
Dalvík verður að Ennis í nokkra daga
Hluti Dalvíkur verður á næstu dögum að bænum Ennis í nokkra daga. Tökur á þáttunum True Detective fara þar fram um mánaðamótin.
Fréttir af íslenskum og erlendum kvikmyndum og þáttum, bíóbransanum og sjónvarpsframleiðslu.
Hluti Dalvíkur verður á næstu dögum að bænum Ennis í nokkra daga. Tökur á þáttunum True Detective fara þar fram um mánaðamótin.
Í dag verða tilnefningar til Óskarsverðlaunanna árið 2023 kynntar í beinni útsendingu.
Kvikmyndin Blonde, þar sem segir frá ævi leikkonunnar Marilyn Monroe, hefur hlotið flestar tilnefningar til Razzie-verðlaunanna svokölluðu.
Aukaleikarar sem unnu við tökur á Áramótaskaupinu fengu greitt með inneign í Bónus. Þeir aukaleikarar sem tóku fyrstir þátt töldu sig munu fá greitt fyrir þátttökuna miðað við auglýsingu á Facebook.
Nýtt íslenskt framleiðslufyrirtæki sem ætlar sér að þróa og fjármagna framleiðslu á íslensku sjónvarpsefni fyrir alþjóðamarkað hefir tryggt sér fjármögnun innlendra sem erlendra fjárfesta.
Árið 2022 var svokallað endurkomuár í kvikmyndahúsum um heim allan og Ísland var þar engin undantekning. Aðsókn í kvikmyndahús hélt áfram að aukast og gamlir kunningjar snéru aftur á hvíta tjaldið og það má með sanni segja að árið 2022 var ár framhaldsmynda.
Stórleikarinn Jeremy Renner er nú kominn heim af sjúkrahúsinu eftir hrottalegt slys á nýársdag.
Disney birti í nótt stiklu fyrir þriðju þáttaröð Mandalorian. Einnig var opinberað að þættirnir verða sýndir á Disney Plus þann fyrsta mars.
Villibráð er vinsælasta mynd landsins aðra helgina í röð og heldur Avatar: Way of Water örugglega fyrir aftan sig samkvæmt tilkynningu frá Sambíóunum.
Marin Alsop, hljómsveitarstjóri sem bent hefur verið á að geti að einhverju leyti verið fyrirmynd persónu Cate Blanchett, í kvikmyndinni Tár, segist hafa fengið áfall þegar hún heyrði fyrst af myndinni, skömmu áður en hún kom út.
Tómas Geir Howser Harðarson vann hug og hjörtu landsmanna með tilfinningaríkum fagnaðarlátum í Gettu betur árið 2015 og hlaut viðurnefnið Tilfinninga-Tómas.
Birgitta Haukdal, söngkona og Idol-dómari, átti von á viðbrögðum við nýjasta þættinum í Idol og þeirri ákvörðun sem dómarar tóku í þættinum. Flottir keppendur hafi verið sendir heim fyrir átta manna úrslitin.
Tyrfingur Tyrfingsson einn handritahöfunda kvikmyndarinnar Villibráð segir að margt sannsögulegt komi fram í myndinni.
Kvikmyndin Berdreymi eftir Guðmund Arnar Guðmundsson er tilnefnd til dönsku kvikmyndaverðlaunanna, Robert Prisen 2023.
Thelma Sigurhansdóttir varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að setjast í sófa þáttastjórnandans Jimmy Fallon á meðan á auglýsingahléi við upptökur á kvöldþáttunum vinsælu „The Tonight Show with Jimmy Fallon“ stóð í desember síðastliðnum. Hún segir Fallon mikinn karakter en indælan.
Laugardaginn 14.janúar verður haldinn sérstakur kvikmyndatónlistarviðburður í Bíó Paradís í samstarfi við Feminist Film Festival, Shesaid.so og Anima Productions.
Kvikmyndin Avatar: The Way of Water eftir James Cameron halaði inn rúmum einum og hálfum milljarði dala á einungis 22 dögum í kvikmyndahúsum. Það er þrátt fyrir að myndin þyki hafa farið hægt af stað. Avatar hefur tekið fram úr Top Gun: Maverick og situr nú í tíunda sæti yfir tekjuhæstu kvikmyndir sögunnar, án tillits til verðbólgu.
