2024 14:46
Fyrsta einkaflugvélin endaði sem sleði í Þingvallasveit Fyrsta einkaflugvél Íslendinga var nefnd Vífilsstaðaflugvélin og flaug hún fyrst á Íslandi sumarið 1930. Aðeins tveimur árum síðar taldi nýr eigandi best að nýta flugvélina með því að breyta henni í vélsleða. Innlent 3. september 2024 22:44
Altjón eftir eldsvoða í Efstadal: Íbúar fundu reykjarlykt um miðja nótt Altjón varð á fimm hundruð fermetra húsnæði í Efstadal I skammt frá Laugarvatni sem áður var fjós en var nú nýtt sem geymsla. Ekkert manntjón varð í eldinum og er ekki vitað um eldsupptök að svo stöddu. Íbúi sem fréttastofa ræddi við segir lykt af reyk hafa Innlent 30. ágúst 2024 09:13
Tvö hjólhýsi splundruðust í vindhviðum á Lyngdalsheiði Engin slys urðu á fólki þegar sendiferðabíll valt og endaði á þakinu og tvö hjólhýsi splundruðust í sterkum vindhviðum á Lyngdalsheiði síðdegis. Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi segir ekkert ferðaveður með ferðavagna á svæðinu. Innlent 23. ágúst 2024 19:58
Íbúafundur um uppbyggingu sem ógni flúðunum skilyrði Sveitarstjóri Bláskógabyggðar hvetur alla sem hafa eitthvað að athuga við áform um virkjun í Tungufljóti til að skila inn athugasemdum fyrr en síðar. Áformunum, sem gera einnig ráð fyrir 70 húsum á frístundalóðum auk gisti- og veitingaþjónustu, var hleypt til skipulagsnefndar og sveitarstjórnar með skilyrði um að íbúafundur yrði haldinn um þau. Innlent 16. ágúst 2024 13:00
Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Björgunarsveitarfólk auk kajak samfélagsins á Íslandi óttast áform um virkjun Tungufljóts í Bláskógabyggð. Fljótið er nýtt undir æfingar í straumvatnsbjörgun af björgunarsveitum og þykir einstakt hér á landi. Eigandi Arctic Rafting óttast að árlegt kajakmót sem þar fer fram nú um helgina verði það síðasta. Innlent 16. ágúst 2024 07:00
Lokað vegna linnulausrar rigningar Tjaldsvæðinu í Reykholti hefur verið lokað vegna mikilla rigninga. Framkvæmdastjóri segir þetta gert til að verja grasið og jarðveginn en nær linnulaus væta hefur verið þar að undanförnu. Innlent 7. ágúst 2024 12:47