„Mér skilst að menn hafi orðið mjög hrifnir af mér svo ég fór að líta á mig öðrum augum en áður. Ég hef aldrei haft mikið álit á mér,“ segir Árni Jón Árnason, sem vann hug og hjörtu þjóðarinnar í heimildarmyndinni Velkominn Árni.
Leikarinn Noah Schnapp, einna þekktastur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum geysivinsælu Stranger Things er kominn út úr skápnum.
Forsýning á íslensku gamanmyndinni Villibráð fór fram í Smárabíói í gær. Landslið íslenskra leikara kemur saman í þessari stórhættulegu kvikmynd undir leikstjórn Elsu Maríu Jakobsdóttur.
Forsýning á kvikmyndinni Villibráð fór fram í kvöld í Smárabíói. Fréttakona okkar, Elísabet Inga Sigurðardóttir tók leikara og leikstjóra myndarinnar tali rétt fyrir forsýningu fyrr í kvöld.
Sigurjón Kjartansson, einn framleiðenda og handritshöfunda Áramótaskaupsins, segir það hafa verið hugað hjá handritshöfundum að gera grín að stöðu fatlaðra í leikhúsheiminum í hjólastólasketsi í Skaupinu. Hann nefnir sketsinn sem einn af sínum uppáhalds.
Framleiðendur fyrstu kvikmyndarinnar sem tekin var upp í geimnum birtu í gær fyrstu stiklu myndarinnar sem ber heitið Áskorunin, eða The Challenge. Myndin var tekin upp í Alþjóðlegu geimstöðinni í október í fyrra.
Framleiðslufyrirtækið Glassriver, sem meðal annars hefur framleitt Venjulegt fólk og Svörtu sanda, vinnur verkefni nokkur ár fram í tímann. Það gerir til dæmis kostnaðar- og fjármögnunaráætlanir fyrir sjónvarpsverkefni eitt til fjögur ár fram tímann. Þess vegna hafa snarpar verðhækkanir á árinu verið virkilega mikil áskorun. Þetta segir Andri Ómarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Lengi hefur tíðkast að fólk samnýti lykilorð að Netflix til að glápa á þætti og kvikmyndir á sama aðgangnum. Nú er útlit fyrir að þessi hefð muni líða undir lok en forsvarsmenn Netflix hafa gefið það út að tekið verði á lykilorðasamnýtingu á nýju ári.
Árið 2022 var að nokkru leyti árið sem kvikmyndirnar sneru aftur. Það er að segja árið sem fólkið sneri aftur í kvikmyndahúsin. Nokkuð var um kvikmyndir sem öfluðu mikilla tekna á árinu en eins og alltaf voru einnig myndir sem gerðu það ekki og voru jafnvel lélegar.
Leikaranum Vilhelm Neto bregður fyrir í glænýrri seríu af þáttaseríunni vinsælu The Witcher. Þættirnir voru að stórum hluta teknir upp hér á landi á Djúpavogi og Berufirði meðal annars. Villi segir að um stærsta verkefni á hans ferli sé að ræða.
„Ég er farin að finna núna hvað Íslendingatengslin eru mikil í kvikmyndageiranum erlendis. Þar sem það er orðið þekkt að það að ráða Íslending í vinnu þýðir að þú ert að fá góðan starfskraft. Sem skilar alltaf einverju nýju,“ segir Árni Filippuson kvikmyndatökumaður með meiru.
Women Talking er ein tíu mynda sem eiga möguleika á tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir bestu tónlist. Hildur Guðnadóttir gerði tónlistina og lifa Óskarsdraumarhennar áfram. Um tíma var talið líklegt að Hildur yrði tilnefnd fyrir tónlist úr tveimur myndum en hún mun ekki hljóta tilnefningu fyrir tónlistina í kvikmyndinni Tár. Hildur fékk Óskarsverðlaunin árið 2020 fyrir kvikmyndina Joker.
Breski leikstjórinn og handritshöfundurinn Mike Hodges, er látinn, níræður að aldri. Hodges er þekktur fyrir að hafa leikstýrt myndum á borð við Flash Gordon og Get Carter.